Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 26
Fermingarveislan er fjölskyldu-og vinafagnaður hvort sem
veislan er stór eða smá í sniðum
enda er fermingardagurinn stór
dagur í lífi hverrar manneskju,“
segir Ingibjörg Ásta Pétursdóttir
veitingakona. Hún bendir á að
fermingin sé nokkurs konar
manndómsvígsla. „Þau verða eins
og eldri og þroskaðri frá og með
þessum tímamótum,“ segir hún.
Ingibjörg rekur veisluþjónust-
una Mensu og hefur matreiðslu-
manninn Hafþór Ólafsson sér við
hlið. Þau hafa séð um ótal ferm-
ingarveislur og þar koma ýmsar
útfærslur til greina. Kaffihlað-
borð með kökum og brauðmeti,
léttur hádegisverður með smá-
réttum og kökum eða kvöldverður
með heitum rétti og köku. Engar
tvær veislur eru eins. „Það mikil-
vægasta er að gestgjafarnir séu í
góðu skapi svo gestirnir finni sig
velkomna. Þar á eftir koma veit-
ingarnar og umhverfið,“ segir
Ingibjörg og heldur áfram: „Það
er eiginlega útilokað að hafa húsið
í toppstandi, fjölskylduna prúð-
búna, veisluborðið ómótstæðilegt
og vera sjálfur úthvíldur og
skemmtilegur gestgjafi. Því getur
verið gott að kaupa eða þiggja að-
stoð, hvort sem það er aðkeyptur
matur eða þjónusta meðan á veisl-
unni stendur.“
Ingibjörg gefur góðar hug-
myndir að veisluföngum og snar-
ar fram á borðið hinum ýmsu
kræsingum. Þar ber hæst kalkún
og um hann segir hún: „Íslenski
kalkúnninn er frábær. Fyllið hann
og smyrjið áður en hann er bakað-
ur í ofni í nokkra klukkutíma (45
mín. fyrir hvert kíló) við lágan
hita (175 gráður). Kælið, skerið
bringurnar af og raðið þeim upp
aftur, skreytið fuglinn og berið
fram með góðum kartöflurétti,
grænmeti og sósu. Bætið svo auka
kalkúnabringum við eftir þörf-
um.“ ■
26 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
Fermingarveislan mín var haldin í heima-húsi og boðið upp á kaffi og flottar tert-
ur. Móðir mín sá um þetta. Ég gæti trúað
að það hafi komið 30-40 manns. Fjölskylda
og vinir.
Jón Hilmar Jónsson.
Fermingar-veislan mín
• kjólar
• pils
• blússur
• toppur
• buxur
ótrúlegt úrval
Ferming í Flash
Ég fermdist á hvítasunnudag1964 í Grenivíkurkirkju, ásamt
fjórum jafnöldrum mínum. Ég á
heima í Laufássókn, en þar sem ég
var eina fermingarbarnið þar varð
það að niðurstöðu að ég fermdist á
Grenivík. Prestur var séra Jón
Bjarman. Ég hafði gengið til
spurninga, eins og það kallaðist, til
séra Óskars J. Þorlákssonar í
Reykjavík um veturinn, þar sem
ég var í Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Ég man að ferming-
arkjóllinn var saumaður
hjá saumakonu sem átti
heima við Nesveginn.
Eftir ferminguna var
veislukaffi heima á Lóma-
tjörn. Þar sem móð-
ir mín var þá lát-
in sáum við
systurnar um
að undirbúa
veisluna hvað
varðar bakstur
og þrif á húsinu. Móð-
ursystir okkar kom
tveim dögum fyrir ferm-
inguna og lagði lokahönd
á verkið. Ég man eftir
nokkrum gjöf-
um, t.d. úri
frá pabba,
sálmabók
frá föður-
systur minni, dúnsæng frá móður-
systur og fallegu gullhálsmeni
með rúbínsteini frá vinkonu
mömmu.
Þetta var ákaflega fallegur
dagur og ég kunni því ágætlega að
vera miðpunkturinn. ■
Ingibjörg í veisluþjónustunni Mensu:
Hátíðaskapið er
mikilvægast
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra:
Kunni því vel að vera
miðpunkturinn
GÓÐGÆTI Á VEISLUBORÐ
Ingibjörg hefur upp á ýmsar kræsingar að bjóða.
KALKÚNN MEÐ GRÆNMETISLENGJU
Matarmikill fugl.
ÁVAXTABÖKUR MEÐ BERJUM
Eplafylling er undir ávöxtunum sem gerir
bökurnar enn safameiri.
LITLAR VEISLUBÖKUR
Fylltar ýmist með fleski, tómötum, ólífum
eða lauk.
LAXARÚLLUR Á BRAUÐI
Litríkar og ljúffengar.
OSTABAKA OG SÍTRÓNUBAKA
MEÐ MARSIPAN
Fuglinn hefur hlutverki að gegna í miðj-
unni.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Sá sjálf um að undirbúa
veisluna, ásamt systrum
sínum.