Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 27
500 gr möndlumassi
4–5 eggjahvítur
Rífið möndlumassann gróft. Stífþeytið hvít-
urnar og blandið þeim varlega út í. Skiptið
deiginu í þrennt og breiðið hvern hluta fyrir
sig á plötur með smurðum og mjölbornum
bökunarpappír. Kökurnar eiga að vera um
20 cm á kant. Bakið í miðjum ofni í 15–20
mín. á 175 gráður. Kælið.
NÚGAT
1 1/2 dl sykur
3/4 dl möndluflögur
Bræðið sykurinn með möndlunum í þar til
hann er orðinn ljósbrúnn á pönnunni.
Hrærið í. Hellið á olíuborna eða smurða
plötu og látið kólna. Steytið síðan núgatið
með mortéli eða kefli.
SMJÖRKREM
2 dl vatn
2 mtsk. smjör
2 mtsk. hveiti
2 eggjarauður
250 g smjör
1 dl flórsykur
1 tsk. vanilla
Sjóðið vatnið með smjörinu. Hrærið hveit-
inu smátt og smátt í og hrærið þar til jafn-
ingurinn losnar við botn og sleif. Dragið
pottinn af eldinum og hrærið eggjarauð-
urnar í, aðra í senn. Látið kremið kólna.
Hrærið smjörið létt með flórsykrinum.
Setjið soðna kremið í smátt og smátt
og þeytið vel á meðan. Bragð-
bætið með núgati og vanil-
lu. Leggið botnana saman
með kreminu og breiðið
það ofan á og á hliðarnar.
TIL SKRAUTS
100–150 g marsipan
matarlitur
1/2 poki (35 g) möndluspænir
Litið marsipanið í þeim lit sem hæfa þykir
og fletjið það út. Skerið það í ræmur og
skreytið kökuna eftir smekk.
Ristið möndluspænina létt
í ofninum og stráið yfir.
Þessi kaka heldur sér
vel og upplagt er að
baka hana nokkrum
dögum fyrir veislu.
27FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
Borgaraleg ferming á vegumSiðmenntar verður í Háskóla-
bíói þann 4. apríl. Börnin koma
fram prúðbúin, flytja ávörp, ljóð
og sögur og spila á hljóðfæri og að
sögn Jóhanns Björnssonar heim-
spekings, sem hefur undirbúið
hópinn í vetur, er þetta jafnan há-
tíðleg stund. Jóhann hefur sjálfur
unnið að gerð námsefnis og kveðst
hafa fengið smástyrk úr Kristni-
hátíðarsjóði til verksins. „Við hitt-
umst tólf sinnum og fjöllum um
ýmis efni eins og fjölskylduna,
lífsviðhorf, frelsi, ábyrgð, ham-
ingju, gleði, sorg og samskipti,“
segir hann. Einnig kveðst hann oft
taka mið af þeim málefnum sem
ofarlega eru á baugi í samfélaginu
hverju sinni. „Við glímum við
fréttir úr dagblöðunum, reynum
að tileinka okkur gagnrýna hugsun
og tína til rök með og á móti.“
Sem dæmi um mál sem tekin
hafi verið til umfjöllunar í slíkum
tímum er frétt um taílenskan
mann sem fórst í vélhjólaslysi og
móðirin trúði að hefði endurholdg-
ast sem eðla. Einnig kraftaverka-
lækninn sem hingað kom á vegum
Krossins og hélt stórsamkomu í
Smáranum. „Við leggjum áherslu á
mikilvægi þess að þekkja ólík trú-
arbrögð og trúleysi og virða þá
sem eru frábrugðnir manni sjálf-
um,“ segir Jóhann.
Frá því Jóhann hóf kennslu á
námskeiðunum árið 1997 hefur
þátttakendum fjölgað úr 50 í 88.
Flestir voru þeir í fyrra, 90 tals-
ins. Hann segir þá koma víðs veg-
ar að og sjaldnast þekkjast fyrir.
Því eru einstaka tímar beinlínis
ætlaðir til að hrista hópinn saman
og stuðla að kynnum. Við komum
til dæmis að honum í Keiluhöllinni
þar sem hann var að lyfta sér upp
eftir umræðurnar um hin heim-
spekilegu mál. ■
Í KEILUHÖLLINNI
Stundum er brugðið á leik eftir umræðurnar.
Borgaraleg ferming 4. apríl:
Fjallað um frelsi, ábyrgð,
gleði, sorg og samskipti
Hátíðakaka:
Sans rival terta
SANS RIVAL
Glæsileg á veisluborðið
og góð eftir því.