Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 36
400 mg sterkar kalktöflur
með D vítamíni
Byggir upp bein og tennur.
Biomega
Öll vitum við að það væri rök-leysa að segja að rottur byggi
upp ruslahauga, jafnvel þótt þær
sé þar að finna þúsundum saman.
Fyrst koma ruslahaugar, svo
koma rottur.
Í dag er almennt talið að bakt-
eríur og vírusar valdi veikindum.
Hvernig er þá hægt að skýra þá
mörgu sem veikjast ekki þótt
alltaf sé fjöldinn allur af bakterí-
um á sveimi?
Margir læknar, næringarfræð-
ingar og grasalæknar eru nú farn-
ir að halda fram kenningu sem
stangast á við þessa viðteknu hug-
mynd. Í stað þess að kenna bakt-
eríum um alla sjúkdóma segja
þeir of hátt sýrustig líkamans
verða þess valdandi að líkaminn
laði að sér „flensu“ eða þau veik-
indi sem eru „að ganga“ hverju
sinni. Ef sýrustig (rusl) líkamans
verður of hátt skapast kjör-
aðstæður fyrir bakteríur (rottur).
Þess má geta að þegar líkami deyr
hækkar sýrustig hans mjög ört og
dauður vefur verður að veislu-
borði fyrir bakteríur. Vísindin að
baki kenningunni eru flókin og ég
þekki þau ekki til fullnustu. Kenn-
ingin veitir ekki svör við öllum
heilsufarsvandamálum en hún
gefur nýjar vísbendingar og út-
skýrir hvers vegna sum hegðun
virðist heilsusamlegri en önnur.
Neikvæðni, pirringur, reiði, kvíði
og ótti eru allt tilfinningar sem
hækka sýrustig líkamans. Allt
gos, sælgæti, hvítur sykur, hvítt
hveiti, of mikið magn af dýra-
afurðum og feitar olíur hækka
sýrustig líkamans verulega mikið.
Til að lækka sýrustig líkamans
er mælt með að þú takir lífinu
með ró og iðkir
jákvæðan hugs-
u n a r h á t t .
Reyndu að
borða heilsu-
samlega (t.d. í sam-
ræmi við nýja fæðu-
píramídann) en ekki borða yfir
þig. Gott er að drekka mikið vatn
og hreyfa sig reglulega án þess að
ofkeyra líkamann (ofkeyrsla
hækkar sýrustig). Reyndu að
forðast umhverfismengun, ekki
reykja og drekktu sem allra
minnst áfengi. Ef þú hættir að búa
til ruslahauga hætta rotturnar að
koma í heimsókn. ■
Sendu spurningar um andlega
og líkamlega heilsu á gberg-
mann@gbergmann.is.
Rottur laðast að ruslahaugum
Líkamiog sál
GUÐJÓN
BERGMANN
■ jógakennari og
rithöfundur skrifar
um andlega og
líkamlega heilsu.
Bikiníformið:
Gæti fengist
með djúsföstu
Bjartari tíð er í vændum og einsgott að hugsa raunhæft um
bikinídagana í sumar, vera í formi
og í alvör-
unni spræk-
ur til að njóta
birtu og orku
sumarnót t -
anna. Ein
leiðin er að
fasta en slíkt
krefst undir-
búnings og
hægt að fá
leiðbeiningar
K o l b r ú n a r
grasalæknis í
H e i l s u h ú s -
inu. Fasta
hreinsar út
eiturefni og
veldur gjarn-
an þeirri hugarfarsbreytingu að
fólk velur sér léttari og hollari
máltíðir á eftir. Hvort sem planið
er að fasta eða einungis að neyta
léttari máltíða með hækkandi sól
eru heilsudjúsblöndur alltaf
sniðugt val. Eftirfarandi djús-
drykkir eru á djússeðli Heilsu-
hússins, en hráefnið í þá má
einnig kaupa og útbúa í blandar-
anum heima.
Í morgunverð
Gulrótarsafi og pressaður engifer. Engi-
fer er hreinsandi og nærandi og gulrót-
arsafi undirbýr húðina fyrir sólskinsdaga
og tryggir gullna sólbrúnku.
Í hádeginu
Fersk epli, appelsínur og gulrætur í
blandara. Stútfullt af orku og vítamínum.
Pressað hveitigras í hressandi orkuskoti.
Hveitigras er kallað „græni töfrasafinn“
og er hreinsandi, bakteríueyðandi, eykur
árangur líkamsræktar og gefur mikla
orku.
Kvöldverður
Tofu, sojaprótín með spirulina, sojamjólk
og frosin ber. Soja er hin fullkomna
fæða kvenna. Það innheldur jurta-estró-
gen, en austurlenskar konur sem neyta
mikils soja fá síður vestræna sjúkdóma.
Þessi blanda er bæði mettandi og nær-
ingarrík.
Lifrarbólga G:
Truflar
HIV veiruna
Ný bandarísk rannsókn gefur tilkynna að fólk sem smitað er af
HIV-veirunni geti lifað lengur sé
það sýkt af lifrarbólgu G, eða GBV-
C veirunni. Veiran uppgötvaðist
árið 1995 og eru vísindamenn enn
að kynna sér virkni hennar. Margt
bendir til þess að hún valdi ekki al-
varlegum lifrarsjúkdómi og að fólk
geti borið hana árum saman án þess
að sýna nein einkenni. Talið er að
hún trufli virkni HIV-veirunnar á
einhvern hátt. Vonast er til að þessi
rannsókn komi að notum við þróun
nýrra lyfja. ■
KOGGA LEIRLISTAKONA
Lifir heilbrigðu og rólegu lífi en
stefnir að því að ganga meira
með vorinu.
Nú kemur vel á vondan,“ segirKolbrún Björgólfsdóttir, eða
Kogga leirlistakona, þegar hún er
spurð hvað hún geri fyrir heilsuna.
„Eru ekki allir sem þú hringir í á
fullu í líkamsrækt og svona?“ spyr
hún kvíðin. Eftir að hafa verið full-
vissuð um að þannig sé það ekki
kemur í ljós að Kogga hugsar dá-
vel um heilsuna þó hún sé ekki
alltaf á líkamsræktarstöðvunum.
„Ég borða hollan mat, mikið af
ávöxtum, grænmeti og fiski og er
svo heppin að finnast ekkert varið
í snakk og aðra óhollustu. Svo tek
ég tímabil sem ég hreyfi mig mik-
ið, en það dettur nú reyndar niður
á milli,“ segir Kogga, sem fer samt
reglulega í sund. „Það er sennilega
það besta sem ég geri fyrir mig, þó
að ég syndi nú kannski ekki alltaf
mikið,“ segir hún og hlær.
Kogga ræktar sömuleiðis and-
ann á tímabilum, en segist ekki
vera sérlega stressuð svona yfir-
leitt. „Ég er náttúrlega voða mikið
ein og upplifi ekki áreitin sem
fylgja stórum vinnustað. Ég hef
þess vegna góðan tíma til að slaka
á í huganum, og hlusta til dæmis
mikið á sögur og bókmenntir af
spólum meðan ég er að vinna.
Sömuleiðis á leikrit, erindi og sög-
ur á Rás 1, það er mjög slakandi.
Svo er meiningin að fara meira
út að ganga, ég horfi út um glugg-
ann á hverjum degi og hugsa með
mér að nú fari ég í dag. Og ég veit
að dagur framkvæmdarinnar fer
alveg að renna upp.“ ■
HOLLUSTUKARFA
Matur er mannsins megin, segir máltækið
– en það er ekki sama hvað sett er á
diskinn. Manneldisráð birtir á heimasíðu
sína hollustukörfu – sem er ráðlegging um
heilbrigt mataræði.
Í henni eru meðal annars að minnsta kosti
200 grömm af grænmeti og 200 grömm af
ávöxtum á degi hverjum, auk kartaflna.
Mjólkurvörur er einnig að finna í körfunni
– tvö glös, diska eða dósir af mjólk eða
mjólkurmat á dag, þá að sjálfsögðu fitulitl-
ar og lítið sykraðar vörur.
Fiskur og kjöt á hvort um sig að vera á
borðum tvisvar til þrisvar í viku en græn-
metis-, bauna- eða pastamáltíðir tvisvar í
viku. Gert er ráð fyrir 100-150 grömmum
af kjöti, fiski, eggjum eða baunum á dag,
álegg þar með talið.
Í hollustukörfunni er líka brauð, morgun-
korn, pasta og hrísgrjón. Viðbættur sykur er
hins vegar ekki vinsæll og harða fitu ber að
forðast.
heilsa o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heilsa@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
OF MIKIÐ SALT Saltneysla í hinum vestræna heimi er
langt umfram það sem hollt er talið. Þetta leiðir til
aukinnar hættu á hjarta- og kransæðasjúkdómum. Að
mati danskra sérfræðinga er hins vegar ekki mögu-
legt að draga úr saltneyslu meðan það tíðkast í mat-
vælaiðnaðinum að ofsalta vörur. Sérfræðingarnir eru
sannfærðir um að fólk hafi vanist á allt of mikla salt-
neyslu vegna þess að ofsöltun hafi verið stunduð í
matvælaiðnaðinum, meðal annars til að fela bragð-
leysi hráefnanna. Engin ákvæði eru innan Evrópusam-
bandsins sem skylda matvælaframleiðendur til að
gefa upp saltmagn vöru.
HIN FULLKOMNA
FÆÐA
Heilsusafar geta komið í
stað næringarríkra og
seðjandi máltíða.
Hvað gerir þú fyrir heilsuna?
Sund fyrir skrokkinn