Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 10
10 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
BLAIR LENDIR Í RÓM
Forsætisráðherra Breta gengur út úr flug-
vél á Ciampino-flugvellinum í Róm. Tony
Blair fór í eins dags heimsókn til Ítalíu til
að ræða við starfsbróður sinn
Silvio Berlusconi.
Hæstiréttur:
Staðfesti átján mánaða fangelsi
DÓMUR Hæstiréttur staðfesti í gær
átján mánaða fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir varn-
arliðsmanninum John Edwin
Rehm III, en hann var ákærður
fyrir tilraun til manndráps í Hafn-
arstræti 1. júní í fyrra. Hæstirétt-
ur vísaði hins vegar bótakröfu
þess sem var stunginn frá þar
sem hún gekk út frá því að Rehm
III hefði valdið öllu tjóni hans en í
málinu taldist ósannað að svo
hefði verið.
Dómnum þótti ljóst að ákærði
hefði ekki staðið einn að verknað-
inum en engu að síður þótti atlaga
hans stórhættuleg og aðeins hend-
ing ráðið að ekki fór verr.
„Miðað við þá niðurstöðu dóm-
aranna að hann hafi farið út fyrir
mörk leyfilegrar neyðarvarnar þá
er refsingin í eðlilegu samræmi
við það. Undir venjulegum kring-
umstæðum, ef engar varnir hefðu
komið fram í málinu, hefði mátt
búast við rúmlega þriggja ára
dómi,“ sagði Sveinn Andri Sveins-
son, lögmaður varnarliðsmanns-
ins, eftir dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur. ■
LÖGMENN „Þrátt fyrir að meirihluti
útskrifaðra lögfræðinga séu konur
virðast þær hvorki skila sér í lög-
mannsstétt né haldast þar lengi
við,“ segir Sif Konráðsdóttir, ný-
kjörinn formaður Félags kvenna í
lögmennsku sem stofnað var í gær.
Félagið verður aðili að Lögmanna-
félagi Íslands, en Sif segir stjórn
Lögmannafélagsins ekki hafa
brugðist nægjanlega við þessu mis-
ræmi þó svo að félög á hinum Norð-
urlöndunum hafi þegar viðurkennt
það sem vandamál.
Hún segist ekki hafa haldbærar
skýringar á því hvers vegna konur í
lögmennsku séu ekki í réttu hlut-
falli við útskriftarhópa lögfræð-
inga. „Hugsanlega gæti það stafað
af skorti á fyrirmyndum og yrði eitt
af markmiðum félagsins því að gera
konur í lögmennsku sýnilegri auk
þess að kynna starfið betur fyrir
konum. Lögfræði er ekki karlafag.
Hins vegar er lögmannsstéttin
karlastétt því konur virðast leita í
önnur störf innan lögfræðinnar,“
segir hún.
Sif bendir á að fleiri konur í lög-
mannsstéttinni myndi styrkja stétt-
ina í heild. Hún segir það sýnt að
nauðsynlegt sé að byggja upp inn-
byrðis tengslanet fyrir konur í stétt-
inni til þess að styrkja stöðu þeirra
enda verði félagið vettvangur til
þess.
Ingimar Ingason, framkvæmda-
stjóri Lögmannafélags Íslands, seg-
ir að félagið fagni þessu frumkvæði
og verði tillaga lögð fyrir næsta að-
alfund félagsdeildar Lögmanna-
félagsins þar sem hagsmunafélög-
um lögmanna verði almennt leyfð
Flottur sími með myndavél
og endalausum möguleikum.
Einn með öllu
3.980
Léttkaupsútborgun
Sony Ericsson Z600
og 2.000 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 27.980 kr.
Sony Ericsson Z600
• Innbyggð myndavél.
• Þriggjabanda
- 900/1800/1900 GSM.
• Litaskjár.
• Skiptanlegar framhliðar.
• MMS.
• GPRS.
• WAP.
• 98,3 gr.
• Pólýtónar o.fl.
• Tölvupóstur og dagbók.
• Leikir.
• Raddskipun.
• Mótald.
• Bluetooth, þráðlaus tenging.
• Reiknivél, skeiðklukka, niðurteljari
og vekjaraklukka.
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum.
Morðingi Önnu Lindh:
Vitni í öðru
morðmáli
STOKKHÓLMUR, AP Sænska lögreglan
hyggst yfirheyra Mijailo
Mijailovic, morðingja Önnu Lindh
fyrrverandi utanríkisráðherra
Svíþjóðar, vegna morðs sem var
framið árið 2002. Þá var nær átt-
ræður maður stunginn til bana í
einu úthverfa Stokkhólms.
Mijailo Mijailovic er yfirheyrð-
ur þar sem hann hafði sagt vinum
sínum að hann hefði framið morð
áður en hann myrti Önnu Lindh og
að hann hafi verið í nágrenninu
vopnaður hnífi þegar morðið átti
sér stað.
Sænska lögreglan segir að
Mijailovic liggi ekki undir grun en
til að fá málin á hreint þurfi að
ræða við hann.
Búist er við dómsúrskurði vegna
morðsins á Lindh 23. mars eftir að
niðurstöður geðrannsóknar á
Mijailovic liggja fyrir. ■
STEFNIR Í SIGUR LÝÐFLOKKSINS
Lýðflokkurinn, flokkur Jose
Maria Aznar frá-
farandi forsætis-
ráðherra Spánar,
verður stærsti
flokkurinn að
loknum þing-
kosningum 14.
mars samkvæmt
tveimur nýjum skoðanakönnun-
um. Litlu má þó muna hvort
flokkurinn haldi meirihluta sín-
um á þingi. Aznar gefur ekki kost
á sér til endurkjörs.
PÁFI Í FERÐAHUG Til greina kem-
ur að Jóhannes Páll páfi annar
fari til Sviss í byrjun júní. Hann
hefur haldið sig á Ítalíu eftir ferð
hans til Slóvakíu í september í
fyrra. Þá þótti páfi afar veiklu-
legur og veltu menn fyrir sér
hvort 102. utanlandsferð hans frá
því hann tók við embætti yrði
einnig sú síðasta.
JOHN EDWIN REHM III
Hæstiréttur vísaði
bótakröfu frá dómi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ Evrópa
Konur forðast
lögmannsstörf
Fleiri konur en karlar hafa útskrifast úr lögfræði á undanförnum áratug
en konur skila sér ekki í lögmannsstéttina í hlutfalli við það. Lögmanns-
félög á hinum Norðurlöndunum hafa þegar brugðist við þessu misræmi.
SIF KONRÁÐSDÓTTIR
Segir konur sem útskrifast úr lögfræði
ekki skila sér í lögmannsstétt.
Félag Abramovits:
Rukkað um
milljarð
RÚSSLAND Rússneski skatturinn hef-
ur krafið Sibneft, olíufélag Romans
Abramovits, eiganda Chelsea, um
vangoldna skatta að andvirði rúmra
70 milljarða króna. Athugasemdir
hafa ekki verið gerðar við skattskil
Abramovits sjálfs.
Rússnesk stórfyrirtæki hafa
lengi verið sökuð um að greiða mun
lægri skatta en þeim ber að gera.
Ekki er langt síðan olíufélagið
Yukos, sem til stóð að sameinaðist
Sibneft, var rukkað um þrefalda þá
upphæð sem Sibneft er nú rukkað
um. Talsmenn Sibneft neita því
alfarið að nokkuð sé vafasamt við
skattagreiðslur fyrirtækisins. ■