Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Skátarnir
okkar
Ef það á að stækka víkingasveit-ina, þá legg ég til að við reynum
að nota hana í eitthvað gagnlegt.
Hingað til hafa þessir þrautþjálfuðu
og fjölhæfu menn varla verið kall-
aðir út nema til þess að standa svip-
brigðalausir afsíðis með sólgler-
augu og heyrnartæki þegar þjóð-
höfðingjar koma til landsins eða til
að afvopna einhverja fyllirafta með
haglabyssur. Auðvitað er það ágætt
að menn með lambúshettur séu
sendir til að snúa svoleiðis vand-
ræðagemsa niður og kenna þeim
mannasiði, en þess á milli verður
auðvitað að sjá til þess að hörkutól-
in hafi eitthvað annað að gera.
ÉG SÉ fyrir mér vaska sveit
manna sem hægt verður að senda
hingað og þangað í ýmsum erinda-
gjörðum. Til dæmis eru verulegar
brotalamir í heilbrigðisþjónustunni.
Gamalt fólk og langveikir fá ekki
heimahjúkrun nema í mýflugumynd
um þessar mundir. Fólk kemst ekki
upp úr rúmi sínu. Það liggur jafnvel
á gólfinu heima hjá sér og getur sig
hvergi hreyft. Þó það sé vissulega
góðra gjalda vert að verja landið,
þá er nú líka mikilvægt að fólkinu
líði vel í landinu. Hér gæti víkinga-
sveitin komið að góðu gagni.
OKKUR VIRÐIST líka ganga illa
að reka heilbrigðisþjónustu yfirhöf-
uð með skilvirku móti, þannig að
ekki þurfi endalaust að skera niður
með tilheyrandi ramakveini. Hér
mætti hæglega senda víkingasveit-
ina á vettvang til þess að koma á
hagkvæmu skipulagi. Kannski sér-
sveitarmennirnir geti þá í leiðinni
sest niður og markað stefnu í heil-
brigðismálum til lengri tíma. Hver
veit? Þetta eru sérþjálfaðir menn
sem allir hafa tekið sérstakt sál-
fræðipróf. Það gæti gagnast hér.
ÞANNIG má sjá fyrir sér að vík-
ingasveitin verði ekki bara eitt-
hvað leynifélag í bakherberginu
hjá ríkislögreglustjóra, heldur
verði um raunverulega þjóna
fólksins að ræða. Til mikils er að
vinna. Alls staðar þar sem er grát-
ur, óhamingja, erfiðleikar, sorg, of-
beldi, brostnir draumar, óréttlæti –
alls staðar þar sem byggja þarf
brýr, leita sátta, koma á réttlæti,
stuðla að framförum, þerra tár og
sefa ótta, þar verður víkingasveit-
in komin, ávallt til þjónustu reiðu-
búin.