Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 40
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R Hin frumlegu frumvörp 50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí Stokkaðu upp fjármálin Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar- bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign. Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13A, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is – með hagstæðu fasteignaláni Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.* Vextir % 5,95% 6,50% 7,50% 8,00% 8,50% 30 ár 5.960 6.320 6.990 7.340 7.690 40 ár 5.470 5.850 6.580 6.950 7.330 4.960 5.420 6.250 6.670 7.080 *Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta. Afborgun- arlaust H im in n o g h a f/ 90 40 12 4 SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Lýðræði getur verið þreytandifyrirbæri. Það getur líka flækt mál svo mikið að úr verði þóf sem engan endi tekur. Í orðabók er það skilgreint sem réttur og aðstaða ein- staklinga og hópa til að láta í ljós vilja sinn og hafa áhrif á öll samfélagsleg málefni. Hvað eiga svo sem einstak- lingar og hópar með það að reyna að hafa áhrif á öll samfélagsleg málefni? Frjáls umræða er kannski af hinu góða í saumaklúbbum og einkasam- kvæmum, en þegar að því kemur að hafa áhrif á samfélagsleg málefni er réttast að slíkt sé á einni hendi. Þá er gott að vita til þess að hægt sé að hraðsjóða frumvörp í ríkisstjórn og berja þau í gegn með handafli á allra síðustu dögum þingsins. Tímaleysi er öflugt vopn þegar keyra skal mál í gegn með hraði og losna við lýðræðis- lega umræðu. ÞRASGJARNIR stuðningsmenn hins ofmetna lýðræðis benda þessi dægur á að gaman hefði verið að fá fram lýðræðislega umræðu um eign- arhald á fjölmiðlum þegar ballið byrj- aði fyrir hartnær tveimur áratugum. Þá gilti hins vegar sú hugsun að allir mættu eiga allt sem þeir vildu, bara ef þeir ættu fyrir því. Þá gilti sama lögmál og þegar Mikki refur átti við- skipti við Hérastubb bakara – að stolnar kökur væru vondar á bragðið, en þær góðar sem greitt væri fyrir. Nú er öldin önnur og Hérastubbur segir að sumir borði alltaf vondar kökur, sama hvað þeir greiði fyrir þær. KVARTKÓRINN bendir á að gaman hefði verið að taka þátt í umræðu um eignarhald á fjölmiðlum þegar ár- vakrir morgunblaðsmenn lögðu í mislukkaðar tilraunir til að hasla sér völl í sjónvarpsbransanum. Þessir kverúlantar jarma líka yfir því að semja mætti sérstakt frumvarp sem girti fyrir flokkspólitíska misnotkun á ríkisfjölmiðli. Slíkt frumvarp á kannski eftir að líta dagsins ljós. FRUMVÖRP geta verið með frum- legasta móti og nú þegar til stendur að hefja markvissa stjórnun á eignar- haldi má fastlega búast við fleiri slík- um frumvörpum. Spennandi verður að fylgjast með því þegar frumvörp um eignarhald í sjávarútvegi og í bankastarfsemi líta dagsins ljós og þá verða þeir fleiri Jónarnir sem óska þess að þeir hefðu lagt á sig að nema helgu fræðin og verða séra Jónar. ■ Þar sem þú getur treyst á gæðin YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 Lífrænt ræktaðar vörur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.