Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 12
12 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
PRÓFA BÚNINGANA
Þessar ísraelsku stúlkur mátuðu grímu-
búninga í miðborg Jerúsalem í gær. Á
sunnudag og mánudag er hátíðin Purim
haldin meðal gyðinga og þess minnst þeg-
ar gyðingar björguðust frá þjóðarmorði í
Persíu til forna.
FÉLAGAFRELSI Hrafnhildur Stefáns-
dóttir, yfirlögfræðingur Samtaka
atvinnulífsins, telur að endurskoða
þurfi lagaákvæði um valdsvið
félagsdóms í kjölfar þess að Hæsti-
réttur komst að þeirri niðurstöðu að
hann væri óbær til þess að skera úr
um ágreiningsefni sem rísa vegna
úrskurða félagsdóms.
Í grein á vefsíðu Samtaka
atvinnulífsins segir Hrafnhildur frá
máli sem rekið var fyrst fyrir
félagsdómi um hvort vinnuveitenda
beri að virða forgangsréttarákvæði
kjarasamninga þegar um uppsagnir
sé að ræða þannig að þeim sé fyrst
sagt upp sem ekki eru meðlimir í
stéttarfélagi.
Félagsdómur komst að þeirri
niðurstöðu að fyrirtækjum bæri að
virða ákvæðið hvort sem væri við
ráðningar eða uppsagnir. Fyrirtæk-
ið sem kært var áfrýjaði málinu til
héraðsdóms þar sem úrskurði
félagsdóms var hnekkt. Málinu var
svo skotið til Hæstaréttar sem taldi
sig ekki geta fjallað efnislega um
málið þar sem dómar félagsdóms
séu endanlegir samkvæmt lögum.
„Félagsdómur hefur þannig end-
anlegt úrskurðarvald um túlkun á
félagafrelsisákvæðum stjórnar-
skrár þegar meta þarf áhrif þeirra á
efni kjarasamninga. Niðurstaðan í
slíkum málum verður ekki endur-
skoðuð á æðra dómstigi. Draga
verður í efa að slík skipan sé rétt-
lætanleg þegar um er að ræða mál
sem ekki krefjast skjótrar úrlausn-
ar og varða mikilsverða hagsmuni,“
segir í grein Hrafnhildar.
Hrafnhildur telur að í túlkun
félagsdóms á forgangsréttarákvæð-
um kjarasamninga kunni að fela í
sér brot á félagafrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar og nefnir að
nefnd Evrópuráðsins hafi ítrekað
gagnrýnt forgangsréttarákvæði
kjarasamninga og talið þau brjóta
gegn félagsmálasáttmála Evrópu. ■
Björn Bjarnason er
enginn Bruce Willis
Fast er skotið á dómsmálaráðherra vegna hugmynda hans um að efla sérsveit lögreglunnar.
Aðdáandi Die Hard á að fá einkennisbúning til að nota heima segir Helgi Hjörvar.
Verið að efla öryggi borgaranna segir ráðherra.
ALÞINGI Hugmyndir Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra
um breyttar áherslur í löggæslu-
málum voru til
umræðu utan
dagskrár á Al-
þingi í gær. Ög-
mundur Jónas-
son, Vinstri
grænum, gagn-
rýndi 250 millj-
óna króna
kostnað vegna
eflingu sérsveit-
ar lögreglunnar
og sagði verið
að undirbúa
stofnun ís-
lenskrar leyni-
þjónustu.
„Í stað áherslu á forvarnir og
almennrar löggæslu beina menn
nú kröftum sínum að því að efla
vígvæddar löggæslusveitir og
hafa eftirlit með borgurunum í
þeim anda sem boðaður hefur
verið á Vesturlöndum, undir for-
merkjum stríðs gegn hryðjuverk-
um,“ sagði Ögmundur.
Björn sagði verið að bregðast
við nýjum hættum sem steðja að
íslensku þjóðfélagi. Ræða yrði
um kostnað vegna sérsveitarinn-
ar við afgreiðslu fjárlaga og því
ástæðulaust að láta eins og farið
væri fram hjá Alþingi.
„Það er nauðsynlegt að efla
sérsveit lögreglunnar til að
treysta öryggi hins almenna lög-
reglumanns og þar með almennt
öryggi í landinu. Að höfðu sam-
ráði við forystumenn lögreglunn-
ar var ákveðið að fara þá leið sem
ég hef kynnt. Eldri skipan sér-
sveitarmála hefur komið niður á
almennri löggæslu, en hún mun
styrkjast við þessa aðgerð. Það er
ekki verið að stofna íslenskan her
eða leyniþjónustu,“ sagði Björn.
Dagný Jónsdóttir, Framsókn-
arflokki, fagnaði breyttum
áherslum í löggæslumálum
landsins og sagði breytingarnar
tímabærar. Hún sagði brýnt að
efla sérsveit lögreglunnar og um
leið almenna löggæslu. Einar
Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagðist ekki draga í efa
rök ráðherra fyrir málinu, en
minnti á að þegar fjárlagafrum-
varpið var lagt fram hefði mark-
miðið verið að stemma stigu við
samneyslu í þjóðfélaginu og það
væri stóra verkefni ríkisstjórn-
arinnar á næstu árum. „Ég vona
að það mál sem hér er til umræðu
verði ekki til þess að menn slaki á
aðalverkefninu,“ sagði Einar
Oddur.
Helgi Hjörvar, Samfylking-
unni, gagnrýndi forgangsröðun
dómsmálaráðherra og sagði auk-
inn vopnabúnað lögreglunnar
kalla á aukna hörku í glæpaheim-
inum.
„Dómsmálaráðherra hefur
lýst því yfir að uppáhaldskvik-
mynd hans sé Die Hard, en þar
bjargar hetjan hundruðum úr
klóm hryðjuverkamanna. Þetta
er hins vegar Ísland í dag, en
ekki Die Hard, og herra Björn
Bjarnason, þér eruð enginn
Bruce Willis,“ sagði Helgi. Og
dómsmálaráðherra svaraði: „Mér
þykir miður ef skoðanir mínar á
kvikmyndum villa mönnum sýn“.
bryndis@frettabladid.is
„Eldri skip-
an sérsveitar-
mála hefur
komið niður á
almennri lög-
gæslu, en
hún mun
styrkjast við
þessa aðgerð.
ILLA FARIÐ AF ELDI
Stórir hlutar klaustursins á Athosfjalli nyrst
í Grikklandi urðu illa úti í eldinum.
Fornt klaustur brennur:
Verulegar
skemmdir
GRIKKLAND, AP Eldur olli veruleg-
um skemmdum á Helandariou-
klaustrinu á Athosfjalli í Norður-
Grikklandi í fyrrinótt en engar
skemmdir urðu á trúarlegum
táknum í klaustrinu. Í klaustrinu,
sem byggt var á miðöldum, eru
geymdir margir fornir munir,
þeir elstu frá því á 14. öld.
Í klaustrinu búa 25 serbneskir
munkar. Þeim tókst að bjarga
fjölda trúarlegra muna frá eldin-
um og sluppu sjálfir við meiðsl.
Talsverðar skemmdir urðu á
klaustrinu í tveimur eldsvoðum á
öldum áður, einum árið 1722 og
hinum árið 1896. ■
HEIMAHJÚKRUN Stjórn Félags ís-
lenskra heimilislækna lýsir yfir
áhyggjum vegna deilu Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík og starfsfólks
heimahjúkrunar sem leitt hefur til
uppsagnar fjölda starfsfólks. Í
ályktun heimilislækna segir að
ástandið bitni augljóslega á sjúk-
lingum heimahjúkrunar sem muni
ekki fá þjónustu eins og áður fyrir
utan að lifa í óvissu um nauðsynlega
umönnun.
Þá segir að hjúkrun í heimahús-
um sé þjónusta sem oft skapar
möguleika fyrir fólk að útskrifast
fyrr og dvelja lengur heima en ella
með tilheyrandi sparnaði á sjúkra-
stofnunum. Félag íslenskra heimil-
islækna hvetur málsaðila til að
leysa deiluna hið fyrsta með þarfir
skjólstæðinga heimahjúkrunar í
huga. ■
AUSTURRÍSK GLÆPASAMTÖK
Austurríska lögreglan hefur
handtekið 33 menn sem grun-
aðir eru um aðild að skipulögð-
um glæpasamtökum sem
versluðu með eiturlyf og kúg-
uðu fé út úr fólki. Lagt var
hald á yfir 800 e-töflur, 280
grömm af maríjúana, skotvopn
og eina handsprengju þegar
gerð var húsleit á heimilum
mannanna.
Heimahjúkrunardeilan:
Heimilislæknar uggandi
BJÖRN BJARNASON
Dómsmálaráðherra hlustar á umræður um breyttar áherslur í löggæslumálum á Alþingi í
gær. Hann var gagnrýndur af stjórnarandstöðunni vegna hugmynda sem hann hefur kynnt
um eflingu sérsveitar lögreglunnar. „Ekki verið að stofna íslenskan her,“ sagði Björn.
FB
-M
YN
D
G
U
N
N
AR
V
. A
N
D
RÉ
SS
O
N
Samtök atvinnulífsins um félagafrelsi:
Breyta þarf lögum
um félagsdóm
GENGIÐ Á 1. MAÍ
Yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins telur að ákvæði í kjarasamningum og túlkun
félagsdóms á þeim kunni að jafngilda skerðingu á félagafrelsi fólks.
■ Evrópa