Fréttablaðið - 06.04.2004, Side 20

Fréttablaðið - 06.04.2004, Side 20
Fullt hús matar Egg eru ofarlega í huga margra nú þegar páskar nálgast. Flestir hugsa um súkkulaðiegg en hænueggin eru mun hollari og einstaklega gómsæt í einfaldleika sínum, til dæmis linsoðin með ögn af maldon-salti. „Uppáhaldsmaturinn minn mundi vera góður ítalskur réttur að hætti La Primavera og konunnar minnar. Það er að segja pasta sem ekki er ofsoðið og ekki drekkt í rjómasósum,“ segir sjónvarpsmaðurinn góðkunni Gísli Marteinn Baldursson. Til að fá frekari útleggingu á slíkri matreiðslu nefnir hann hinn fræga rétt spaghetti alla puttanesca, sem út- leggst á íslensku „spagettí port- konunnar“. Þá uppskrift kann hann greinilega sjálfur og þarf hvorki hjálp La Primavera né eiginkonunnar. „Maður steikir ansjósuflök og hvít- lauk við hægan eld, þannig að það maukist, bætir út í það niðursoðnum tómötum, slatta af svörtum ólífum og kapers og lætur malla í smátíma. Síð- an er sósunni hellt út á spagettí sem er soðið nákvæmlega eins og á að gera, hvorki of mikið né of lítið. Til hátíðabrigða er flott að rífa smá steinselju yfir.“ Gísli Marteinn kann líka að út- skýra nafngiftina á réttinum: „Hrá- efnið í hann getur allt geymst lengi hvað kom sér vel fyrir portkonurnar sem gátu ekki mikið verið að spóka sig á mörkuðunum, höfðu óreglulegan vinnutíma og komu yfirleitt heim til sín seint þegar búið var að loka öllum búð- um.“ ■ Tómatar: Nýir íslenskir árið um kring Tómatar eru nú ræktaðir hér á landi árið um kring. Í vetur hafa ís- lensku tómatarnir verið meira áberandi en áður. Nú má auðveld- lega þekkja íslenska tómata á umbúðunum og sjá má á merking- um hjá hvaða bónda tómatarnir eru ræktaðir. Þegar kemur að matreiðslu eru möguleikarnir óendanlegir. Tómata-carpaccio 8–10 tómatar, vel þroskaðir nýmalaður pipar salt (gjarnan sjávarsalt) 3 msk. ólífuolía 1 msk. balsamedik 2 tsk. hlynsíróp 1 msk. furuhnetur smábiti af parmaosti nokkur basilíkublöð (má sleppa) Tómatarnir skornir í þunnar sneiðar og raðað á stóran disk eða kringlótt fat. Best er að byrja í miðjunni, raða sneiðunum í sístækkandi hringi og láta þær skar- ast vel. Kryddað með pipar og salti. 3 msk. ólífu- olía, 1 msk. bals- amedik og 2 tsk. hlynsíróp hrist eða þeytt saman og dreypt jafnt yfir. Plastfilma breidd yfir og látið standa í 20–30 mínútur. Á meðan eru furuhneturnar ristaðar á þurri pönnu þar til þær taka lit. Dreift yfir tómatana og síðan eru nokkrar flísar skornar af parmaostinum með ostaskera, settar ofan á og skreytt með basilíku. Frönsk tómatbaka 200 g hveiti 90 g smjör, skorið í bita 1 egg 3 msk. sýrður rjómi (helst 36%) eða rjómi 1 msk. dijon-sinnep 8 tómatar, vel þroskaðir nýmalaður pipar salt nokkrar greinar af fersku timjani Hveiti og smjör sett í matvinnnsluvél og hún látin ganga smástund. Egginu bætt út í og vélin látin ganga þar til unnt er að hnoða deig- ið saman. Svolitlu hveiti bætt við ef deigið er of lint, köldu vatni ef það er of stíft. Vafið í plast og kælt í hálftíma. Ofninn hitaður í 180˚C. Deigið er svo flatt þunnt út (gott að breiða bökunarpappír undir og fletja það út á honum), lagt yfir meðalstórt bökuform eða lausbotna form, þrýst létt niður og barmarnir snyrtir. Sýrðum rjóma og sinnepi blandað saman og smurt á botninn. Tómatarnir helmingaðir, fræin skafin úr þeim með teskeið og þeir síðan skornir í sneiðar eða geira sem raðað er á bökubotninn. Kryddað með pipar og salti, blöðin strokin af timjangreinunum og dreift yfir, og bakað í 40–45 mínútur, eða þar til tómatarnir eru byrjaðir að taka lit. Tuborg: Hagstæðustu 0,5 lítra flöskurnar Fyrir skömmu lækkaði verðið á Tuborg í hálfs lítra umbúðum, bæði í dósum og flöskum. Tuborg í 0,5 lítra glerflösku kostar nú 198 kr. Eftir verðlækkunina skipar þessi danski gæðabjór sér í flokk ódýrustu bjórtegunda í verslunum ÁTVR og gleður það þá bjórunn- endur sem sækjast eftir hámarksgæðum á hagstæðu verði. Grænn Tuborg er framleidd- ur af Ölgerð Egils Skallagrímssonar sam- kvæmt ströngustu kröfum Tuborg um gæði og efnainnihald. Hann er dæmigerður „skandinavískur pilsner“, með meðalfyllingu og mildu bragði, liturinn er ljósgullinn og vínanda er stillt í hóf. Mikil alúð er lögð við að varðveita hin sérstöku bragðgæði sem Tuborg státar af og strangt eftirlit með fram- leiðslunni tryggir að bragð og gæði haldist þau sömu hvarvetna í veröldinni. Hátíðarfugl er kjúklingur sem er séralinn upp í 3,5-4 kg að þyngd. Hátíðarfugl fæst bæði reyktur og óreyktur. Eldunartími á hátíðarfugli er um 40 mínútur á hvert kg. Nákvæmari eldunarleiðbeiningar eru á umbúðunum. Hátíðarfugl Hollur og góður hátíðarmatur Reykjagarður hf Hátíðarfuglinn fæst í öllum helstu verslunum.Verðlaunavörur frá Reykjagarði Gísli Marteinn Elskar spagettírétt portkonunnar. Uppáhaldsmatur Gísla Marteins: Góður einfaldur ítalskur réttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.