Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 2
2 6. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
„Ekki bankabækurnar.“
Páll Bragi Kristjónsson er forstjóri bókaútgáfunnar
Eddu. Þar stendur til að auka hlutafé eftir að í ljós
kom að staða félagsins var verri en eigendur
gerðu ráð fyrir þegar þeir keyptu.
Spurningdagsins
Páll Bragi, var ekki í lagi með bæk-
urnar?
■ Asía
Tóku 100 milljónir
af áhöfn sinni
Útgerðarmenn Ýmis BA-32 lækkuðu skiptaverð áhafnar sinnar um tugi
milljóna króna samkvæmt rannsókn Verðlagsstofu skiptaverðs. Gert í
fullri sátt við áhöfnina segir annar eigendanna.
SJÁVARÚTVEGUR Fyrrverandi út-
gerð Ýmis BA 32 sem gerður var
út frá Bíldudal, hafði tæpar 100
milljónir af áhöfn sinni sam-
kvæmt úrskurði
Verðlagsstofu
skiptaverðs, en
rannsókn hefur
staðið yfir um
hríð. Kemur
fram í úrskurði
num að við skoð-
un á uppgjörs-
háttum yfir 13
mánaða tímabil
hafi komið í ljós að útgerðin lækk-
aði skiptaverðið um heilar 92
milljónir króna en slíkt hafði í för
með sér lækkun á hásetahlut um
4.4 milljónir króna eða um 340
þúsund krónur á mánuði.
„Það sem á sér stað þarna er
það sama og viðgengst víða annars
staðar í sjávarútveginum,“ segir
Hlynur Björnsson, annar eigenda
útgerðarinnar. „Kvótastaðan var
slæm og leigukvótinn dýr og við
gerðum upp á fullu verði en þó í
fullu samkomulagi við alla okkar
áhöfn. Reksturinn var alltaf erfið-
ur og það varð að samkomulagi og
í sátt við alla áhafnarmeðlimi að
gera þetta fremur svona og halda
bátnum úti eins mikið og hægt var
í stað þess að senda fólkið heim og
gera ekkert.“
Skipið sem um ræðir er eitt
þeirra skipa sem keypt voru frá
Kína fyrir nokkrum árum. Það
var selt í fyrrasumar og er nú
gert út frá Garði undir nafninu
Sigga Bjarna GK-5
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélagsins, segir það með
ólíkindum ef áhöfnin sækir ekki
rétt sinn gagnvart útgerðinni en
samkvæmt heimildum hefur mál
þetta komið inn á borð Verkalýðs-
félags Vestfirðinga. Fimm menn
voru að jafnaði í áhöfn Ýmis en
tveir þeirra voru útgerðarmenn-
irnir sjálfir, Hlynur og bróðir
hans Sindri Björnsson. Þeir
keyptu annan minni bát á síðasta
ári og stunda áfram útgerð frá
Bíldudal.
Valtýr Þór Hreiðarsson, for-
stöðumaður Verðlagsstofu, vildi
ekki tjá sig um þetta einstaka mál
enda bundinn þagnarskyldu.
Hann sagði að þetta mál væri síð-
ur en svo einsdæmi en viður-
kenndi að upphæðin væri í hærri
kantinum. Verðlagsstofa er aðeins
rannsóknarstofnun en hefur eng-
ar heimildir til aðgerða af neinu
tagi og sagði Valtýr að í málum
sem þessum væri viðeigandi út-
gerðum og áhöfnum sendar niður-
stöður rannsóknanna auk þess
sem viðkomandi verkalýðs- eða
sjómannafélög fengju afrit. Eftir
það væri afskiptum stofnunarinn-
ar lokið. Ef ekki væri vilji hjá
áhafnarmeðlimum sjálfum til að-
gerða félli málið að líkindum í
gleymsku.
albert@frettabladid.is
Samningar tókust hjá Rafiðnaðarsambandinu:
Þriggja mánaða þóf
leyst á fjórum tímum
KJARASAMNINGAR Síðdegis í gær
náðist samkomulag um drög að
kjarasamningi á milli Rafiðnaðar-
sambands Íslands og fulltrúa
atvinnurekenda. Samningurinn
verður lagður fyrir samninga-
nefnd Rafiðnaðarsambandsins í
dag og verði hann samþykktur
þar fer fram póstkosning meðal
félagsmanna.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að skyndileg viðhorfsbreyt-
ing hafi orðið hjá gagnaðilum
þeirra í gær. „Við erum búnir að
vera að glíma við þetta í eina þrjá
mánuði og svo semjum við um
þetta á rúmum fjórum tímum,“
segir hann.
Samningurinn mun gilda fyrir
um tvö þúsund rafiðnaðarmenn á
almenna vinnumarkaðinum en í
samningsdrögunum er að finna
sérstakar ráðstafanir vegna virkj-
unar- og álversframkvæmda á
Austurlandi.
Aðspurður segist Guðmundur
ekki vilja geta sér til um hvað hafi
valdið skyndilegri viðhorfsbreyt-
ingu fulltrúa atvinnurekenda í
samningunum en um helgina sló
mjög í brýnu milli Guðmundar og
stjórnarformanns Landsvirkjunar
og hótaði Rafiðnaðarsambandið
að ganga frá samningaborðinu í
kjölfar þess. Stjórnarformaðurinn
dró orð sín til baka. ■
Ferðalög til
Bandaríkjanna:
Fólk ræður
hvert það fer
STJÓRNMÁL „Hver er tilgangurinn
yfir höfuð, er útgangspunkturinn
alltaf sá að allir séu glæpamenn
þangað til annað sannast,“ spyr
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sam-
fylkingunni, en frá og með 30.
september næstkomandi þurfa ís-
lenskir ríkisborgarar ásamt öðrum
að láta taka af sér mynd og fin-
graför við komu til Bandaríkjanna.
Halldór Ásgrímsson sagði á Al-
þingi í gær að Íslendingar gætu lít-
ið gert varðandi þessar nýju regl-
ur. En fólk hefði alltaf valið hvort
það færi til Bandaríkjanna eða
ekki. ■
SLOBODAN PRALJAK
Þurrkar tár af hvörmum sér þegar hann
kvaddi Króatíu til að gefa sig fram við
stríðsglæpadómstólinn í Haag.
Meintir stríðsglæpamenn
gefa sig fram:
Segjast
saklausir
HAAG, AP Sex Króatar hafa gefið
sig fram við stríðsglæpadómstól-
inn í Haag. Þeir voru allir
háttsettir einstaklingar í sjálf-
stofnuðu ríki Króata í átökunum í
Júgóslavíu snemma á síðasta ára-
tug. Mönnunum sex er gefið að
sök að hafa tekið virkan þátt í
þjóðernishreinsunum á múslim-
um í Bosníu árið 1993, meðal ann-
ars með pyntingum, nauðgunum
og morðum. Þeir segja ástæðuna
fyrir því að þeir ákváðu að gefa
sig fram vera að þeir séu saklaus-
ir af öllum ásökunum. ■
SPRENGJU VARPAÐ Á ÚTIMARK-
AÐI Þrír lögreglumenn og að
minnsta kosti 56 óbreyttir borg-
arar særðust þegar handsprengju
var varpað á útimarkaði í
Pulwama í indverska hluta
Kasmír. Uppreisnarmenn köstuðu
sprengjunni í átt að bílalest ind-
verska hersins en misstu marks
með þeim afleiðingum að
sprengjan sprakk innan um
fjölda óbreyttra borgara.
Afkastageta og veðurfar:
Flugslysið
rannsakað
SLYS „Rannsóknin beinist að af-
kastagetu flugvélarinnar og
veðurfarslegum þáttum,“ segir
Þorkell Ágústsson hjá rannsókn-
arnefnd flugslysa um flugslys
TF-TOF sem varð við Stóru-Bót
í Rangárvallasýsu á sunnudag.
Einn af fjórum sem í vélinni
voru reyndist meira slasaður en
talið var í fyrstu og fór hann í
aðgerð í gær.
Vettvangsrannsókn slyssins
er lokið. Flugvélin er fjögurra
sæta, eins hreyfilsvél af gerð-
inni Jodel DR220. Slysið varð
þegar flugvélinni klekktist á í
flugtaki. ■
Skipi fylgt til hafnar:
Veiðarfæri
talin ólögleg
SJÁVARÚTVEGUR Togararnum Gull-
ver NS 12 var fylgt til hafnar í
Seyðisfirði í gærdag.
Varðskipið Ægir stöðvaði veið-
ar skipsins og fylgdi því til hafnar
vegna gruns um að notast hefði
verið við net með of litlum
möskvum við karfaveiðar um
fjórtán sjómílur suðvestan af
Hvalbaki.
Gullver er 674 brúttótonna ís-
fiskveiðiskip sem gert er út frá
Seyðisfirði. Sýslumaður þar hefur
málið til rannsóknar. ■
Stofnun ríkis Palestínumanna:
Seinkað um mörg ár
ÍSRAEL, AP Forsætisráðherra Ísra-
els, Ariel Sharon, hefur lýst yfir
að stofnum ríkis Palestínu-
manna gæti seinkað um mörg
ár. Þessi yfirlýsing kemur í kjöl-
far þess að ísraelski herinn
hyggst draga hersveitir sínar
frá Gaza-svæðinu og fjórum
landnemabyggðum á Vestur-
bakkanum að fyrirskipun Shar-
ons. Brotthvarfinu er ætlað til
að draga úr spennu og langvinn-
um óeirðum á svæðinu.
Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, fagnaði brotthvarfi Ísra-
elsmanna frá Gaza-svæðinu, en
undirstrikaði að það yrði að
vera gert í samráði við Palest-
ínumenn og eftir friðaráætlun
milli þjóðanna tveggja. Sharon
ítrekaði að þetta væri einhliða
ákvörðun flokksins hans. Það
andar mjög köldu á milli leiðtog-
anna tveggja eftir að Sharon gaf
út yfirlýsingu um að hann útli-
okaði ekki að Ísraelar myndu
ráða Arafat af dögum.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um er meirihluti Ísraela og
Palestínumanna fylgjandi brott-
hvarfinu, eða 73% Palestínu-
manna og 64% Ísraela. Aðeins
34% Palestínumanna trúa þó að
áformunum verði framfylgt, á
móti 54% Ísraela. ■
„Með ólík-
indum ef
áhöfnin sækir
ekki rétt sinn
gagnvart út-
gerðinni.
ÚR HAFRAHVAMMAGLJÚFRI
Í samningsdrögunum eru sérstök ákvæði
um framkvæmdirnar fyrir austan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
KÍNASKIP
Ýmir BA var eitt Kínaskipanna líkt og Eyvindur KE en rekstrargrundvöllur þeirra reyndist
mörgum útgerðum ofviða.
ARIEL SHARON
Ætlar ekki að leyfa stofnun ríkis
Palestínumanna í náinni framtíð.
NÝ BENSÍNSTÖÐ Atlantsolía opnar
í dag nýja sjálfsafgreiðslubensín-
stöð við Hafnarfjarðarhöfn. Að
sögn Huga Hreiðarssonar, mark-
aðsstjóra Atlantsolíu, hófust fram-
kvæmdir við stöðina hinn 7. janúar
síðastliðinn. Stöðin verður opnuð
klukkan hálf tvö í dag og mun um-
hverfisráðherra vígja stöðina til
notkunar.
■ Viðskipti