Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 22

Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 22
Gamanleikarinn John Belushifannst látinn á hótelherbergi á þessum degi árið 1982. Við krufn- ingu fannst mikið magn heróíns og kókaíns í líkama hans og því þótti ljóst að hann hefði dópað sig í hel. Belushi öðlaðist vinsældir eftir að hann gekk til liðs við sjónvarps- þáttinn Saturday Night Live árið 1975. E i t u r l y f j a - neysla hans jókst í jöfnu hlutfalli við vin- sældirnar og náði hámarki upp úr 1980 en k ó k a í n n e y s l a var sjálfsagður f y l g i f i s k u r s k e m m t a n a - bransans á þessum árum. Eiginkona hans og vinir höfðu þungar áhyggjur af neyslu hans en hann lofaði statt og stöðugt að taka sig á og hætta og þau fyrirheit voru enn í fullu gildi þegar hann lést. ■ Þetta er búið að vera rosalegtævintýri,“ segir Garðar Cortes tenórsöngvari, sem fyrir þrjátíu árum stofnaði Söngskólann í Reykjavík. Hann hefur einnig verið skólastjóri þar frá upphafi. Söngskólinn heldur upp á þrí- tugsafmælið með heljarmiklum tónleikum í Háskólabíói í kvöld en þeir verða síðan endurteknir á morgun. Starfsemi Söngskólans hefur vaxið jafnt og þétt á þessum þrjá- tíu árum. Garðar rak hann sem einkastofnun til ársins 1978. Skól- inn starfaði síðan í eigin húsnæði að Hverfisgötu 45 þangað til haustið 2002 þegar öll starfsemi hans fluttist í glæsilegt og rúm- gott húsnæði að Snorrabraut 54. „Þetta er eins og hljómkviða sem eykst alltaf og sífellt koma sterkari og skýrari hljómar. Við sendum frá okkur fleiri og fleiri söngvara og þeir ná lengra og lengra.“ Á tónleikunum í Háskólabíói koma fram söngvararnir Krist- inn Sigmundsson, Elín Ósk Ósk- arsdóttir, Eivör Pálsdóttir, Ólaf- ur Kjartan Sigurðarson og Snorri Wium ásamt upprennandi söngvurum úr óperudeild skól- ans. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur með og einnig syngja bæði Óperukórinn í Reykjavík og kór núverandi nemenda Söng- skólans. „Eivör ætlar að sýna á sér nýj- ar hliðar þarna. Hún syngur tvær rosalega flottar aríur úr Carmina Burana. Svo er Kristinn æðisleg- ur í Nabucco, sem hefur aldrei verið flutt hérna áður.“ „Þegar Garðar kom heim frá námi fyrir 30 árum var til hér á landi vísir að söngkennslu en hvergi var nein stofnun sem sinnti söngnum sem aðalfagi,“ segir Ásrún Davíðsdóttir, aðstoð- arskólastjóri Söngskólans í Reykjavík, sem hefur verið í skól- anum allt frá stofnun, fyrst sem nemandi og síðar kennari. Við skólann starfa núna 32 kennarar og nemendafjöldinn er um 180. „Við höfum menntað um 40 söngkennara og munum halda því áfram,“ segir Ásrún. „Okkur telst líka til að núna séu milli 40 og 50 söngvarar frá okkur að syngja úti um allan heim sem atvinnusöngv- arar. Það finnst okkur bara býsna gott.“ ■ 22 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR ■ Andlát Í gær opnaði Halldór Blöndal,forseti Alþingis, nýja sýningu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í til- efni 100 ára afmælis heimastjórn- ar og þingræðis á Íslandi. Allt frá 1972 hefur verið sýn- ing í húsinu til minningar um ævi og störf Jóns Sigurðssonar, sem var endurgerð 1993. Húsið sjálft, sem er við Öster Voldgade 12, hef- ur verið í eigu Alþingis frá 1967 en í því bjuggu Jón og kona hans Ingibjörg Einarsdóttir frá 1852 þar til þau létust 1879. Á meðan Jón og Ingibjörg bjuggu í Jóns- húsi var það miðstöð sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar á 19. öld og var það jafnan opið gestum og gangandi. Einu sinni í viku var opið hús og þá söfnuðust Íslend- ingar í Kaupmannahöfn saman í stofum þeirra hjóna og nutu gest- risni þeirra. Í tilefni afmælis heimastjórnar og þingræðis var ákveðið að auka við sýninguna umfjöllun um sjálf- stæðisbaráttuna eftir lát Jóns og þá helstu áfangasigra sem síðar náðust eins og stofnun heima- stjórnar 1904, fullveldið 1918 og lýðveldið 1944. Auk þessa er bætt við lítilli sýningu um Ingibjörgu og hlut hennar í heimilishaldinu í húsinu í því herbergi sem hefur verið vinnuherbergi fræðimanns undanfarin ár og kallað hefur ver- ið eldhús Ingibjargar. Munir úr Safni Jón Sigurðssonar, sem Þjóð- minjasafn Íslands varðveitir, verða hafðir til sýningar í Jóns- húsi. Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur, sem meðal annars hefur skrifað ævisögu Jóns Sigurðsson- ar, hefur samið nýjan sýningar- texta og Björn G. Björnsson hann- aði útlit sýningarinnar. ■ NIKI TAYLOR Þessi ofurfyrirsæta sem hefur meðal annars skreytt forsíðu Sports Illustrated er 29 ára í dag. 5. mars ■ Þetta gerðist JOHN BELUSHI ■ Þessi skrautlegi gamanleikari lést úr ofneyslu eiturlyfja 33 ára gamall. 5. mars 1982 1534 Ítalski listamaðurinn Correggio deyr. 1558 Francisco Fernandes kynnir reyk- tóbak fyrir Evrópubúum. 1770 Breskir hermenn drepa fimm ný- lendubúa sem höfðu atyrt þá. At- burðurinn gengur undir nafninu Blóðbaðið í Boston. 1927 Bandarískir landgönguliðar koma til Kína í þeim tilgangi að standa vörð um eigur Bandaríkjamanna í borgarastyrjöldinni. 1946 Winston Churchill, forsætisráð- herra Bretlands, flytur hina þekktu Járntjaldsræðu sína. 1953 Sovétleiðtoginn Jósef Stalín deyr, 73 ára gamall. 1960 Elvis Presley gerist óbreyttur borg- ari eftir að hafa gegnt herþjón- ustu í tvö ár. 1963 Kántrísöngkonan Patsy Cline deyr í flugslysi. Sýning JÓNSHÚS Í KAUPMANNAHÖFN ■ Sýning opnuð í tilefni aldarafmæli heimastjórnar. Sýning í Jónshúsi stækkuð ■ Afmæli JÓN SIGURÐSSON Bjó ásamt konu sinni Ingibjörgu um árabil í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Í gær opnaði þar sýning sem sýnir sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar eftir lát hans. Jón Ormur Halldórsson stjórnmála- fræðingur er 50 ára í dag. Guðlaug Sveinsdóttir, Skipholti 21, Reykjavík, lést fimmtudaginn 19. febrú- ar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Halla Hersir, Miðtúni 3, Reykjavík, lést þriðjudaginn 2. mars. Hildur Kristjánsdóttir, frá Lundi, Varma- hlíð, Skagafirði, lést þriðjudaginn 2. mars. Hjördís Gunnarsdóttir, Garðavegi 15, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 2. mars. Tryggvi Jónsson, Sóltúni, Reykjavík, lést þriðjudaginn 2. mars. Í TILEFNI AF 90 ÁRA AFMÆLI MÍNU Með kæru þakklæti, Pétur Kr. Sveinsson Jökulgrunni 3 þann 28. febrúar 2004, sendi ég kærar þakkir, börnum mínum, tengdabörnum, afa- og langafabörn- um ásamt öllum þeim fjölda vina og kunningja sem glöddust með okkur hjónum og gerðu mér daginn ógleymilegan. ■ Jarðarfarir 10.30 Sigrún Ragnhildur Gústafsdóttir Engihjalla 1, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 13.30 Edda Loftsdóttir verður jarðsung- in frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 13.30 Elín Davíðsdóttir, Dalbraut 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju. 13.30 Guðmundur Benediktsson, Vögl- um, Eyjafjarðarsveit, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju. 14.00 Kristrún Þórðardóttir verður jarð- sungin frá Keflavíkurkirkju. Söngskólinn GARÐAR CORTES ■ stofnaði Söngskólann í Reykjavík fyrir þrjátíu árum. Nú stunda hátt í 180 nemendur nám við skólann, bæði í kennaradeild og söngdeild. Haldið verður upp á afmælið með veglegum tónleikum í Háskólabíói. Á ÆFINGU Í HÁSKÓLABÍÓI Kristinn Sigmundsson og Eivör Pálsdóttir verða meðal söngvara á afmælistónleikum Söngskólans í Reykjavík í Háskólabíói í kvöld og annað kvöld. EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR Ég mundi vilja að leikritið Fimmstelpur.com mundi ganga næstu fimm árin, það er svo rosa- lega skemmtilegt. Það er mín helsta ósk.“ Eina ósk Stórafmælisveisla í tónum John Belushi deyr JOHN BELUSHI Varð háður kókaíni á frægðarbrautinni og sú fíkn dró hann til dauða. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.