Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 46
46 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
BOLTI Í LOFTI
Japanski kylfingurinn Shigeki Maruyama
lætur golfboltann skoppa á handlegg sín-
um á Ford PGA-mótinu á Miami. Maryu-
ama leiddist biðin eftir því að fá að slá og
ákvað því að bregða á leik.
Golf
FÓTBOLTI Atvikið mun hafa átt sér
stað á hótelherbergi skammt frá La
Manga á Spáni þar sem leikmenn-
irnir voru í æfingabúðum með
Leicester til að undirbúa sig fyrir
lokahnykkinn í úrvalsdeildinni.
Konurnar halda því fram að
níu menn hafi ráðist inn í hótel-
herbergi þeirra og misnotað þær.
Miðvallarleikmaðurinn Steffen
Freund, sem er sakaður um að
hafa horft á atvikið án þess að að-
stoða fórnarlömbin, var síðar
sleppt gegn tryggingu. Ekki hefur
verið upplýst hverjir hinir leik-
mennirnir eru, en þeir voru allir
leiddir fyrir rétt í gær.
Að sögn spænsku lögreglunnar
höfðu fjórir menn verið ákærðir
fyrir kynferðislega misnotkun og
átta fyrir innbrot. Í yfirlýsingu
hennar kom fram að einhverjir
leikmannanna hafi verið drukknir
og truflað aðra gesti hótelsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
leikmenn Leicester lenda í vand-
ræðum á Spáni því fyrir fjórum
árum setti Stan Collymore, þáver-
andi leikmaður liðsins, slökkvi-
tæki í gang á hótelbar á La Manga
og skemmdi barstóla og borð. Lið-
inu var vísað burt með skömm af
hótelinu og fór í kjölfarið heim til
Englands.
Leicester er í næstneðsta sæti
úrvalsdeildarinnar og hefur ekki
sigrað í fimmtán deildar- og bik-
arleikjum í röð. Næsti leikur liðs-
ins er gegn Birmingham þann 13.
mars. ■
FÓTBOLTI Gengi liðsins í undanförn-
um leikjum hefur verið slakt og
samkvæmt yfirlýsingu frá Peter
Ridsdale, stjórnarformanni félags-
ins, taldi stjórnin einu færu leiðina
úr ógöngum liðsins að láta Guðjón
fara. Í staðinn hefur Paul Hart,
fyrrum knattspyrnustjóri Notting-
ham Forest, verið ráðinn. Mun
hann stýra liðinu í næsta leik liðs-
ins gegn Luton Town á morgun.
Í yfirlýsingu félagsins sagði:
„Þrátt fyrir þá staðreynd að Guð-
jón hafi byrjað tímabilið í mjög
erfiðu vinnuumhverfi þá eru allir
knattspyrnustjórar dæmdir af úr-
slitum. Átta stig af síðustu 33
mögulegum síðan á annan í jólum
og aðeins einn sigur í síðustu þrett-
án deildar- og bikarleikjum hafa
gert það að verkum að sæti í um-
spili er fjarlægari. Guðjón yfirgef-
ur félagið með þakklæti frá okkur
og von um gæfuríka framtíð.“
Guðjón var ráðinn til starfa hjá
Barnsley 30. júní á síðasta ári þeg-
ar félagar hans Kenny Moyes og
Sean Lewis keyptu félagið. Þá var
Barnsley í greiðslustöðvun, öll
leikmannakaup voru bönnuð og
vinnuumhverfi Guðjóns var erfitt.
Guðjón bretti upp ermarnar og
byrjaði frábærlega með liðið. Fjór-
ir sigrar í fyrstu sex leikjunum
fullvissuðu flesta um að Guðjón
væri rétti maðurinn í starfið. Fé-
lagar hans, Moyes og Lewis, helt-
ust hins vegar fljótlega úr lestinni
þegar lítil innistæða var fyrir
kaupum þeirra á félaginu.
Peter Ridsdale, fyrrum stjórn-
arformaður Leeds, kom þá til sög-
unnar og keypti félagið í septem-
ber. Fljótlega fóru að koma upp á
yfirborðið raddir um að Ridsdale
myndi láta Guðjón fara við fyrsta
tækifæri og fá einhvern af sínum
mönnum til að taka við stjórninni.
Þrátt fyrir yfirlýsingar um að Guð-
jón nyti fulls trausts í starfi hefur
Ridsdale nú ráðið Paul Hart í hans
stað. Hart er fyrrum þjálfari ung-
lingaliðs Leeds og starfaði hjá því á
meðan Ridsdale réð ríkjum þar. ■
PELE OG HENRY
Pele veitti Thierry Henry, leikmanni
Arsenal, viðurkenningu í London fyrir að
komast á listann.
Pele velur 120 bestu leik-
menn heims:
Þrír samherj-
ar úti í kuld-
anum
FÓTBOLTI Brasilíska knattspyrnu-
goðið Pele hefur vakið mikla
reiði í heimalandi sínu fyrir að
velja ekki þrjá samherja sína úr
heimsmeistaraliði Brasilíu 1970
á lista sinn yfir 120 bestu núlif-
andi knattspyrnumenn heims.
Leikmennirnir sem um ræðir
heita Jarzinho, Gerson og
Tostao. Á meðal fleiri leikmanna
sem ekki komust á listann eru
Dennis Law, Geoff Hurst, sem
skoraði þrennu í úrslitaleik HM
1966, og ítalski framherjinn
Sandro Mazzola. Einnig vakti
Pele mikla undrun fyrir að velja
El Hadji Diouf, leikmann Liver-
pool, og Hollendinginn Clarence
Seedorf á listann.
Alls valdi Pele fimmtán
brasilíska leikmenn, þar á meðal
sjálfan sig og Carlos Alberto
sem lék með honum á HM 1970.
Ítalir og Frakkar eiga fjórtán
leikmenn hvor á listanum, Hol-
lendingar þrettán, Þjóðverjar og
Argentínumenn tíu og Englend-
ingar sjö. Aðeins tvær konur
eru á listanum; þær Michelle
Akers og Mia Mann frá Banda-
ríkjunum.
Pele, sem er þrefaldur heims-
meistari í fótbolta, setti listann
saman fyrir Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið, FIFA, í til-
efni af aldarafmæli þess. ■
LIVERPOOL
Liverpool var óstöðvandi gegn Levski á
miðvikudag. Þeir mæta Marseille í sextán
liða úrslitum og Inter eða Benfica í átta
liða úrslitum vinni þeir Frakkana.
UEFA-bikarkeppnin:
Liverpool
fékk Marseille
FÓTBOLTI Liverpool leikur við
Marseille í sextán liða úrslitum
UEFA-bikarkeppninnar. Fyrri
leikurinn verður í Liverpool 11.
mars og sá seinni í Frakklandi 25.
mars. Hætt er við að markvörður-
inn Fabien Barthez, sem
Marseille fékk að láni frá
Manchester United, fái varmar
viðtökur á Anfield Road.
Stórveldin Inter Milan og Ben-
fica slást um sæti í átta liða úrslit-
um. Inter og Benfica hafa einu
sinni áður mæst í Evrópukeppni
en Inter vann úrslitaleik félag-
anna í keppni meistaraliða áirð
1965. Félagið sem sigrar leikur
við Liverpool eða Marseille í átta
liða úrslitum.
Celtic, sem lék til úrslita í
UEFA-bikarkeppninni í fyrra,
fékk Barcelona í sextán liða úr-
slitum. Barca gekk brösuglega í
haust en fór á flug eftir að Edgar
Davids kom til félagsins en
Barcelona hefur sigrað í átta af
níu leikjum sem Hollendingurinn
hefur tekið þátt í.
Sigurvegarinn í leik Celtic og
Barcelona leikur við Villarreal
eða Roma. Villareal er eina félag-
ið sem eftir er af þeim sem unnu
sér þátttökurétt í UEFA-bikarnum
í gegnum Getraunakeppni UEFA.
Newcastle fékk spánska félag-
ið Real Mallorca og leikur við
Auxerre eða PSV Eindhoven í átta
liða úrslitum vinni þeir Spánverj-
ana. ■
AP
/M
YN
D
Níu leikmenn Leicester handteknir:
Kærðir fyrir kyn-
ferðislega misnotkun
LEICESTER
Leikmenn Leicester hafa verið iðnir við að koma sér í vandræði utan vallar.
AP
/M
YN
D
LEIKIR Í SEXTÁN LIÐA ÚRSLITUM
Celtic - Barcelona
Genclerbirligi - Valencia
Bordeaux - Club Brugge
Newcastle - Real Mallorca
Auxerre - PSV Eindhoven
Inter Milan - Benfica
Liverpool - Marseille
Villarreal - Roma
Fyrri leikirnir verða 11. mars
og þeir seinni 25. mars.
Guðjón rekinn
frá Barnsley
Guðjóni Þórðarsyni hefur verið sagt upp sem knattspyrnustjóra hjá enska 2.
deildarliðinu Barnsley. Guðjón tók við starfinu fyrir aðeins átta mánuðum.
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON
Guðjóni Þórðarsyni var í gær sagt upp
störfum hjá enska 2. deildarliðinu
Barnsley eftir átta mánaða starf.