Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 32
32 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
hársnyrtitæki
langvinsælustu hársnyrtitækin á Íslandi
260 E Babyliss sléttu, vöfflu og
krumpujárn með gufu. 3 tæki í
einu. Auðvelt að skipta um plötur,
kælitakki, læsing á handfangi o.fl.
7045 Babyliss Skegg og hár-
snyrtir með 3 hausum fyrir
skegg, augabrúnir, nef og
eyrnahár. Einfalt og þægilegt
í notkun.
2045 Babyliss
sléttujárn. Mjög
stórar plötur,
greiða sem hægt
er að fjarlægja,
on/off takki, mjög
vandað sléttujárn.
5375 Babyliss
blásari, 1800 w,
flottur og hljóð-
látur, 2 hraða og
hitastillar, kæli-
takki, 2 stútar.
5800 Babyliss
blásari, sá öflug-
asti á markaðn-
um, 2300 w.
GLæsileg hönn-
un, 2 hraðastill-
ar, kælitakki o.fl.
Blásari fyrir þá
sem gera kröfur.
Veldu gæði, veldu Babyliss
Babyliss vörurnar fást um land allt.
2025 ce NÝTT Babyliss ceramic
sléttujárn. Frábært tæki til að
slétta og móta hárið. Þunnar og
mjúkar ceramic plötur, hitnar
á 1 mínútu, ná-
kvæm hitastilling,
sjálfvirkur ofhita-
vari.
E770TT Babylliss Men. Glæsilegar
hárklippur í álkassa. Klippa 30.000
hár á sek., titaniumblöð og kamb-
ur. Fjölbreyttar stillingar, mjög
vandaðar hárklippur.
Flottar fermingargjafir fyrir stelpur og stráka
Að mörgu þarf að huga þegarfermingarveislur eru haldnar
í heimahúsi. Til dæmis þarf að
vera hægt að hengja upp kápur
og frakka veislugesta. Vissara er
að tæma fatahengi og forstofu-
skápa af skjólfötum heimafólks
áður en boðsgestir byrja að
banka upp á. Það er nær að
fleygja þeim fatnaði í hrúgu á
eitthvert rúmið en að yfirhafnir
gestanna lendi þar í einni bendu.
Þótt enginn vilji viðurkenna aðvonast sé eftir pökkum þá eru
þeir ótvírætt fylgifiskar ferming-
arveislanna. Því er nauðsynlegt
að hafa sérstakt borð fyrir gjafir,
kort og skeyti, annað hvort í her-
bergi fermingarbarnsins eða
frammi á gangi.
Sólveig Pétursdóttir alþingismaður:
Ný kirkja og vínrauður kjóll
Ég fermdist vorið 1966 í Há-teigskirkju í Reykjavík hjá
séra Jóni Þorvarðarsyni. Þetta
var hátíðleg stund í alveg nýrri
kirkju – gott ef við vorum
ekki fyrstu fermingar-
börnin. Áður hafði ég
sótt sunnudagaskóla
í hátíðarsal Sjó-
mannaskólans og þar
voru líka messur. Ég
bjó í Stórholtinu og
það þótti gleðiefni og al-
veg tímabært að
sóknin fengi
nýja kirkju.
Mér er þessi
dagur mjög
minnisstæður og ég hafði passað
mig á því að lesa vel fyrir tímana
er við gengum til prestsins, bæði
vegna þess að séra Jón var frændi
minn en þó aðallega vegna hins
kristilega boðskapar.
Ég man líka vel eftir veislunni
og gjöfunum og fermingarkjóln-
um, sem var úr vínrauðu flaueli
með blúndukraga. Hann notaði
ég oft síðar meir. ■
Blóm eru ómissandi á ferming-arveisluborðið. Hver og einn
velur þau eftir sínu höfði en
blómaskreytingar eru þó háðar
tískusveiflum eins og flest annað í
þessum heimi. Kolbrún Stefáns-
dóttir í Blómastofunni á Eiðis-
torgi segir einfaldleikann ráða
ríkjum í blómaskreytingum. „Þótt
blómin séu þar í aðalhlutverki er
margt annað haft með og gert að
hluta skreytingarinnar,“ segir hún
og bendir því til sönnunar á ýms-
ar útfærslur þar sem glervasar,
vasar í glaðlegum litum, kerti og
ávextir eru áberandi. Laukar af
ýmsu tagi eru vinsælir í skreyt-
ingar að hennar sögn, meðal
annars hýasintur. „Hýasintur eru
ekki bara jólablóm. Þær eru líka
tákn vorsins. Maður horfir næst-
um á þær vaxa og meðal annars
þess vegna eiga þær vel við um
fermingar,“ segir hún. En hverjir
eru svo tískulitirnir í blómum?
„Fyrir stúlkurnar eru þeir
dökkbleikur, appelsínugulur og
læmgrænn. Strákaliturinn er líka
læmgrænn og svo blár en hvítt er
líka alltaf hátíðlegur litur.“ ■
Hún var fjölmenn. Eitthvað um hundraðmanns. Það var mjög gaman. Ekkert
þvingað eða svoleiðis. Það voru kökur og
þetta var haldið heima. Fermingartertan var
skreytt marsipani, hún var eins og bók.
Sólveig Sigurðardóttir
Fermingar-veislan mín
FYRRVERANDI DÓMS-OG
KIRKJUMÁLARÁÐHERRA
„Mér er þessi dagur minn-
isstæður,“ segir Sólveig.
■ Heilræði
Skreytingar:
Dökkbleikur og læmgrænn
LÉTTLEIKINN Í FYRIRRÚMI
Túlípanar eiga að vera í litlu vatni og
köldu, segja sérfræðingarnir.
KERTI OG LAUKAR Í KRUKKU
Hér eru hýasintur notaðar og innflutt blóm
sem minnir á Maríustakk.
■ Heilræði
Oft þarf að safna saman stólumhjá vinum, ættingjum eða ná-
grönnum áður en stórveisla hefst.
Það er leiðinlegt þegar sæti vant-
ar fyrir gestina þótt slíkt geti
gerst ef allir koma á sama tíma.
Klappstólar eru þarfaþing þegar
svona stendur á, þótt þeir séu ekki
heimsins bestu þægindi. Það er
svo auðvelt að smeygja sér með
þá á milli manna og koma þeim
fyrir á víð og dreif.
Best er að staðsetja veisluborð-ið þannig að einungis endi
þess sé upp við vegg, ef hægt er
að koma því við. Þá er unnt að
komast að því frá báðum hliðum.
Ef um hlaðborð er að ræða verð-ur að sjá til þess að allir komist
einhvers staðar að öðru borði til að
leggja frá sér disk og bolla meðan
matast er. Sumir eiga sérstaka
bakka sem menn geta setið með á
hnjánum, annars verður að dreifa
litlum borðum sem víðast.