Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 48

Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 48
48 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR KÚBVERSKT STÖKK Luis Meliz frá Kúbu bar sigur úr býtum í langstökki á frjálsíþróttamóti í Þýskalandi á dögunum. Sigurstökkið mældist 7,95 metrar. Frjálsar hvað?hvar?hvenær? 4 3 4 5 6 7 8 MARS Föstudagur Meistarakeppni KSÍ hefst í kvöld: KR og ÍA mætast í Egilshöll FÓTBOLTI Meistarakeppni KSÍ hefst í Egilshöll í kvöld með leik Íslandsmeistara KR og bikar- meistara ÍA í karlaflokki. Ís- landsmeistara KR og bikar- meistarar Vals mætast í kvennaflokki í Egilshöll á sunnudag. Fjórir leikmenn KR, þeir Garðar Jóhannsson, Sverrir Bergsteinsson, Páll Kristjánsson og Sölvi Davíðsson, verða í leik- banni gegn ÍA. Í kvennaflokki verða Embla Sigríður Grétars- dóttir, KR, og Íris Andrésdóttir, Val, í leikbanni. Meistarakeppni KSÍ var end- urvakin árið 2003, en hún fór ekki fram 1999–2002 þar sem erfitt var að finna hentuga leikdaga. Ákvörðun um að endurvekja keppnina var tekin í ljósi þeirrar stórbættu aðstöðu sem felst í knattspyrnuhúsunum sem risið hafa á undanförnum misserum. Keflavík, Fram og Valur hafa oftast unnið meistarakeppni karla, eða sex sinnum, en keppnin fór fyrst fram árið 1969. Frá árinu 1980 hefur verið keppt um Sigurðarbikarinn, sem var gefinn af Knattspyrnu- deild KR til minningar um Sig- urð Halldórsson. Í meistara- keppni kvenna var fyrst leikið 1992 og hefur Breiðablik oftast sigrað í keppninni, eða fimm sinnum. ■ Nýr stjóri Southampton: Sturrock ráðinn FÓTBOLTI Paul Sturrock hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Southampton. Sturrock var áður framkvæmdastjóri Plymouth Argyle frá október 2000. Undir stjórn hans sigraði Plymouth í 3. deildinni árið 2002 og er félagið efst í 2. deildinni þegar hann yfirgefur það. Sturrock lék 20 A-landsleiki fyrir Skota. Hann var liðsmaður Dundee United 1974–1989 og lék meðal annars með gegn Keflvíkingum í UEFA-bikarn- um árið 1975. Sturrock gerðist stjóri St Johnstone árið 1993, fór til Dundee United árið 1998 og loks til Plymouth árið 2000. ■ OWEN Hefur margoft verið hótað lífláti og telur að David Beckham sé í sömu sporum. Michael Owen: Margoft hótað lífláti FÓTBOLTI Michael Owen, framherji Liverpool og enska landsliðsins, segist margoft hafa fengið dauða- hótanir á borð við þá sem Gerard Houllier, stjóri Liverpool, fékk á dögunum. „Því miður hefur þetta oft komið fyrir mig líka. Þetta virðist vera orðinn hluti af fótboltanum nú til dags. Ég hef ekki bara feng- ið bréf heldur hafa aðrir hlutir gerst sem gætu talist mun alvar- legri,“ sagði Owen. Hann bætti því við að David Beckham, fyrir- liði enska landsliðins og leikmað- ur Real Madrid, hafi vafalítið fengið fjölmargar morðhótanir í gegnum tíðina eins og hann. ■ ■ ■ LEIKIR  19.00 KR og ÍA leika í Egilshöll í meistarakeppni KSÍ í karlaflokki.  19.15 Stjarnan leikur við Fram í Ásgarði í úrvalsdeild RE/MAX- deildar karla í handbolta.  19.15 Grótta/KR og HK keppa á Seltjarnarnesi í úrvalsdeild RE/MAX-deildar karla í handbolta.  20.00 Haukar keppa við ÍR að Ás- völlum í úrvalsdeild RE/MAX- deildar karla í handbolta.  20.00 Valur mætir KA í Valsheimil- inu í úrvalsdeild RE/MAX-deildar karla í handbolta.  21.00 KA og Þróttur Nes. leika í KA-heimilinu í 1. deild kvenna í blaki. ■ ■ SJÓNVARP  9.50 HM í frjálsum íþróttum inn- anhúss á RÚV.  15.15. HM í frjálsum íþróttum innanhúss á RÚV.  18.05 HM í frjálsum íþróttum innanhúss á RÚV. AP /M YN D KR-ÍA Frá viðureign KR og ÍA í Egilshöll í deilda- bikarkeppninni á síðasta ári. AP/M YN D

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.