Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 33

Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 33
Það var engin veisla en það vargaman að vera til og ég minn- ist fermingardagsins með mikilli gleði,“ segir Vilborg Dagbjarts- dóttir skáld þegar hún rifjar upp 14. maí merkisárið 1944. Strax þá var hún orðin meðvituð um þjóð- málin. „Þótt við fermingarbörnin værum ekki komin með kosninga- rétt höfðum mikinn áhuga fyrir lýðveldisstofnuninni,“ segir hún. Vilborg er fædd á Vestdalseyri á Seyðisfirði en var lögð af stað út í heiminn fyrir fermingu. „Ég fór 12 ára til Neskaupstaðar í skóla og var sett í bekk með börnum sem voru ári eldri en ég. Því gekk ég til spurninga með þeim. En næsta ár var kominn nýr prestur og hann vildi að ég lærði líka hjá honum svo ég fékk tvöfaldan skammt af kristilegri uppfræðslu fyrir ferminguna. Þá var mikið lagt upp úr utanbókarlærdómi úr biblíunni og fjölda sálma. Suma þeirra man ég, eins og til dæmis Þú Jesús ert vegur til himinsins heim og Þú Guð sem stýrir stjarna her.“ Vilborg kveðst hafa verið í síð- um beinhvítum taftkjól, fallegri rauðri kápu og nýjum skóm á fermingardaginn. „Ég var alveg rosalega fín og afar ánægð með mig,“ segir hún og minnist þess líka að hafa fengið fallegar gjafir. „Mamma gaf mér kommóðu, Kristín Blöndal símstöðvarstjóri gaf mér hanska og græna slæðu með frönsku mynstri, ég fékk vasaklútamöppu, burstasett og fleira fallegt. En þó að ég muni vel gjafirnar mínar þá voru þær ekki aðalatriðið,“ segir hún og bætir við: „Ég verð alltaf svolítið sár þegar ég heyri talað um að börn fermist vegna gjafanna. Ég er á annarri skoðun.“ ■ 33FÖSTUDAGUR 5. mars 2004 Á fermingardegi systur minnar blómstraði snædrottningin Auðvitað hafði mamma undirbúið þetta eins og hún mögulega gat. Hún vökvaði rósina á hverjum degi og hagræddi henni í glugganum meðan hún bað hana með mörgum fögrum orðum að gera nú þetta lítilræði fyrir sig fyrst svona stæði á. Vilborg Dagbjartsdóttir Vilborg Dagbjartsdóttir skáld: Minnist dagsins með mikilli gleði VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR Fermdist lýðveldisvorið. VILBORG 12 ÁRA Engin mynd er til frá fermingunni. „Það voru stríðstímar og fáir áttu myndavélar,“ bendir hún á. litirnir í blómunum BLÓM OG KERTI Litríkir vasar með laukblómum úr Blóma- stofunni á Eiðistorgi. FYRIR STRÁKANA Úr versluninni Ráðhúsblómum. STELPUSKREYTINGAR Úr versluninni Ráðhúsblómum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.