Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 37

Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 37
37FÖSTUDAGUR 5. mars 2004 Tai Chi eða Taiji Quan er upp-runalega samspil bardaga- listar og íhugunar. Þessi list mót- aðist á tímum Ming-keisara í Kína á 15. og 16. öld og hefur þróast síðan í heilsu- og hugar- íþrótt. Taiji er upphaflega kennt við fjölskyldu, Chen-fjölskyld- una. Taiji er stundað mjög víða og kannski koma helst í huga myndir af Kínverjum sem æfa þessar hægu hreyfingar í hópum eldsnemma dags úti í almenn- ingsgörðum. En víðar má hitta Taiji-iðkendur en í Kína, því það er orðið vinsælt víða í Evrópu. Hér hefur hópur manna stundað Taiji í nokkuð mörg ár. Erlendur kennari, Kinthissa, hefur komið tvisvar á ári til Ís- lands og haldið námskeið. Hún hefur stundað Taiji Quan í 27 ár og kom fyrst til Íslands 1989. Kinthissa er væntanleg til lands- ins um helgina og mun í þetta skipti einnig kenna Qi Gong. Námskeiðið fyrir byrjendur og lengra komna verður haldið helgina 6. og 7. mars í Íþróttasal Safamýraskóla frá kl. 9 báða dagana. Upplýsingar veita Guð- ný í síma 860 19 21 og Domin- ique á netfanginu domin- ique@simnet.is. ■ KINTHISSA OG MEISTARI HENNAR, CHEN XIAO WANG Kinthissa verður með námskeið í íþróttasal Safamýrarskóla um helgina. Námskeið í Tai Chi og Qi Gong: Iþrótt fyrir huga og heilsu B-vítamín og C-vítamín eru nauðsynleg til að viðhalda sterkum og góðum taugum, auk þess að vera undirstaða ótal annara þátta líkamsstarfseminnar. Vítamínin í B-STRESS eru sérvalin næringarefni fyrir taugarnar. Þau gegna auk þess mikilvægu hlutverki fyrir heilbrigð efnaskipti, gróskumikinn hárvöxt, heilbrigt og fallegt hörund og heilbrigða starfsemi hjarta og æða. Avena er nærandi fyrir taugarnar og kjörið að nota áður en lagst er til hvíldar. B-Stress kr. 916,- Avena kr. 885,- K R A F TA V E R K Guðjón Sveinsson jógakennaribýður nú upp á nýjung fyrir golfáhugamenn, sérstök nám- skeið í jóga til að bæta árangur- inn á golfvellinum. Guðjón hefur sjálfur verið í golfi í mörg ár en náði að sögn aldrei sérstökum árangri. „Ég var svona miðlungs- kylfingur, alltaf með 10 í forgjöf, sem er svo sem allt í lagi, en eftir að ég fór að iðka jóga og nota önd- unina og slökunina lækkaði ég í forgjöf úr tíu í 6,4 á einu og hálfu ári.“ Guðjón segist byggja nám- skeiðið upp á grundvallaratriðum í jóga, sem er hatha-jóga, en nám- skeiðið er sambland af slökun, hugleiðslu og stöðum. „Ég er líka með almenn nám- skeið sem golfarar sækja, en þetta námskeið er fyrir þá sem vilja stunda jóga með ákveðin markmið í huga. Það getur mikil spenna fylgt golfinu, ekki síst ef menn eru að keppa um verðlauna- sæti eða sæti í einhverju liði. Þá er jógað frábært til að losa um spennu á síðustu holunum. En jóga skilar ekki bara betri árangri í golfinu heldur í lífinu sjálfu.“ Guðjón segir golfíþróttina þrí- þætta; félagslega, andlega og lík- amlega. „Líkamlegi þátturinn felst í að hafa þrek í að labba 18 holur, félagslegi þátturinn að hafa gaman af að labba með félögun- um, og andlegi þátturinn felst í að vera ekki að hugsa um eitthvað annað en að hitta kúluna.“ Námskeið Guðjóns hefst næst- komandi mánudag í húsnæði Regnbogabarna í Hafnarfirði og verður tvisvar í viku, á mánudög- um og miðvikudögum. Upplýsingar gefur Guðjón í síma 691 6412. ■ Jóga til að bæta árangur í golfi: Spennan oft gríðarleg á síðustu holunum GUÐJÓN SVEINSSON JÓGAKENNARI Var miðlungsgolfari þangað til hann hóf að beita jóga á golfvellinum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Veikleiki í erfðaefni: Getur aukið líkur á krabbameini Vísindamenn við Háskólann íSuður-Karólínu hafa uppgötv- að að veikleiki í uppbyggingu erfðaefnis getur valdið því að sumar frumur eru líklegri til að verða krabbameinsfrumur en aðr- ar. Rannsóknin beindist að ónæm- isfrumum sem berjast gegn sýk- ingum. Frumurnar bera í sér gen sem kallað er BcI-2 og stjórnar sjálfseyðingu fruma þegar nátt- úrulegu lífi þeirra er lokið. Ef genið er of virkt getur það hins vegar hindrað þetta ferli og vald- ið illkynja eitilæxli. Vonast er til þess að rannsókn- in, sem birtist í tímaritinu Nature, geti aukið vitneskju fólks um or- sakir krabbameins. ■ Bregðast við gagnrýni: Hætta með súperstærð Forsvarsmenn McDonald’s-ham-borgarakeðjunnar hafa brugðist við gagnrýni vegna óhollustu þess matar sem þar er seldur. Hætt verð- ur að bjóða upp á stærsta skammt- inn af frönskum kartöflum og gosi, sem kallaður er „súperstærð“. Þá verður matseðillinn einfaldaður. Fyrirtækið hefur verið gagnrýnt fyrir að auka enn á offituvanda Bandaríkjamanna með því að bjóða sífellt stærri skammta á matseðli sínum. McDonald’s byrjaði að bjóða „súperstærðir“ árið 1994 en for- ráðamenn þess segjast nú vilja breyta matseðlinum til að ýta undir betra jafnvægi í mataræði fólks. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.