Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 53
FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
THE ITALIAN JOB
Það er líka puð að vera ræningi, þessu
komast þau Charlize Theron, Mark
Wahlberg og félagar að í endurgerð
myndarinnar Italian Job.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
15
17
18
19
20
TOPP 20 - VINSÆLUSTU LEIGU-
MYNDBÖNDIN - VIKA 9
The Italian Job Spenna
Matchstick Men Drama
Pirates of the Caribbean Ævint.
American Wedding Gaman
My Boss’s Daughter Gaman
Bruce Almighty Gaman
Underworld Ævintýri
Bad Boys 2 Spenna
Dumb and Dumberer Gaman
Cabin Fever Hryllingsmynd
Malibu’s Most Wanted Gaman
Down With Love Söngleikur
Hollywood Homicide Gaman
Freddy vs. Jason Hryllingsmynd
League of Extraord... Ævintýri
Le Divorce Gaman
City of God Drama
Tomb Raider 2 Ævintýri
The Life of David Gale Drama
What a Girl Wants Gaman
Vinsælustumyndböndin
800 7000 - siminn.is
Skemmtilegur sími fyrir þig.
1.980
Léttkaupsútborgun
Nokia 2100
og 750 kr. á mán.
í 12 mán.
Nokia 3200
1.980
Léttkaupsútborgun
og 1.500 kr. á mán.
í 12 mán.
GSM
á góðu verði
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
5
3
9
2
Verð aðeins: 10.980 kr.
Verð aðeins: 19.980 kr.
• 84 gr.
• Rafhlaða: 150 klst. í bið/3 klst. í tali.
• Öflugt númeraminni.
• Titrari.
• Leikir.
• 35 hringitónar.
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum.
• Litaskjár.
• MMS.
• GPRS.
• WAP.
• 106 gr.
• Pólýtónar o.fl.
• Raddmerki fyrir allt að 10 nöfn.
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum.
Flottur sími með mynda-
vél á frábæru verði.
Það hljóta að teljast undarlegtíðindi að undirfataauglýsing
skuli vera bönnuð í landi þar sem
berbrjósta stúlkur skreyta blað-
síðu þrjú í dagblöðum upp á hvern
dag. Auglýsing, sem sést hér fyrir
ofan, sýnir líkama ofurfyrirsæt-
unnar Elle Macpherson og höfðu
kvartanir borist til þeirra sem
hafa eftirlit með auglýsingum um
að fyrirsætan væri að fróa sér á
myndinni. Dæmi nú hver fyrir
sig.
Yfirráð auglýsingastaðla
(Advertising Standards Authority)
í landinu tók mark á kvörtuninni
og bannaði auglýsingafyrirtækinu,
Bendon UK, að birta auglýsinguna
aftur.
Fyrirtækið segist hafa verið
undir áhrifum frá Alfred
Hitchcock myndinni Rear Window
og segja talsmenn þess að beðið
hafi verið um „kvenlega, íburðar-
mikla og stílhreina“ auglýsingu.
Ljósmyndin er tekin í gegnum
skráargat og höfuð Elle sést ekki,
einungis nærbuxur hennar og
brjóstahöld. Þumlar hennar eru
svo undir nærbuxum hennar.
Tískutímaritið Vogue er eitt
þeirra blaða sem auglýsendur fá
ekki að birta auglýsinguna í. Tals-
menn blaðsins segja hana þó
„fallega og ómóðgandi“. ■
Undirfataauglýsing með Elle Macpherson
þótti of svæsin fyrir Breta.
Skrýtnafréttin
AUGLÝSINGIN BANNAÐA
Þessi auglýsing þykir of ögrandi fyrir
gangandi vegfarendur í London.
Nærfataauglýsing
bönnuð í Bretlandi
BÓKMENNTIR Höfundur ævintýr-
anna um Harry Potter, JK Rowl-
ing, segist ekki vilja útiloka það
að hún skrifi fleiri bækur en sjö
um töfradrenginn vinsæla.
Áður hafði hún sagst aðeins
ætla að skrifa sjö bækur, eina um
hvert ár Potters í Hogwarts
galdraskólanum. Nú segist hún
ekki vilja útiloka það að hún muni
einhvern tímann skrifa eina bók
til viðbótar um Harry sem full-
orðinn mann.
Þetta sagði hún í vefspjalli við
aðdáendur sína er haldið var af
tilefni degi bókarinnar. „Ég skrifa
líklegast ekki aðra bók um Potter
eftir skólagöngu hans en ég vil
aldrei segja aldrei. Yfirleitt þegar
ég hef gert það brýt ég loforð mín
strax,“ segir hún.
Rowling er nú að skrifa sjöttu
bókina um Potter. „Ég get ekkert
sagt um hvenær bókin kemur út
en þetta gengur mjög vel. Ég hef
mjög gaman af því að skrifa þessa
bók,“ segir Rowling.
Rowling lofar meiri ástarævin-
týrum í lífi Potters og fleiri áföll-
um. Hvers á pilturinn eiginlega að
gjalda? ■
Fleiri bækur um Harry Potter?
HARRY
POTTER
Síðustu tvö
árin í
Hogwartsskóla
verða víst eng-
inn dans á
rósum. Fleiri
áföll og fleiri
ástarævintýri.