Fréttablaðið - 06.04.2004, Side 38

Fréttablaðið - 06.04.2004, Side 38
Hrósið 30 6. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR Rocky ... fær forsætisráðherra fyrir að vilja stækka þjóðgarðinn á Þing- völlum. Löngu er tímabært að endurskoða lögin frá 1928 og tryggja að sérstæð náttúra Þing- vallasvæðisins verði vernduð. Garðatorgi, Garðabæ - sími 565 6550 FÍN FYRIR PÁSKANA stærðir 92-128 Nýkomið mikið úrval af Petepino barnafötum.     Á góðum bíl í fríið með Avis Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005. Verð háð breytingu á gengi. Verona kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk Bologna kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk Milano kr. 2.400,- á dag m.v. B flokk www.avis.is Við gerum betur Ítalía AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is Munið Visa afsláttinn Soname er af tíbeskum aðals-ættum en hún flúði frá Tíbet árið 1989, aðeins 15 ára að aldri, eftir að Kínverjar hertóku landið. Ferðin til Indlands var stórhættu- leg og tók sex vikur. Þegar hún komst á leiðarenda bjó hún í Dharamsala í Norður-Indlandi á sama stað og Dalai Lama. Þar vann hún og lærði í sex ár áður en hún ferðaðist til Englands um Frakkland. Soname er 29 ára nú og býr í Brighton þar sem hún starfar og lifir tvöföldu lífi, sem skúringa- kona á daginn en söngkona á kvöldin. „Þannig safna ég pening- um og fer svo í hljóðverið til þess að taka upp lögin mín,“ útskýrir Soname með bjartri og barnalegri röddu. „Ég þarf að borga hljóð- færaleikurunum. Núna er þetta orðið aðeins auðveldara þar sem ég er með plötusamning.“ Hún gaf út plötu í Bretlandi fyrir stuttu og það varð til þess að nú er verið að skrifa bók um ævi hennar. „Það var skrifað um mig í dagblaði hérna þar sem ég var að tala um uppruna minn. Eftir það hringdi rithöfundur í mig og vildi forvitnast meira um ævi mína. Ég fer til London um hverja helgi núna til þess að tala um líf mitt í þrjár klukkustundir. Þetta eru mjög persónulegir hlutir sem ég er að tala um svo ég tárast oft. Oft held ég að ég sé komin nægilega langt frá þessum atburðum að þeir hafi ekki lengur áhrif. Þá verð ég hissa þegar ég græt, og hlæ svo- lítið áður en ég tala meira.“ Vegna þess að Soname er flóttamaður er margt í lífi hennar sem reynist henni erfiðara en mörgum. Til dæmis þarf hún að fá sérstakt leyfi frá útlendingastofu til þess að komast til Íslands. „Ég vil hjálpa Tíbet með því að syngja. Hluti af Tíbet er enn í fangelsi og það er á ábyrgð allra þjóða. Ég er því ekki bara að hugsa um sjálfa mig. Ég er að hugsa um allt land mitt.“ Lög hennar hafa þó engan póli- tískan boðskap. Þau fjalla um and- leg málefni og náttúruna sem er henni er greinilega mjög hugleik- in. „Tíbet hefur breyst mjög mik- ið frá því að ég bjó þar fyrir 14 árum. Ég man þegar nágranni okkar fékk sjónvarp og það voru stundum 30 til 40 manns inni í stofu hjá honum að horfa saman á sjónvarpið. Nágranninn okkar eldaði og gaf öllum að borða. Það kom fólk til hans á hverju kvöldi, ég held að þetta hafi verið svolítið stressandi fyrir hann,“ segir hún og hlær. „Eins og að reka bíóhús.“ Tónleikar Steintryggs og Soname Yangchen verða í Austur- bæ, 15. apríl. Forsala miða er í 12 tónum. ■ Þessi dagur var glataður fyrir, og svo er manni dömpað! Hvað næst? Ætli ég verði fyrir bíl? Nei, varla! Grey kallinn! Þú verður bara að gleyma henni sem fyrst! Viltu kannski að við náum í bjór handa þér og gefum þér smá nudd? Ætli maður verði ekki bara að horfa á ljósu punktana við að vera dömpað! Vill hjálpa Tíbet með söng Tónlist SONAME YANGCHEN ■ Flóttakonan frá Tíbet segist vonast til þess að fá leyfi til Íslands svo hún geti sungið fyrir frelsi þjóðar sinnar hér á landi. SONAME Flúði frá Tíbet þegar hún var 15 ára, býr nú í Bretlandi þar sem hún kem- ur list sinni á framfæri.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.