Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 49
49FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Heimsmeistara-
mótið í frjálsum íþróttum innan-
húss hefst í Búdapest í dag. Þórey
Edda Elísdóttir hefur keppni í
stangarstökki klukkan 15.30 í dag
en Jón Arnar Magnússon keppir í
sjöþraut á morgun og á sunnudag.
Þórey Edda þarf að stökkva
4,45 metra, eða verða meðal tólf
efstu, til að vinna sér sæti í úrslit-
um. Guðmundur Karlsson lands-
liðsþjálfari er bjartsýnn á að
henni takist það og bendir á að
Þórey Edda hafi komst í úrslit á
HM í París í fyrra. Hann segir að
tvö efstu sætin í keppninni séu
frátekin en Þórey Edda sé í hópi
nokkurra stökkvara sem hafa ný-
lega farið yfir 4,50 metra. Það get-
ur brugðið til beggja vona hjá
þeim og þetta sé alltaf spurning
um spennustigið.
Rússarnir Yelena Isinbayeva
og Svetlana Feofanova munu að
öllum líkindum berjast um sigur í
stangarstökkinu. Isinbayeva setti
heimsmet, 4,83, fyrir þremur vik-
um en Feofanova stökk 4,85 viku
síðar og enduheimti heimsmetið.
Guðmundur á von á jafnri
keppni í þriðja til áttunda sæti í
sjöþrautinni. Tölfræðilega séð
byrjar Jón Arnar keppnina í sjö-
unda sæti og snýst keppnin um að
vinna sig upp úr þessu sæti.
Jón Arnar varð í fjórða sæti á
tugþrautarmóti Erki Nool í Tall-
inn fyrir mánuði með 5.916 stig.
Hann náði góðum árangri í kúlu-
varpi og var sáttur við árangurinn
í 1.000 metra hlaupi og stangar-
stökki en ósáttur við frammstöðu
sína í öðrum greinum. Guðmundur
segir að Jón Arnar eigi töluvert
inni frá Tallinn. Hann hefur verið
að vinna úr því sem fór aflaga í
Tallinn en þetta verður alltaf
spurning um hvernig hlutirnir
gangi upp á þessum tveimur dög-
um.
Jón Arnar Magnússon keppir í
60 metra hlaupi, langstökki og
kúluvarpi í fyrramálið og hástökki
síðdegis. Á sunnudag keppir hann
í 60 metra grindahlaupi, stangar-
stökki og 1.000 metra hlaupi.
Guðmundur segir að ekki sé
hægt að heimfæra árangur í sjö-
þraut fyrirvaralaust yfir á tug-
þrautina. Árangurinn í Búdapest
verði engu að síður einhver mæli-
kvarði á Ólympíuleikana í sumar.
Jón Arnar er í sjöunda sæti í
heiminum í tugþraut og nái hann
sjötta sætinu í Búdapest gefur
það fyrirheit um áttunda sætið á
Ólympíuleikum. ■
KÖRFUBOLTI Haukar unnu Keflvík-
inga með 90 stigum gegn 88 í
Intersportdeildinni í gærkvöldi.
Keflvíkingar voru með yfirhönd-
ina mest allan fyrri hálfleikinn og
höfðu yfir í hálfleik 49-42.
Þeir voru einnig sterkari í síð-
ari hálfleik, allt þar til Haukar
komust yfir á lokakaflanum og
tryggðu sér sigurinn. Whitney
Robinson var mikilvægur fyrir
heimamenn í lokin því kappinn
skoraði átta síðustu stig
Haukanna og setti niður sigur-
körfu leiksins þegar fimm sek-
úndur voru til leiksloka.
Mike Manciel var stigahæstur
Hauka með 27 stig og Sævar Ingi
Haraldsson og Robinson skoruðu
13 stig hvor. Hjá Keflavík var
Derrick Allen stigahæstur ásamt
Nick Bradford með 30 stig.
KR-ingar unnu ÍR-inga örugg-
lega með 114 stigum gegn 90.
Staðan í hálfleik var 48-44 heima-
mönnum í vil og juku þeir forskot-
ið jafnt og þétt í síðari hálfleik.
Joshua Murray var stigahæstur
KR-inga með 31 stig, Elvin Mims
skoraði 21 og Magni Hafsteinsson
setti niður 18. Hjá ÍR var Maurice
Ingram stigahæstur með 27 stig.
Leikurinn var heldur tilþrifalítill
enda lítið í húfi fyrir bæði lið.
Grindavík vann Breiðablik,
sem þegar var fallið í 1. deild, 101-
78, og Þór Þorlákshöfn hífði sig
upp úr botnsætinu á kostnað Blika
með sigri á Hamarsmönnum, 83-
75. Þá vann Njarðvík góðan útisig-
ur á Tindastól 96-99 og loks vann
KFÍ óvæntan sigur á deildar-
meisturum Snæfells, 93-90.
Í úrslitakeppninni, sem hefst
11. mars, mætir Snæfell Hamri,
Grindavík og KR eigast við,
Keflavík mætir Tindastól og
Njarðvíkingar og Haukar leiða
saman hesta sína. ■
STEINAR KALDAL
Skorar hér tvö af átta stigum sínum
fyrir KR gegn ÍR í gærkvöldi.
Lokaumferð Intersportdeildarinnar:
Robinson með sigurkörfu Hauka
Úrslit:
UMFG - Breiðablik 101-78
Haukar - Keflavík 90-88
KFÍ - Snæfell 93-90
KR - ÍR 114-90
Tindastóll - UMFN 96-99
Þór Þorl. - Hamar 83-75
LOKASTAÐAN Í
INTERSPORTDEILDINNI:
L U T S
Snæfell 22 18 4 36
UMFG 22 18 4 36
Keflavík 22 15 7 30
UMFN 22 14 8 28
Haukar 22 13 9 26
Tindastóll 22 12 10 24
KR 22 11 11 22
Hamar 22 10 12 20
ÍR 22 6 16 12
KFÍ 22 6 16 12
Þór Þorl. 22 5 17 10
Breiðablik 22 4 18 8
Jón Arnar Magnússon
og Þórey Edda keppa
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum innanhúss hefst í dag. Undankeppni
í stangarstökki fer fram síðdegis en keppni í sjöþraut hefst í fyrramálið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Keppir í stangarstökki í dag.