Fréttablaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 31
23MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2004
Þetta er verkefni sem ég hefverið að gera í fríum og í ferð-
um fyrir Morgunblaðið síðastliðin
fimmtán ár,“ segir Ragnar Axels-
son ljósmyndari, betur þekktur
sem Rax, um ljósmyndasýningu
sem hann var að opna í Hamborg
í Þýskalandi en hefur áður verið
sýnd í Berlín við mjög góðar und-
irtektir. „Þetta er eyjatríó, mynd-
ir í svart/hvítu frá Íslandi, Fær-
eyjum og Grænlandi. Myndir af
flottum týpum úr menningu sem
er að hverfa, frá veiðimannasam-
félögum.“
Ragnar segir að það sé búið að
sækjast eftir að sýningin fari víð-
ar eða jafnvel að ný sýning á
verkum hans verði sett upp, til
dæmis í Brasilíu, Ástralíu, Nor-
egi, Frakklandi og í Belgíu. „Þetta
hefur eitt leitt af öðru og eftir að
ég fékk flotta gagnrýni frá Þjóð-
verjum fóru fleiri að sækjast eft-
ir að fá sýninguna.“
Í sumar mun koma út ljós-
myndabók frá Ragnari með mörg-
um þeim myndum sem hann hef-
ur tekið í þessu eyjatríói, um þrjá-
tíu myndir frá hverju landi þar
sem reynt verður að segja sögu
þjóðanna í norðri. ■
Ímyndir hverfandi menningar
SÝNING
RAGNAR AXELSSON
■ Opnaði sýningu í Hamborg og frá
honum kemur bók í sumar.
www.toyota.is
Corolla Verso. Hversu Verso viltu vera?
Sjaldan hefur einn bíll boðið upp á jafn marga möguleika með jafn einföldum hætti.
Með einu handtaki breytirðu Corolla Verso úr 2 manna flutningavagni í 7 manna
fjölskyldubíl. Hvert sæti er sjálfstæð eining sem leggst alveg niður svo gólfflöturinn
verður rennisléttur og jafn. Þetta þýðir að þú getur á einu augnabliki lagað innra rými
bílsins algjörlega eftir þörfum hverju sinni. Aksturinn er léttur og lipur, hönnunin
glæsilega rennileg og bíllinn hlaðinn öllum þeim hágæða- og öryggisþáttum sem
kröfuharðir ökumenn ganga að sem vísum.
Corolla Verso er byltingarkenndur 7 manna fjölskyldubíll. Í honum má finna Toyota-Full Flat 7 kerfið þar sem með einu handtaki má breyta Corolla Verso úr 2ja manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Corolla Verso er búinn 1,8 lítra VVT-i
vél sem skilar 129 hestöflum við 6.000 snúninga. Hann er búinn VSC stöðugleikakerfi, 9 loftpúðum sem hlífa öllum farþegum bílsins, ABS hemlakerfi með BA. Corolla Verso er fáanlegur með hefðbundinni beinskiptingu eða rafstýrðri beinskiptingu
og kostar frá kr. 2.229.000.
Sportbíll að utan -
7 manna ættarmót að innan.
Easy Flat-7®
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
24
40
6
0
4/
20
04
Stálvaskar
Stálvaskar
RAGNAR AXELSSON
Nýkominn frá Hamburg, þar sem hann
opnaði ljósmyndasýningu sem sýnir andlit
veiðimannasamfélaga á norðurslóðum.
Við ætlum að halda okkarfyrsta aðalfund, kjósa nýtt
ráð og fara yfir starfsemi síðasta
árs,“ segir Katrín Anna Guð-
mundsdóttir, talskona Femínista-
félags Íslands, sem heldur aðal-
fund sinn í Hlaðvarpanum, Vest-
urgötu 3, klukkan 20 í kvöld.
„Það verður áhugavert að sjá
hvað verður rætt um starf félags-
ins en virknin hefur verið mikil í
félaginu. Það er erfitt að segja
hvað hefur staðið upp úr á okkar
fyrsta starfsári. Það er búið að
vera svo margt gert og eiginlega
ekki hægt að gera upp á milli at-
burða. Stærsta átakið okkar var
Jafnréttisvikan í fyrra sem
heppnaðist mjög vel og var mjög
skemmtileg. Það sama má segja
um 19. júní og alla aðra atburði
sem við höfum staðið fyrir.“
Strax að loknum aðalfundar-
störfum verður haldið upp á eins
árs afmæli félagsins. „Það verða
fjölmörg skemmtiatriði og plötu-
snúður sem mun spila til eitt. Við
eigum von á góðri mætingu og að
það verði mikið fjör og mikið
gaman. Því viljum við bara hvetja
alla félaga til að mæta, bæði á að-
alfund og í afmælið.“ ■
Femínistafélagið eins árs
TÍMAMÓT
FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
■ Heldur fyrsta aðalfund og
afmælisveislu í Hlaðvarpanum
í kvöld.
KATRÍN ANNA
GUÐMUNDSDÓTTIR
Segir mikinn vöxt í
Femínistafélaginu
síðastliðið ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
IG
U
RÐ
U
R
JÖ
KU
LL