Fréttablaðið - 06.04.2004, Qupperneq 40
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Snjóleitin
mikla
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Íslenskir skíðamenn hafa í veturverið í skemmtilegum ratleik um
landið. Leikurinn snýst um að finna
lengstu snjóræmuna til að renna sér
á. Hingað til hafa Norðlendingar haft
vinninginn og Akureyri, Dalvík,
Siglufjörður og Tindastóll hafa þjónað
sem hjálparstofnanir fyrir sunn-
lenska skíðamenn. Þar er nú daglega
tekið á móti aðframkomnum og snjó-
þyrstum ferðalöngum. Snjófíklarnir
flykkjast norður, klyfjaðir lítt notuð-
um búnaði í leit að lækningu og til að
svala fíkn sinni.
VIÐ sem göngum með þessa bakteríu
í blóðinu leitum logandi ljósi að snjón-
um. Bakterían herjar árstíðabundið á
afmarkaðan hóp manna og leggst í
dvala á vordögum. Þennan þriðju-
dagsmorgun eru nokkrir okkar stadd-
ir á Siglufirði, en hér virðast heima-
menn hafa gert langtímasamning
snjóframleiðslu með magnafslætti við
æðri máttarvöld. Fjörtíu sunnlensk
krakkakríli kútveltast nú í Siglufjarð-
arskarði og skemmta sér konunglega,
fá sér hafragraut, hoppa í koddaslag í
kojum og búa til dýnuhús. Mega
stelpur ekki vera hér? spyr lítil
stubba þegar bíllinn rennur inn í
Strákagöng, en tekur gleði sína þegar
henni er tjáð að skíðabrekkurnar
hljóti að heita Stelpubrekkur.
SUNNLENSKIR skíðamenn eru í
útrýmingarhættu og margir eru ef-
laust búnir að höggva skíðin sín niður
í eldivið eða nota þau í girðingar-
staura. Brátt verður ekki úr vegi að
opna stórverslunina, Góði skíða-
hirðirinn, þar sem bugaðir skíðamenn
geta losað sig við snjórennslisplanka
sem taka upp geymslupláss. Svo má
reka skíðastafi í gegnum snjóþoturn-
ar sem þá geta þjónað sem fyrirtaks
regnhlífar í nýrri gróðurhúsa-
veðráttu.
EN HVAÐ skal gera við snjólausar,
sunnlenskar skíðabrekkur? Bláfjöll-
um má breyta í fjallgöngubúðir, þar
sem æfa má leðjugöngu í misbröttum
fjallshlíðum. Þar má einnig halda
sjálfshjálparnámskeið fyrir skíða-
menn sem hafa ákveðið að hefja nýtt
líf án skíðanna sinna. Í botnlausri ör-
væntingu sinni hefur þó skíðafíklum
dottið í hug að hefja snjóframleiðslu í
sunnlenskum skíðalöndum. Þeir vilja
fjárfesta í sérlegum snjóvélum eins
og tíðkast í ítölskum fjallahéröðum.
Ekki er öll vitleysan eins, segir
kannski einhver, en það er þó margt
vitlausara en að búa til snjó á Íslandi.
VERTU fiAR SEM
FJÖRI‹ ER!
Fylgstu me› dagskránni
WWW.NORDUR.IS