Fréttablaðið - 25.04.2004, Page 29
22 25. apríl 2004 SUNNUDAGUR
Við hjónin kunnum stórkost-lega við okkur í Svíþjóð. Land-
ið er fallegt og skemmtilegt og
Svíar taka vel á móti Íslending-
um,“ segir Svavar Gestsson,
sendiherra Íslands í Svíþjóð.
Hann neitar því ekki að hann
sakni þess einstaka sinnum að
vera ekki virkur á hinum pólitíska
vettvangi en hyggur ekki á endur-
komu í íslenska pólitík.
„Sendiherrastarfið er ekki svo
ólíkt hinu pólitíska starfi og þetta
er minni breyting en margir
halda,“ segir Svavar. „Það að vera
stjórnmálamaður snýst ekki bara
um það að standa í ræðustól og
vera í sjónvarpi. Það að vera
stjórnmálamaður er að vinna með
fólki, skapa hreyfingu og skipu-
leggja atburði. Það er ég að gera í
þessu starfi.“
Menning og viðskipti
Svavar segir tvennt standa upp
úr á þessu ári er varðar samskipti
Íslands og Svíþjóðar. „Annars
vegar eru það menningaratburðir.
Sá stærsti var á dögunum þegar
Guðbergur Bergsson fékk Nor-
rænu bókmenntaverðlaunin frá
sænsku akademíunni. Það var
stór stund fyrir Ísland og vekur
áhuga á bókum Guðbergs um all-
an heim. Þetta er í þriðja sinn sem
sænska akademían veitir Íslend-
ingi bókmenntaverðlaun. Þau
fyrstu voru Nóbelsverðlaunin til
Halldórs Laxness en síðan fékk
Thor Vilhjálmsson norræn bók-
menntaverðlaun akademíunanr
1992 og nú Guðbergur. Framund-
an eru heimsóknir margra rithöf-
unda: Sjón er á leið hingað því inn-
an skamms kemur út á sænsku
bók hans, Með titrandi tár, og sér-
stök kynning verður á bókinni. Er
líður á sumarið kemur Steinunn
Sigurðardóttir. Seinna á árinu
mun síðan Vigdís Grímsdóttir
koma og kynna bækur sínar. Og
svo kemur Einar Már hingað með
haustinu en hann á mikinn fjölda
sænskra aðdáenda.
Annað sem verður að nefna er
starf okkar að viðskiptamálum og
sérstaklega opnun íslenska við-
skiptanetsins í Svíþjóð. Með því
er skapaður samstarfsvettvangur
fyrir íslensk og íslensk-tengd
fyrirtæki í Svíþjóð, þeim opnuð
leið hvert að öðru og möguleikar
skapaðir á því að sendiráðið að-
stoði þau ef þörf krefur. Auðvitað
skiptir það máli fyrir fyrirtæki,
alveg eins og einstaklinga, að
sendiráðið sé lifandi, áhugasamt
og kraftmikið. Tilgangurinn með
sendiráði í Svíþjóð er að skapa
hreyfingu í samskiptum Íslands
og Svíþjóðar.
Stór og ný íslensk fyrirtæki
hafa haslað sér völl hér í Svíþjóð;
Kaupþing Baugur, Össur,
Bakkavör. Þessi fyrirtæki velja
Svíþjóð fremur en ýmis önnur
lönd af einhverjum ástæðum. Hér
er stærsta kauphöll á Norðurlönd-
um sem er jafnstór og samanlagð-
ar kauphallir allra hinna Norður-
landanna. Efnahagslegur styrkur
Svíþjóðar kemur meðal annars
fram í þessu.“
Hef yndi af sænskri um-
ræðuhefð
Í augum vinstri manna hefur
Svíþjóð lengi verið eins konar
fyrirmyndarríki. „Það er margt
gott í sænsku þjóðfélagi,“ segir
Svavar, „en maður sér vandamál í
efnahagskerfinu. Svíar eiga við
hagvaxtarerfiðleika að stríða.
Þeir hafa ákveðið að skera niður
kjarnorkuverin og á sama tíma er
ekki alveg ljóst hvað á að koma í
staðinn. Þannig að menn eru að
glíma við flókin viðfangsefni í
sænsku efnahagslífi. Jafnaðar-
mannaflokkurinn er stóri flokkur-
inn í Svíþjóð og sterki stjórnmála-
maðurinn er Göran Persson, for-
maður jafnaðarmannaflokksins.
Stóri stjórnmálaflokkurinn á Ís-
landi hefur löngum verið Sjálf-
stæðisflokkurinn og sterkur leið-
togi hans er Davíð Oddsson. Það
er ekki hægt að neita því að mað-
ur sér ýmislegt líkt í nálgun og
efnistökum þessara flokka þótt
pólitík þeirra sé auðvitað ólík.
Fyrir mig sem fyrrverandi
stjórnmálamann er skemmtilegt
að fylgjast með sænskri umræðu-
hefð. Fólk hefur gaman af að ræða
hlutina, spyrja erfiðra spurninga
og brjóta hluti miskunnarlaust til
mergjar. Ég hef yndi af að taka
þátt í slíkri umræðu, hvort sem
hún er um pólitík, menningarmál
eða annað. Þessi kúltúr í sænsku
þjóðfélagi er mjög áhugaverður
og skemmtilegur.
Svavar segir Svía hafa
fölskvalausan og einlægan áhuga
á Íslandi og íslenskri menningu og
segir Snorra Sturluson vera fræg-
asta Íslendinginn í Svíþjóð og
hann sé oftar nefndur á nafn þar
en á Íslandi. „Það er mikill áhugi
hér í Svíþjóð á Íslandi og fyrir-
varalaus velvilji gagnvart land-
inu. Þeir Svíar sem maður þekkir
og hafa ekki farið til Íslands segj-
ast verða að koma þangað áður en
þeir deyi. Það er næstum eins og
þeim finnist að þar séu ræturnar.
Samskiptin milli Íslands og Sví-
þjóðar eru glettilega mikil.
Sakna Íslands
Það kom mörgum á óvart þeg-
ar Svavar sneri við blaðinu og
hætti í stjórnmálum til að gerast
sendiherra. Þegar hann er spurð-
ur um ástæðuna segir hann: „Það
var ósköp einfaldlega þannig að
félagar mínir í Alþýðubandalag-
inu fóru í tvær áttir og ég ákvað
að taka ekki þátt í að vega að öðr-
um frekar en hinum. Þetta var
pólitísk ákvörðun sem ég var
mjög sáttur við. Ég var búinn að
halda Alþýðubandalaginu saman
af mikilli hörku í um fimmtán ár.
Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, hyggur ekki á endurkomu í pólitík. Hann unir hag sínum vel í Stokkhólmi þótt hann sakni
Íslands. Hann er byrjaður að skrifa og safna gögnum fyrir pólitíska ævisögu sína.
Svavar gerir upp pólitíkina
SVAVAR GESTSSON
„Maður kynnist ýmsu í lífinu sem breytir manni.
Skoðanir mínar hafa samt ekki breyst í grundvall-
aratriðum. Mótorinn innan í manni er sá sami:
Jafnrétti, lýðræði, Ísland. Þetta þrennt í einhverjum
hlutföllum. Þetta er fínn mótor fyrir sendiherra.“
Innanflokksátökin í
Alþýðubandalaginu
voru þreytandi en ég er frek-
ar þolinmóður pólitískt að
minnsta kosti og það er
kannski ein ástæða þess að
ég get verið sendiherra, því
þolinmæði er eiginleiki sem
ekki er verra að hafa ætli
menn sér að starfa í utanrík-
isþjónustunni. Ég er hins
vegar ekki þolinmóður í
verkum mínum frá degi til
dags svo ég lýsi því ekki
nánar. Ég var ekki orðinn
þreyttur á innanflokksátök-
unum í Alþýðubandalaginu
en aðrir voru það og átökin
voru oft leiðinleg af því þau
voru persónuleg og beinlínis
slítandi.
,,