Fréttablaðið - 19.05.2004, Page 38
30 19. maí 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ KVIKMYNDIR
„Frábært!
Ég var í fyrra og ætla aftur í sumar!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
ÓDÝRT
Stálhillur
í fyrirtæki
og heimili
Stálhillur
Stærð:
D: 40 cm
B: 100 cm
H: 200 cm
5 hillur
kr. 8.765,-
Næsta bil
kr. 6.125,-
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
en gott
Við bjóðum
14
34
/
TA
K
TÍ
K
n
r.
40
A
Eldri borgarar
Hin sívinsæla 8 daga hringferð um
Norðausturland 21.-28. júní nk.
Reykjavík - Hornafjörður -
Breiðdalsvík - Egilsstaðir - Mjóifjörður
- Kárahnjúkar - Norðfjörður -
Raufarhöfn - Hljóðaklettar -
Dettifoss - Akureyri - Kjölur - Reykjavík
VERÐ AÐEINS KR. 71.000
Innifalið í verði: Gisting, kvöldverður,
morgunverður og nesti.
Skráningar þurfa að berast
fyrir 20. maí í síma 892 3011
FERÐAKLÚBBUR ELDRI BORGARA
HANNES HÁKONARSON.
ALLIR ELDRI BORGARAR VELKOMNIR.
Það virðist vera mannkyninueðlislægt að rjúka í stríð af og
til og menn hafa í gegnum árþús-
undin, og eru enn, verið tilbúnir
til að salla niður náunga sína fyrir
völd, land, heiður og hetjuljóma.
Það er því sjálfsagt ekkert galið
að senda þúsundir út í opinn dauð-
ann og jafna stórborg við jörðu
vegna ástar og afbrýðisemi. Ein-
hverjir eru líklega á þeirri skoðun
að slíkt sé síst verri málstaður en
týnd gereyðingarvopn og þeir
bræður Menelás, konungur
Spörtu, og Agamemnon Mýkenu-
konungur myndu líklega fylla
þann flokk enda hikuðu þeir ekki
við að senda gervallan her
Grikkja til Spörtu þegar París
Trójuprins rændi eiginkonu þess
fyrrnefnda.
Frásögnin af bardaganum sem
fylgdi í kjölfarið hefur lifað góðu
lífi í 3.000 ár í Ilíonskviðu Hómers
en kviðan er ásamt Ódysseifs-
kviðu einn helsti hornsteinn vest-
rænna bókmennta. Kviðunni er
síðan ætlað það hlutverk í ár að
verða hornsteinn bíósumarsins en
í dag frumsýna Sambíóin risa-
myndina Troy sem byggir á þess-
um fornu hetjuljóðum Hómers.
Það er þýski leikstjórinn Wolf-
gang Petersen sem tók að sér það
vandasama verk að koma ódauð-
legum hetjum Grikklands hins
forna á filmu og hvergi var til
sparað. Töffarinn Brad Pitt var
fenginn til að leika hetjuna Akk-
illes sem leiddi árásarstríð
Grikkjanna og Eric Bana, sem
gerði það gott sem græni risinn
Hulk, leikur höfuðandstæðing
Akkillesar, Hektor Trójuprins.
Breski sjarmörinn Orlando Bloom
fer svo með hlutverk Parísar,
yngri bróður Hektors og örlaga-
valdsins sem kemur stríðinu af
stað.
Barist fyrir fegurstu konu
heims
Ósköpin byrja þegar Hektor
mætir til veislu í nafni föður síns,
Príams Trójukonungs, til Menel-
ásar í Spörtu. Tilgangur veislunn-
ar er að binda enda á áralangan
ófrið á milli Spörtu og Tróju en
ekki vill betur til en svo að París
læðist í dyngju Helenu fögru
(Diane Kruger) Trójudrottningar,
heillar hana og nemur á brott.
Hektor veit ekkert um afglöp
bróður síns fyrr en um seinan en
þá eru örlög þeirra og heimaborg-
arinnar innsigluð þar sem Grikkir
sameinast allir í herleiðangri til
að endurheimta Helenu.
Petersen segir að síðustu 3.000
ár hafi enginn rithöfundur lýst
stríðshryllingi á jafn myndrænan
og nákvæman hátt og Hómer en
telur þó að fyrir nútímaáhorfend-
ur verði sagan fyrst og fremst að
snúast um persónurnar til þess að
hún komist til skila. „Í verkum
hans er mannlegi þátturinn í
skugga miskunnarleysisins,“ seg-
ir Petersen. „Áhorfendur verða að
upplifa atburðina í gegnum líf og
ástríður fólks af holdi og blóði
sem er fast í þessari hrottalegu
hringiðu.“
Saga Hómers er vitaskuld ekki
sígild fyrir ekki neitt og hlutirnir
eru flóknari en svo að menn séu
ýmist algóðir eða alvondir og þó
að stríðið virðist í fljótu bragði
fyrst og fremst snúast um heiður
og sæmd búa öllu lægri hvatir að
baki blóðþorsta lykilmanna.
Turnarnir tveir
Þetta varpar þó ekki veruleg-
um skugga á hetjuljómann og þeir
Hektor og Akkilles eru báðir
gegnheilir töffarar og þeir menn
sem örlög allra annarra velta á.
Hektor er glæsilegur foringi en
þrátt fyrir það virðist eldmóður
hans ekki geta haldið aftur af
Akkillesi sem keyrir her sinn
áfram af heilmiklum djöfulgangi.
Akkilles er hins vegar hið
mesta ólíkindatól og Agamemnon
kemst að raun um það að það er
síður en svo gott að treysta hon-
um. Þegar hetjan fer í fýlu og
neitar að berjast hallar líka held-
ur betur undir fæti hjá Grikkjum.
Spennan magnast síðan jafnt og
þétt þar til magnaðs lokauppgjörs
kappanna kemur.
Þegar upp er staðið eru það þó
ekki aflsmunir og töffaraskapur
sem ráða úrslitum þar sem það
kemur í hlut hins ráðagóða Ódyss-
eifs að snúa á Trójumenn með
klækjabrögðum eftir að strend-
urnar við Tróju hafa verið baðað-
ar blóði þúsunda hermanna.
thorarinn@frettabladid.is
Það er ekki svo langt á millihinnar 3.000 ára gömlu frá-
sagnar Hómers af Trójustríðinu
og hasarmynda nútímans og það
er óhætt að segja að kappar á borð
við Rambo og James Bond eru
óttalegar kerlingar í samanburði
við hinn goðumlíka Akkilles sem
Grikkir tefla fram gegn Tróju-
mönnum í Ilíonskviðu.
Akkilles er hrokafullur upp-
reisnarseggur sem leggur engum
málstað lið af hugsjón þar sem
allar gjörðir hans miðast við það
eitt að auka hróður sinn sem
stríðshetju og öðlast ódauðleika á
spjöldum sögunnar. Þetta ætlun-
arverk tókst honum ágætlega þar
sem sjálfur Brad Pitt hefur nú
verið fenginn til að leika kappann
þúsundum ára eftir að hetjusög-
urnar af honum spurðust fyrst út.
Sagan segir að Akkilles hafi
verið nánast ódauðlegur þar sem
móðir hans, gyðjan Þetis, dýfði
honum ofan í undirheimafljótið
Styx í þeim tilgangi að gera hann
ódauðlegan. Hún klikkaði hins
vegar á því smáatriði að hún hélt
um hæl Akkillesar litla og skildi
þar með eftir veikan blett á hetj-
unni. Allir sem eru komnir til vits
og ára vita síðan að hællinn átti
eftir að verða ofurmenninu að
falli þegar leikar stóðu sem hæst
við borgarmúra Tróju.
Wolfgang Petersen, leikstjóri
Troy, segir að það hafi verið lykil-
atriði að finna réttan mann í hlut-
verk Akkillesar og er sáttur við að
hafa sett allt sitt traust á Brad
Pitt.
„Brad hefur bæði hæfileika og
sjarma til þess að gera Akkilles að
trúverðugum stríðskappa og dríf-
andi leiðtoga án þess að svipta
hann öllum mannlegum eiginleik-
um umleið.“ Allt er þetta gott og
blessað en líkurnar á því að Pitt
geti bjargað Akkillesi undan bölv-
un hælsins eru hverfandi. ■
Ansans Akkillesarhællinn!
AKKILLES
Brad Pitt leikur eina nafntoguðustu stríðs-
hetju heimsbókmenntanna í stórmyndinni
Troy en Akkilles hefði verið ósigrandi ef
ekki hefði verið fyrir ansans hælinn.
TRÓJUHESTURINN
Það herbragð hins ráðagóða Ódysseifs að smygla grískum hermönnum inn fyrir borg-
armúra Tróju í risastórum hesti verður varla leikið eftir þar sem það hefur verið á allra
vitorði síðan þá að mönnum ber að varast Grikki og þær gjafir sem þeir færa.
PARÍS
Orlando Bloom leikur Trójuprinsinn sem
hrindir af stað styrjöld þegar hann heillar
Helenu fögru upp úr skónum og rænir henni
frá Menelás, konungi Spörtu. Sá leitar til
Agamemnons bróður síns í Mýkenu og í
kjölfarið ráðast Grikkir með offorsi á Tróju.
Kviður Hómers bergmála í bíó