Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 10

Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 10
10 6. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR STANDIÐ VÖRÐ UM VATNIÐ Kínversk stjórnvöld hafa hrundið af stað herferð sem á að hvetja landsmenn til að standa vörð um vatnið. Vandræði í stjórnarmyndun: Tamílar hóta að grípa til vopna SRI LANKA, AP Allt virðist vera á hverfanda hveli í Sri Lanka eftir kosningarnar þar á föstudaginn. Þótt flokkur forsetans hafi náð yfirburðasigri tókst honum ekki að fá hreinan þingmeirihluta og brösulega virðist ætla að ganga að finna samstarfsflokk. Forseti landsins, Chandrika Kumara- tunga, hætti við að skipa Laks- hman Kadirgamar í embætti for- sætisráðherra á síðustu stundu, og ákvað í staðinn að Mahinda Rajapakse skyldi hljóta embætt- ið. Eftir kosningarnar lýsti flokk- ur forsetans yfir að fyrsta verk- efni flokksins myndi vera að taka aftur upp friðarviðræður við hreyfingu Tamíla sem berjast fyrir sjálfstæði frá Sri Lanka. Þessir erfiðleikar í ríkisstjórnar- myndunum hafa þó sett strik í reikninginn og hafa Tamílar hótað að grípa aftur til vopna. Ta- mílar hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki í tvo áratugi og er talið að alls um 60 þúsund manns hafi lát- ið lífið í átökum þeirra og stjórn- valda frá Sri Lanka. ■ Vildi á sama stað og pabbinn Drengurinn sem var barinn nær til ólífis á laugardaginn var er sonur Valgeirs Víðissonar sem hvarf árið 1994. Tveimur árum síðar, þegar hann var níu ára, varð hann fyrir fólskulegri árás. Skólaganga hans er næstum engin. Móðir piltsins rekur sögu hans. Drengurinn sem nú liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir fólsku- lega árás um helgina er sonur Val- geirs Víðissonar sem hvarf spor- laust sumarið 1994. Þá var dreng- urinn sjö ára gamall. Tveimur árum síðar varð hann fyrir sér- lega ógeðfelldri líkamsárás í Bú- staðaskógi við Bústaðakirkju. Í þeirri árás var hann meðal annars neyddur til að anda að sér gasi og gleypa töflur. Í kjölfarið þjáðist hann af ofskynjunum. Nú um helgina varð hann aftur fyrir stórfelldri líkamsárás og var lífshættulega slasaður með mikl- ar innvortis blæðingar þegar hann komst undir læknishendur. Hann er nú á batavegi en mjög kvalinn. Eftir að faðir hans hvarf spor- laust fyrir tíu árum var hann sendur í sérstaka áfallameðferð á barna- og unglingageðdeild Land- spítalans. Hann var svo nýbyrjað- ur í nýjum skóla þegar árásin við Bústaðakirkju átti sér stað og í kjölfarið var hann sendur á geð- deildina á ný. Alltaf í óvissu um föður sinn Unnur Millý Georgsdóttir, móðir piltisins, segir að rekja megi vandamál sonar síns meðal annars til þess að hann hafi lengi verið í óvissu um afdrif föður síns og gert sér vonir um að hann kæmi fram á ný. Þá segir hún að sögusagnir um tengsl Valgeirs við fíkniefnaheiminn hafi haft mikil áhrif á son sinn og hann hafi vilj- að líkja eftir því líferni. „Hann hélt að ef hann lifði eins og sagt var að pabbi hans hefði lifað og dæi þá myndi hann enda á sama stað og pabbi sinn,“ segir hún. Unnur Minný segir að sögur um fíkniefnamisferli Valgeirs hafi ætíð fylgt syni hans og hafi haft mótandi áhrif á allt hans líf. „En ég veit að Valgeir var ekki í þessu þegar hann hvarf og ég hef sagt honum það,“ segir hún. Sonur Unnar Minnýjar leiddist út í neyslu eiturlyfja og hefur ver- ið inni og úti af stofnunum meira og minna allt sitt líf. Fyrir tæpu ári síðan gerði hann tilraun til sjálfsvígs og varð fyrir varanlegu heilsutjóni sökum súrefnisskorts til heila. Þá var hann staddur í Bandaríkjunum. Mætti alltaf fordómum Unnur Millý segir að allt frá því faðir drengsins hvarf hafi hann átt erfitt með að finna fót- festu í lífinu. „Hann hefur alltaf verið utangarðs,“ segir hún. Hún segir að hann hafi mælst með ágæta greind en aldrei getað nýtt sér það enda lítið verið í skóla. Hún segir að hann hafi alltaf mætt miklum fordómum vegna hvarfs föðurins og að nágrannar hafi varað börn sín við að leika sér með honum auk þess sem hann hafi mátt búa við stöðugar sögusagnir og getgátur um hvarf föðurins. „Fólk benti hingað og þangað og fullyrti að þar væri pabbi hans grafinn,“ segir hún. Látinn leika fíkil Eftir líkamsárásina árið 1998 var drengurinn vistaður á barna- og unglingageðdeildinni við Dal- braut. Unnur Millý ber þeirri dvöl ekki fagra söguna. Hún segir að þar hafi börnum verið haldið niðri á sterkum lyfjum og þau látin lít- illækka sig sjálf. Til dæmis var tekið upp á myndband þar sem þau voru látin leika eitur- lyfjafíkla. Á þessu myndbandi flytja tveir drengir undir tíu ára aldri, annar þeirra sonur Unnar Millýjar, texta með upplýsingum um eiturlyf og líkja eftir vímu- efnaneytendum meðal annars með því að soga hvítt duft upp í nefið í gegnum upprúllaðan fimm hundruð króna seðil. Þar á eftir taka þeir þátt í sviðsettu viðtali þar sem þeir segja „reynslusög- ur“ sínar af neyslu eiturlyfja. Þetta myndband sýndi hún blaða- manni í gær. Bannað að sýna tilfinningar Unnur Millý telur ekki að dvöl sonar síns á barna- og unglinga- geðdeildinni hafi veri honum til gagns heldur þvert á móti. Hún er mjög gagnrýnin á þær aðferðir sem þar er beitt. „Börnunum er bannað að sýna tilfinningar. Þegar maður kemur þarna inn sé dauða- þögn og svo ef eitthvert barnið fer að hlæja þá eru starfsmennirnir komnir með sprauturnar og þeim er haldið niðri á rítalíni og öðrum efnum,“ segir hún. Áfallastreita eftir árás Unnur Millý segir að á geð- deildinni á Íslandi hafi hann verið greindur með athyglisbrest og of- virkni hér. Þar hafi hins vegar ekki komið fram að dyslexía á háu stigi sem greindist hjá honum þegar hann var tólf ára. Eftir sjálfsvígstilraunina í fyrra fékk sonur Minnýjar lækn- isþjónustu í Bandaríkjunum. Þar komust læknar að því að það sem hrjáði hann væri áfallastreita og alvarlegt þunglyndi í kjölfar þess. Áfallastreita hrjáir fólk sem verð- ur fyrir verulegum áföllum og er meðal annars þekkt hjá fórnar- lömbum ofbeldis og þeim sem lif- að hafa stríðsátök af. Þjáðist af ofskynjunum Frá og með þeim tíma segir hún að sonur sinn hafi átt erfitt með svefn sökum vondra draum- fara og jafnvel þjáðst af ofskynj- unum og myndbirtingum og sýnt önnur merki sem samræmist áfallastreitu. „Í kjölfarið fékk hann svo miklar ofskynjanir og var svo hræddur að ég þurfti að halda utan um höfuðið á honum á meðan hann svaf. Ef ég missti tak- ið og sofnaði þá vaknaði hann. Hann sá fólk hreyfa sig á mynd- um,“ segir hún. Utangarðs í kerfinu Skólaganga hefur verið sama sem engin og segir Unnur Millý að skólarnir hafi einfaldlega ekki tek- ið hann að sér. Hún segir að hópur ungmenna verði utangarðsfólk og „verði fyrir einelti af kerfinu“. Unnur Millý segir að í undir- heimum Reykjavíkur sé algengt að stálpaðir menn gangi um og bjóði jafnvel börnum eiturlyf og „spili sig stóra“ og herji á ungt fólk sem er utangarðs í skólakerf- inu. Hún segir að unglingarnir séu hvergi óhultir fyrir þessum mönnum sem jafnvel herji á AA- samkomur. Eftir sjálfsvígstilraunina í fyrra hefur sonur Unnar Millýjar verið í stöðugri endurhæfingu. Hann fór í meðferð en var nýver- ið fallin aftur þegar árásin á laug- ardag átti sér stað. Móðir hans vonast til þess að árásin verði til þess að hann snúi alfarið baki við fíkniefnaneyslunni enda hefur hann nú fundið áþreifanlega fyrir því hversu hættulegur sá heimur geti verið. „Það er eins og það sé alltaf verið að refsa honum. Í hvert sinn sem hann er að koma undir sig fótunum dynur yfir áfall,“ segir hún. Hún telur þó að eftir árásina á laugardaginn muni syni hennar takast að halda sig frá vímuefnum og því líferni sem þeim fylgir. ■ Skyndiflóð í Mexíkó: Óttast um líf tuga manna MEXÍKÓ, AP Að minnsta kosti fimmtán manns fórust þegar ár flæddu yfir bakka sína í norður- hluta Mexíkó, skammt frá landa- mærum Bandaríkjanna. Á fimmta tug manna er enn saknað. Úrhellisrigning olli því að vatnsborð Escondido-fljótsins óx um átta metra á fimmtán mínút- um. Vatnsflaumurinn hreif með sér fjölda húsa í bæjunum Piedras Negras og Villa de Fuente. Þyrlur bandaríska landamæraeftirlitsins tóku þátt í björgunarstarfinu og sóttu fólk sem sat fast á þökum húsa sem voru umflotin vatni. ■ R Ú N A www.kodakexpress.is Sími 570 7500 www.hanspetersen • 3.2 milljón pixla • 3x Optical aðdráttur (35-105mm) • 3,4x Digital aðdráttur (106-357mm) • Tekur allt að 16 myndir í röð á 2 sek. sem þú getur síðan valið úr, t.d. íþrótta-, hesta- eða golfmyndir. • Tekur video • Allt niður í 1 cm nærmynd (macro) • AA eða Li-ion hleðslurafhlöðumöguleikar G 4 G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D CHANDRIKA KUMARATUNGA Forseti Sri Lanka gengur til kosn- inga, en þrátt fyrir sigur náði flokkur hennar ekki þingmeirihluta. UNNUR MILLÝ GEORGSDÓTTIR Segir að sonur sinn hafa alls staðar mætt fordómum vegna sögusagna sem gengu um föður hans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.