Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 33
Nítján ára piltur, klæddur semmúmínsnáðinn, varð fyrir bif- reið á þjóðvegi í Noregi og lést samstundis. Tveir félagar hans tóku slysið upp á myndbandstöku- vél. Svo virðist sem þeir hafi ætlað sér að vera með einhvers konar fíflalæti sem lauk með þessum hörmulega hætti. Pilturinn gekk einfaldlega upp á veginn og lagðist þar niður með- an félagar hans stóðu afsíðis með vídeótökuvélina. Ökumanni einnar bifreiðar tókst með naumindum að beygja fram hjá. Ökumaður næstu bif- reiðar var ekki jafn lánsamur. Honum tókst ekki að stöðva bif- reið sína í tæka tíð og ók á piltinn sem lést samstundis. „Við vitum ekki hvaðan hann fékk þessa hugmynd, en þegar hann biður einhvern um að taka vídeómyndir af sér þá hefur hann í hyggju að sýna öðrum hvað hann hefur gert,“ sagði Knut Jahr, tals- maður norsku lögreglunnar. Félagar hins látna, 28 ára kona og 24 ára karl, hafa verið yfir- heyrð vegna málsins. Öll þrjú störfuðu þau hjá fyrirtæki í skemmtanabransanum, sem setur á svið ýmsar sýningar þar sem notast er við dýrabúninga. Fullvíst þykir að ökumaðurinn verði ekki ákærður. ■ 25ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004 MÚMÍNÁLFUR Tæplega tvítugur maður, klæddur múmín- búning, beið bana þegar hann varð fyrir bifreið þar sem hann lá í makindum á þjóðvegi í Noregi á sunnudaginn. Múmínsnáði deyr SKÓMARKAÐUR Í GLÆSIBÆ Ekki láta þennan skómarkað fram hjá þér fara! Skór.is og Valmiki S. 693 0996 Opið mánud. - föstud. frá kl. 10.00 - 18.00 laugard. frá kl. 10.00 - 16.00 og sunnud. frá kl. 12.00 - 16.00 ATH! OG ENN LÆKKAR VER ÐIÐ Komdu og gerðu góð kaup á síðustu dögum markaðarins Vorum að taka upp sendingu af flottum leðurstígvélum á aðeins 4.995! Ath. allir ART skór á 2.995! JUDAS PRIEST Komnir aftur á náðir útgáfurisans Sony, sem ætlar að lífga upp á sölu- tölur þeirra. FÓLK Það er greinilegt að poppar- inn Michael Jackson er farinn að ókyrrast. Hann hefur nú slitið samstarfi sínu við tvo aðallög- fræðinga sína, nokkrum dögum eftir að Jackson var stefnt í rétt- arsalinn en hann hafði vonast til þess að málinu yrði vísað frá. Jackson er sakaður um að hafa beitt 12 ára strák kynferðis- ofbeldi og heldur popparinn ótrauður fram sakleysi sínu. Lögfræðingarnir, Benjamin Brafman og Mark Geragos, sem Jackson bað sérstaklega um þeg- ar hann var ákærður á sínum tíma hafa ekki viljað ljóstra upp um ástæður þess að samstarfinu sé lokið. „Við kusum að draga okkur til baka,“ sagði Mark Brafman í við- tali við Reuters. „Það voru mörg vandamál sem komu upp á milli okkar, bæði lagaleg og hagnýt... en það er ekki við hæfi að tala um þau. Ég óska Michael Jackson alls hins besta... og ég vona að hann verði sýknaður.“ Lögfræðingurinn Thomas Mes- ereau jr. mun taka upp vörn popp- arans. Talsmenn Jacksons sögðust ekki vita af málinu og sögðust ekkert geta tjáð sig um það. Rétt- að verður í málinu í lok árs. Japanski kvikmyndagerðarmað-urinn Akira Kurosawa er senni- lega þekktastur fyrir stóru epísku myndirnar frá seinni árum sínum. Myndir á borð við Ran og Kagemusha sem eru stútfullar af mannmörgum bardagasenum með fallegri myndbyggingu. Mörgum þykja þó gömlu svart- hvítu myndirnar hans ekki síðri. Kvikmyndasafn Íslands hefur ver- ið að kynna eitthvað af þeim und- anfarið, og í kvöld verður sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði myndin Tengoku Yo Jigoku eða Barns- ránið, sem margir þekkja kannski undir enska heitinu High and Low. Myndin er gerð árið 1963 og fjallar um iðnrekandann Kingo Gondo, sem verður fyrir því óláni að syni bílstjóra hans er rænt í misgripum fyrir hans eigin son. Ræninginn krefst lausnargjalds en Gondo reynir að losna undan kröf- unni á þeim forsendum að hann hafi engar skyldur gagnvart syni þjóns síns. Myndin er 143 mínútna löng og er sýnd með dönskum texta. Hún verður sýnd aftur á laugardaginn klukkan 16. ■ ■ KVIKMYNDIR Iðnrekandi í uppnámi BARNSRÁNIÐMynd eftir Kurosawa verður sýnd í Bæjar- bíói í Hafnarfirði klukkan átta í kvöld. Söngleikurinn Grease gekk fyr-ir fullu húsi í Borgarleik- húsinu fyrir nokkru síðan enda uppfullur af bæði skemmtilegum lögum og eftirminnilegum per- sónum. Sögusviðið er Bandaríki sjötta áratugarins þegar ungling- ar voru farnir að láta meira af sér kveða en áður í samfélaginu. Ein stærsta ástæða velgengni Grease hér á landi er vafalítið sú að tvær af skærustu poppstjörn- um Íslands, þau Birgitta Haukdal og Jónsi í Svörtum fötum, voru fengnar til að feta í fótspor Johns Travolta og Oliviu Newton-John. Þau smellpössuðu í hlutverkin, enda bæði mjög hress og skemmtileg auk þess að vera fínir söngvarar. Þau skila sínu mjög vel á þess- ari plötu og sérstaklega er gaman þegar Jónsi hefur upp raust sína. Greinilega fínn rokksöngvari. Þó svo að ég hafi aldrei verið sér- stakur Grease-aðdáandi hafði ég bara nokkuð gaman af þessari plötu. Í uppáhaldi voru Sumarnótt og Ég vil vera með þér. Textarnir falla vel að nútíman- um og eru aldrei hallærislegir. Gísli Rúnar Jónsson er þar ófeim- inn við að henda fram vinsælum enskuslettum eins og tsjilla, kúl og tens. Kemur það vel út og á sinn þátt í að gera þessa plötu að góðri skemmtun. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist GREASE Úr söngleik Kúl sumarnótt Judas Priest snýr aftur TÓNLIST Metalsveitin Judas Priest hefur gert nýjan plötusamning við Sony Music í Bretlandi sem tryggir nýjum breiðskífum þeirra dreifingu um allan heim. Sveitin gaf áður út undir merkjum fyrir- tækisins en leitaði á önnur mið eftir því sem vinsældir sveitar- innar dvínuðu. Nú, eftir vaxandi vinsældir The Darkness, virðist áhuginn fyrir gömlu metalkempunum hafa kviknað að nýju í heimaland- inu og er ný plata á leiðinni. Sveitin hefur þó aldrei lagt upp laupana og fær nú annað tækifæri til þess að skilja eftir sig mark. Hún er við það að leggja af stað í tónleikaferðalag um heiminn sem hefst í Evrópu í júní. Í maí kemur út safnboxið Metalogy sem gefið er út af tilefni 30 ára starfsafmæli sveitarinnar. Tími gítarhetjunnar er kominn aftur. ■ Skrýtnafréttin ■ Ungur maður í Noregi lét taka upp á vídeótökuvél þegar hann lagðist út á þjóðveg í Noregi, klæddur sem múmínálfur. Fljótlega var ekið yfir hann. MICHAEL JACKSON Ekkert getur komið í veg fyrir það að mál popparans komi fyrir dómara. Hann er því skiljanlega farinn að ókyrrast. Jackson skiptir um lögfræðinga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.