Fréttablaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Hvar er klossinn minn?
2.990,-
TRONES skóskápur
3 stk. hvítur 51x39cm
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
23
30
9
01
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
Snjallar lausnir
dagana 22/01 – 22/02
Bakþankar
REYNIS TRAUSTASONAR
Hrukkudýr
Brjóstastærð er stærsta áhyggju-efni kvenna, eins og sjá má af
því að í hverri viku leggja fjórar
slíkar á sig þjáningu til að fá fyll-
ingu í þessi undur sín sem heilla
karlpeninginn frá frumbernsku til
grafar. Næststærsta áhyggjuefni
kvenna er andlitið, með sérstakri
áherslu á nef og augnaumgjörð. Þar
er líka hægt að kaupa bót meina
með skurðaðgerð eða einfaldri
sprautuaðgerð. Nef styttast, augna-
ráð breytist og hrukkur hverfa með
tilstilli læknavísindanna.
KARLAR hafa allt annað áhyggju-
svið. Efst á baugi hjá þeim er lim-
urinn, tákn karlmennsku þeirra,
það líffæri sem strax á unglingsár-
um getur skapað þeim ímynd fyrir
lífstíð. Mín fyrsta minning um þá
skelfingarinnar ógn sem fylgir því
að vera smávaxinn á þessu sviði
var frá sundnámskeiði á ónefndum
stað í Dýrafirði. Strákarnir á nám-
skeiðinu voru flestir á aldrinum 12
til 13 ára, á mörkum barns og
manns. Flestir okkar voru við-
kvæmir fyrir karlmennskutákninu,
sem enn var ekki nema vísir að
öðru og meira.
DRENGUR úr nágrannaþorpi
hafði það fram yfir alla aðra að
vera kominn lengra á þroskabraut-
inni. Hann var um það bil kyn-
þroska með tilheyrandi fylgivexti. Í
sturtunum höfðum við hinir gert
þessa uppgötvun og öfunduðum
hinn þroskaða óskaplega. Flestir
laumuðust í sturtuna með hand-
klæði umvafin af minnimáttar-
kennd þess sem er sýnilega minni.
Undir sturtunni snerum við upp að
vegg. Sá þroskaði gekk aftur á móti
sperrtur um sturtuklefana og naut
yfirburðanna. En þar kom að hann
tók að haga sér eins og við hinir, öll-
um til undrunar. Aðspurður um
þessa breyttu hegðan sagði hann að
þroskinn væri verðmæti sem hann
vildi ekki bera á torg. Síðan bauð
hann mönnum að sjá dýrðina, ein-
um í senn, gegn gjaldi. Hann stór-
efnaðist því við borguðum allir til
að fá barið augum það sem okkar
beið, vitandi að til eru fræ sem
aldrei verða blóm. Frá því sund-
námskeiðinu lauk fyrir næstum 40
árum hef ég litið upp til drengsins
án þess að hafa aðrar forsendur en
opinberunina á sundnámskeiðinu.
LAUSNIN á vanda þeirra sem
fram eftir aldri búa við brenglaða
karlmennskuímynd sökum stærðar-
munar er komin. Lýtalæknar kunna
aðferð til þess að lengja í hrukku-
dýri sem veldur sálarháska í sturtu-
klefum. Skorið er í vöðva, eins kon-
ar upphengju, sem heldur umræddu
líffæri óþarflega ofarlega. Líffærið
fer í lóðrétta stöðu og tekur sig
mun betur út í sturtuklefum án
þess að þetta breyti sjálfri vinnslu-
getunni. En krafa samfélagsins er
útlit fremur en innræti eða geta.
Síður limur er ávísun á sálarró og
sterka ímynd, rétt eins og stór
brjóst og beint nef. ■
undur.isSnyrtisetrið ehf
Domus Medica
sími 533 3100
Frá Snorrabraut
Sólarúði
Brún á 5 mín.
Kynningarverð