Fréttablaðið - 09.05.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Kauptu Sony
hjá Sony - vaxtalaust
DCR-HC14E stafræn tökuvél
frá Sony.
Tökuvélin er með Carl Zeiss“Vario-Sonnar”linsu
sem tryggir þér ótrúleg myndgæði. Vélin er með
hágæða 2,5" litaskjá sem er jafnframt snertiskjár,
þannig að þú stjórnar skipunum einfaldlega með
því að styðja á skjáinn.
640x zoom (10x optical)
800.000 pixlar Super HAD myndflaga
USB streaming
5.499 krónur í 12 mánuði*
eða 65.988 krónur
DCR-PC107E
Carl Zeiss Vario Tessar Linsa
800.000 pixla Super HAD myndflaga
Tengistöðin gerir hleðslu og tengingar auðveldari
8.299 krónur í 12 mánuði*
eða 99.588 krónur
DCR-PC109E
Carl Zeiss Vario Tessar Linsa
1.070.000 pixla Super HAD myndflaga
Tengistöðin gerir hleðslu og tengingar auðveldari
9.999 krónur í 12 mánuði*
eða 119.988 krónur
*Miðað við 12 jafnar vaxtalausar greiðslur á Visa eða Mastercard
skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með
jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Opið alla helgina
Hvernig ertu núna? Barasta fínn.
Hæð: 174 cm.
Augnlitur: Blár.
Starf: Kynningarfulltrúi Þjóðminjasafnsins.
Stjörnumerki: Meyja.
Hjúskaparstaða: Í sambúð.
Hvaðan ertu? Reykjavík en ólst upp í
Kópavogi frá tíu ára aldri.
Helsta afrek: Börnin mín þrjú.
Helstu veikleikar: Skapið mitt, get verið
fljótur upp.
Ertu í bókinni Samtíðarmenn? Jebb.
Helstu kostir: Fljótur niður ef ég reiðist,
sanngjarn, hugmyndaríkur og fljótur að
tileinka mér nýjungar.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Í brennidepli
og svo fara 70 mínútur vel undir sæng.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Geymt en ekki
gleymt.
Uppáhaldsmatur: Það sem Sunna Ólafs-
dóttir konan mín ber á borð hverju sinni.
Mestu vonbrigði lífsins: Æ, ég velti mér
ekki upp úr vonbrigðum, læt þau frekar
herða mig og held áfram.
Hobbý: Fótbolti og skíði.
Viltu vinna milljón? Já takk og hafðu þær
fimmtíu.
Jeppi eða sportbíll: Ég á jeppa núna en
annars er ég þessi snögga sperrta týpa.
Bingó eða gömlu dansana: Já, eftir 40 ár.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór? Prestur, skurðlæknir og atvinnu-
maður í fótbolta.
Skelfilegasta lífsreynslan: Þegar kviknaði
í mér á Grensásveginum 1976 og þegar
kveikt var í mér við Kringlumýrarbraut-
ina 1980.
Hver er fyndnastur? Þegar konan mín dett-
ur í gírinn stenst henni enginn snúning.
Hver er kynþokkafyllst/ur? Sunna mín,
ekki spurning.
Trúir þú á drauga? Eftir nokkrar undar-
legar uppákomur síðustu mánuði verð ég
að segja já. En þeir eru ekki vondir.
Hvaða dýr vildirðu helst vera: Höfrungur.
Hvort vildirðu heldur vera Egill Skalla-
grímsson eða Snorri Sturluson? Nafni minn.
Áttu gæludýr? Nei.
Hvar líður þér best? Með konunni og öll-
um börnunum okkar.
Þú finnur gamlan ask á ferðalagi um Dal-
ina sem þú veist að færi ljómandi vel á
hillu í stofunni heima hjá þér. Skynsemin
segir þér að rétt sé að láta Þjóðminjasafn-
ið vita af fundinum en þú ert á báðum átt-
um. Hvað gerirðu? Fyrst myndi ég hugsa
um hvað Þjóðminjasafnið ætti marga aska
og hvort ekki væri komið nóg. Svo myndi
ég taka upp símann og hringja í Margréti
þjóðminjavörð og tilkynna fundinn.
Besta bók í heimi: Hamskiptin eftir Kafka.
Næst á dagskrá: Að smæla framan í
heiminn.
Tvisvar
kviknað í
Bakhliðin
Á SNORRA MÁ SKÚLASYNI