Fréttablaðið - 25.04.2004, Side 47
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Töfrar íslenskrar náttúru
Kemur
út í maí
www.edda.is
Íslensk spendýr er í senn glæsileg
listaverkabók og heillandi fróðleiksnáma.
Hér er gerð grein fyrir hátt í 60 tegundum
spendýra á Íslandi og í hafinu umhverfis
landið.
Sérhver dýrategund er kynnt í lifandi og
áhugaverðum texta og með einstæðum
vatnslitamyndum Jóns Baldurs Hlíðbergs.
Þá er í bókinni mikill fjöldi skýringamynda
og korta sem auka mjög á gildi hennar.
Hér er lokið upp fjölbreytilegum undraheimi
íslenskrar náttúru á einkar aðgengilegan hátt.
Bókin er skrifuð af af færustu vísinda-
mönnum landsins á sviði dýrafræði
en Páll Hersteinsson prófessor ritstýrir
verkinu. Hvarvetna er stuðst við nýjustu
rannsóknir og birtar ýmsar niðurstöður sem
ekki hafa komið fyrir almenningssjónir áður.
Íslensk spendýr er kærkomin viðbót
í ritröðina Alfræði Vöku-Helgafells
og sannkallaður kjörgripur fyrir alla
unnendur íslenskrar náttúru.
Forsölutilboð í bókaverslunum, hjá Eddu útgáfu (522 2020) og á edda.is
Forsölutilboð
14.990 kr.
Fullt verð 18.800 kr.
Hvernig ertu núna? Ávallt sprækur.
Hæð: Væri ekki nær að spyrja um
smæð?
Augnlitur: Blár.
Starf: Skólastjóri Áslandsskóla í
Hafnarfirði.
Stjörnumerki: Fiskur.
Hjúskaparstaða: Giftur Ástu Lilju
Baldursdóttur.
Hvaðan ertu? Hafnarfirði.
Helsta afrek: Garðar Ingi, Anton Ingi
og Elsa Rut.
Helstu veikleikar: Annarra að dæma
um slíkt.
Ertu í bókinni Samtíðarmenn? Ekki
kynnt mér það.
Helstu kostir: Þokkalega skipulagður.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Beinar
íþróttaútsendingar.
Uppáhalds útvarpsþáttur: Íþrótta-
þátturinn með litla manninum á
Skonrokk kl. 13 á virkum dögum.
Uppáhalds matur: Folaldafillet að
mínum hætti með grænpiparsósu frú-
arinnar.
Mestu vonbrigði lífsins: Sloppið
þokkalega hingað til.
Hobbý: Everton Football Club - Nil
Satis Nisi Optimum.
Viltu vinna milljón? Peningar verða
fyrst vandamál þegar maður eignast þá.
Jeppi eða sportbíll: Sportbíll.
Bingó eða gömlu dansana: Annað
nema hvort tveggja sé.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Kom fljótlega í ljós að það
yrði ég aldrei.
Skelfilegasta lífsreynslan: Er ég
neyddist til að fara í heimsókn á An-
field Road með eldri soninn.
Hver er fyndnastur? Ragnar Reykás.
Hver er kynþokkafyllst? Frúin auð-
vitað.
Trúir þú á drauga? Farinn að efast,
svo erfitt að ná í þá í síma.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Verð
eiginlega að segja flórgoðinn.
Hvort vildirðu heldur vera Guðjón
Skúlason eða Falur Harðarson? Skot-
stílinn frá Guðjóni og leikgleði Fals.
Áttu gæludýr? Nei, en er aðstoðar-
þjálfari mfl. FH í knattspyrnu.
Hvar líður þér best? Heima er best.
Þér verður á í messunni við dóm-
gæsluna. Þú veitir manni villu en
fattar stuttu síðar að dómurinn var
rangur. Undir lok leiksins segir leik-
maðurinn þér að þú sért hálfviti.
Hvað gerir þú? Blessaður, þetta fer
allt á búninginn og svo fer hann bara
í þvott eftir leik.
Besta bók í heimi: Dagbókin mín,
uppfærð ár hvert.
Næst á dagskrá: Klára ráðningar fyr-
ir næsta skólaár.
Vildi helst
vera flórgoði
Bakhliðin
Á LEIFI S. GARÐARSSYNI
KÖRFUBOLTADÓMARA