Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 6
6 5. mars 2004 FÖSTUDAGURVeistusvarið? 1Fyrrverandi kosningastjóri og fram-bjóðandi Frjálslynda flokksins sagði skilið við flokkinn á dögunum. Hvað heitir sá ? 2Knattspyrnufélagið Fram flytur úrSafamýrinni á næstu árum, en hvert? 3Hver er utanríkisráðherra Noregs? Svörin eru á bls. 55 SKIPULAGSMÁL Þórólfur Árnason borgarstjóri telur margt mjög gott í þeim hug- myndum sem hópur öflugra fjárfesta hefur kynnt til að efla miðbæjarsvæðið við Reykjavíkurhöfn þar sem fyrirhugað er að reisa tón- listar- og ráðstefnuhús. Hann segist ekki hræddur við að efla verslun og við- skipti á svæðinu. „Það hafa margir hrokk- ið við þegar þeir heyra orð- ið verslunarmiðstöð tengt miðbænum. Það er hins vegar verið að tala um mest fimmtán þúsund fer- metra miðstöð í þessu sam- bandi, sem er um þriðjung- ur Kringlunnar. Slík mið- bæjarverslun gæti hentað mjög vel að ferðamennsku og tónlistar- og ráðstefnu- húsi og að íbúðabyggð á svæðinu,“ segir Þórólfur, en fjárfestahópurinn hefur óskað eftir samstarfi við borgina um hönnun skipu- lagshugmynda ■ Vinnuálag í kjölfar uppsagna Uppsagnir 105 íslenskra starfsmanna varnarliðsins hafa nú tekið gildi. Þegar má sjá dæmi þess að fólk hafi þurft að flytjast á brott úr sveitarfélaginu vegna atvinnuleysis. Starfsmenn sem eftir standa að kikna undan vinnuálagi. Íslenskum starfsmönnum fækkað um 300 frá árinu 1990. VARNARLIÐIÐ Uppsagnir á 105 ís- lenskum starfsmönnum varnar- liðsins tóku gildi 1. mars síðast- liðinn og segir Kristján Gunnars- son, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, að þegar sé orðið vart við fjölgun á atvinnuleysisskrá í sveitarfélag- inu. Hann segir að almennt sé dapurt hljóð í því fólki sem sagt var upp enda ekki um auðugan garð að gresja á vinnu- markaðinum á þessum slóðum. Flest þeirra sem sagt var upp er fólk á miðjum aldri og veit hann þegar nokkur dæmi þess að fólk hafi flust á brott í atvinnuskyni. Kristján segir jafnframt að allt hafi verið reynt til þess að koma í veg fyrir uppsagnirnar en nú sé vel fylgst með því hvernig fyllt sé í skarð hinna brottföllnu. „Þeim störfum sem lögð voru niður hef- ur verið bætt á þá sem eftir eru enda var því heitið að Bandaríkja- menn yrðu ekki látnir ganga í stöður þeirra sem sagt var upp. Ekki hefur þó verið staðið fylli- lega við þetta loforð og héldum við fund með utanríkisráðherra 16. febrúar síðastliðinn þar sem við bentum á það“, segir hann. Kristján segir ennfremur að stærsta vandamálið sé nú að fólk sem eftir stendur sé að kikna undan vinnuálagi vegna of harka- legrar fækkunar starfsfólks. „Mikil fækkun var á starfsfólki í mötuneyti varnarliðsins og nú er svo komið að starfsfólk hefur alls ekki undan því sem sinna þarf. Stjórnendur hafa þurft að grípa til þess ráðs að biðja fólk um að vinna aukna yfirvinnu og er mik- ið álag og streita að koma fram hjá starfsfólkinu í kjölfar þess.“ Hann bendir á að hann hafi fund- að með trúnaðarmanni starfs- fólks mötuneytisins í gær í því skyni að leita lausnar á vandan- um. Ekki fengust viðbrögð frá talsmönnum varnarliðsins vegna þessa máls. Frá því árið 1990 hefur íslensk- um starfsmönnum varnarliðsins fækkað úr 1.086 í 785, eða um 300. Á sama tíma hefur hermönnum fækkað úr 3.294 í 1.889, eða um 42%, mest á árunum 1990–1994 vegna fækkunar í flughernum, að sögn Friðþórs Eydals, upplýsinga- fulltrúa varnarliðsins. Fækkunin stafaði meðal annars vegna brott- flutnings ratsjárflugvéla og fækkun orrustuþotna svo og fækkun eftirlitsflugvéla flotans. Fækkun frá 1994 stafar af frekari fækkun í flughernum í framhaldi af samkomulagi þar um og fækk- un í eftirlitsflugsveit flotans og lokun fjarskiptastöðva. sda@frettabladid.is SKIPULAGSMÁL Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddviti D- lista í borgarstjórn, segir hugmyndir um þróun miðbæjarins í grennd við Reykjavíkurhöfn já- kvæðar og hann telur vel hægt að byggja á þeim tillögum sem þegar hafi verið kynntar. „Til þess að koma þessu á framkvæmdastig þarf áhuga fjárfesta og ég fagna því að eins öfl- ugir fjárfestar og raun ber vitni hafi lýst áhuga sínum á að koma að upp- byggingu á svæðinu. Ég hef lengi sagt að til þess að efla verslun í mið- borginni þá verði að koma þar lítill eða með- alstór verslunarkjarni og hann þarf ekki að vera í ósamræmi við það umhverfi sem menn búa við. Þetta hefur tek- ist mjög vel í borgum víða í Evrópu,“ segir Vilhjálmur. ■ LAXAFLÖK 590 KR/KG SKÖTUSELSHALAR 990 KR/KG LÚÐA 990 KR/KG FISKBÚÐIN HAFBERG G N O Ð A R V O G I 4 4 S . 5 8 8 8 6 8 6 ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Segir marga hrökk- va við þegar þeir heyri orðið „verslunarmiðstöð“ tengt miðbænum. Oddviti D-lista í borgarstjórn: Verslunarkjarni eflir miðborgina Þórólfur Árnason borgarstjóri um miðbæjarhugmyndir: Verslunarmiðstöð gæti hentað GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71.42 -0.07% Sterlingspund 130.55 -0.41% Dönsk króna 11.68 0.34% Evra 87.01 0.33% Gengisvísitala krónu 121,-1 -0,13% Kauphöll Íslands Fjöldi viðskipta 589 Velta 8.282 milljónir ICEX-15 2.564 0,71% Mestu viðskiptin Pharmaco hf. 517.652 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 325.031 Landsbanki Íslands hf. 197.028 Mesta hækkun Flugleiðir hf. 4,93% Medcare Flaga 4,90% Fjárfestingarfélagið Atorka hf. 4,42% Mesta lækkun Hampiðjan hf. -3,33% Kögun hf. -1,48% Og fjarskipti hf. -0,91% Erlendar vísitölur DJ* 10.583,2 -0,1% Nasdaq* 2.042,3 0,4% FTSE 4.555,1 0,7% DAX 4.132,7 1,5% NK50 1.441,1 0,1% S&P* 1.151,3 0,0% * Bandarískar vísitölur kl. 17. AÐSETUR VARNARLIÐSINS Á MIÐNESHEIÐI Uppsagnir íslenskra starfsmanna hafa tekið gildi. Mikið álag á mörgu því starfsfólki sem eftir er. 1990 2004 sumarlok hermenn íslenskir starfsmenn 3.294 2.149 882 1.924 910 1.669* * Eftir fyrirhugaðan brottflutning hermanna. 785 1.086 MANNAFLI Á KEFLAVÍKURVELLI Fjöldi varnarliðsmanna hefur breyst eins og línuritið sýnir á undanförnum árum. VILHJÁLMUR VIL- HJÁLMSSON Oddviti sálfstæðis- manna fagnar því að öflugir fjárfestar vilji koma að þróun miðbæjarins. „Þeim störf- um sem lögð voru niður hefur verið bætt á þá sem eftir eru. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Svar ráðherra um eignir lífeyrissjóða árið 2002 : Námu 684 milljörðum ALÞINGI Heildareignir lífeyrissjóða hér á landi námu rúmlega 684 millj- örðum króna árið 2002, samkvæmt svari fjármálaráðherra við fyrir- spurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Sjálfstæðisflokki. Það er hækkun upp á 36 milljarða frá árinu á und- an, og hækkun upp á 115 milljarða frá árinu 2000. Eignir lífeyrissjóða voru 88% sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Það er mun hærra hlutfall en hjá flestum öðrum OECD-löndum, en hjá aðeins tveim- ur löndum er hlutfallið hærra en hér, Hollandi og Sviss. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.