Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 32
Þetta er fyrst og fremst fallegtónlist sem ég ætla að flytja,“ segir Alexandra Chernyshova, ung sópransöngkona frá Úkraínu, sem ætlar að stíga á sviðið í Salnum í Kópavogi í kvöld ásamt Gróu Hreinsdóttur píanóleikara. „Tónleikarnir eru ekki helgaður einu tónskáldi eða einu tímabili, heldur var markmiðið að setja sam- an fallega dagskrá með verkum eftir mismundandi tónskáld frá ýmsum tímabilum. Þess vegna kalla ég þessa tónleika Söngva- lind.“ Tónleikarnir í Salnum eru þeir fjórðu, sem hún heldur hér á landi með Gróu. Hún segir dagskrá þeirra skipt- ast nokkurn veginn í tvennt. Fyrir hlé verður þyngri tónlist þar sem hún syngur trúarlega tónlist og aríur úr óperum, „en eftir hlé verða frægari verk og skemmtilegri held ég“. Meðal annars tekur hún vöggu- lagið Summertime og úkraínskt þjóðlag sem heitir „Ég vil ekki fara að sofa“. „Þetta er lag um stúlku sem hef- ur gaman af því að syngja og dansa. Hún vill ekki fara að sofa heldur njóta lífsins og trúir því að allt verði í lagi á meðan hún syngur.“ Að loknu söngnámi í Úkraínu söng Alexandra í eitt ár við Óper- una í Kiev. Árið 2002 var hún valin besta nýja óperuröddin í keppninni Nýtt nafn í Úkraínu, og var þá yngsti söngvarinn í þeirri keppni, aðeins 22 ára. Hún hefur búið hér á landi frá því í október og segist að sjálf- sögðu vonast til þess að fá tækifæri til að syngja í Óperunni hér á landi. „En ég er þó ekkert að bíða að- gerðalaus eftir því að einhver banki á dyrnar og biðji mig um að syngja. Nú fer fólk að þekkja mig og vill heyra í mér aftur. Ég reikna líka með að fá eitthvað að gera í öðrum löndum.“ Tungumálin ættu ekki að flækj- ast fyrir henni, því jafnframt söng- náminu útskrifaðist hún líka úr há- skóla í Úkraínu þar sem áherslan var á tungumál, ensku og spænsku, og heimsbókmenntir. „En ég þarf svolítið meiri tíma fyrir íslenskuna. Hún er ekki lík neinu öðru tungumáli.“ ■ 24 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGURhvað?hvar?hvenær? 18 19 20 21 22 APRÍL Þriðjudagur Miðja lífsins Hingað til hafa það fyrst ogfremst verið kristnir karlar sem hafa skráð og túlkað sögurn- ar og goðsagnirnar sem við þekkj- um úr íslenskum fornritum. Valgerður Bjarnadóttir, fyrr- verandi jafnréttisstýra á Akur- eyri, ætlar að flytja erindi á Fé- l a g s v í s i n d a - torgi við Há- skólann á Akur- eyri í dag þar sem hún fjallar um þessar fornu sögur út frá kenningum um Gyðjuna, sem situr í miðju hringrás- ar lífsins. Sam- kvæmt þessum kenningum rík- ir jafnvægi milli konu, karls og nátt- úru og stríð eru þar óþekkt. ■ ■ ■ KVIKMYNDIR  20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn- ir í Bæjarbíói í Hafnarfirði japönsku kvik- myndina Tengoku Yo Jigoku eða Barns- ránið eftir meistara Akira Kurosawa. Margir munu þekkja myndina undir enska heitinu High and Low. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Alexandra Chernyshova sópran og Gróa Hreinsdóttir píanó- leikari flytja aríur og sönglög af ýmsu tagi eftir Mozart, Bach, Verdi, Tsjaíkovskí, Gershwin og fleiri í Salnum, Kópavogi.  20.00 Píanótónleikar, helgaðir minningu píanóleikaranna Hermínu S. Kristjánsson og Rögnvaldar Sigurjóns- sonar, verða haldnir í Íslensku óperunni á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík. Snorri S. Birgisson minnist Hermínu og Halldór Haraldsson minnist Rögnvald- ar. Nemendur skólans leika verk eftir Bach, Bartók, Beethoven, Chopin, Schostakovitsch og fleiri.  20.30 Kvennakór Suðurnesja heldur seinni vortónleika sína í Safnað- arheimili Sandgerðis. Stjórnandi er Krisztina Kalló Szklenárné, undirleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Boga- dóttir og á bassa Þórólfur Þórsson. ■ ■ LEIKLIST  20.30 Leikfélag Sauðárkróks sýnir gamanleikinn Síldin kemur og síldin fer eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Sýnt er í Bifröst á Sauðár- króki. ■ ■ LISTOPNANIR  17.00 Guðmundur Björgvinsson opnar málverkasýningu í Seli Gallerís Reykjavíkur, Skólavörðustíg 16. ■ ■ FYRIRLESTRAR  12.00 Alstair Summerlee, rektor University of Guelph, heldur opinn fyrir- lestur í Odda 101, Háskóla Íslands þar sem hann reifar stöðu og sýn kanadískra háskóla.  12.00 Doktor Nasrin Shahinpoor, hagfræðingur við Butler University í Bandaríkjunum, flytur fyrirlestur um konur, íslam og hnattvæðingu í boði Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræð- um við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 132 í Öskju.  16.00 Anna Rósa Böðvarsdóttir heldur fyrirlestur um meistaraprófsverk- efni sitt, Fiskeldi í sjókvíum við strend- ur Íslands, í Öskju - Náttúrfræðihúsi Háskóla Íslands, Sturlugötu 7.  16.30 „Vanadís, völva og valkyrja” nefnist erindi Valgerðar Bjarnadóttur um fornar birtingarmyndir gyðjunnar, sem hún flytur á Félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri í Þingvallastræti 23, stofu 14. ■ ■ FUNDIR  13.00 Ráðstefna um hug- og sam- félagsvísindi á Íslandi í alþjóðlegu sam- hengi verður haldin í hátíðasal Háskóla Íslands. Rannís, Háskóli Íslands og Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri standa fyrir ráðstefnunni.  20.00 Skógræktarfélögin verða með „opið hús” í Mörkinni 6, húsi Ferðafé- lags Íslands. Guðmundur Andri Thors- son, skáld og rithöfundur, les úr verkum sín- um í upphafi. Pétur N. Óla- son, þekktastur sem Per í Gróðrarstöð- inni Mörk, segir frá langri og áhuga- verðri starfsævi í máli og myndum. ■ ■ SAMKOMUR  21.00 Skáldaspíran efnir til skáldaveislu á Jóni forseta. Thor Vil- hjálmsson leiðir kvöldið ásamt Jóni Kalman, Bjarna Bjarnasyni og Eiríki Guðmundssyni. Þá lesa skáldastöllurn- ar Kristrún Guðmundsdóttir og Anna Dóra Antonsdóttir upp ljóð sín. Loks verður Kristín Eiríksdóttir verðlauna- skáld ljóðasamkeppni Eddu útgáfunnar og Fréttablaðsins kynnt. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Situr ekki aðgerðalaus ■ TÓNLEIKAR ■ MYNDLIST ■ FYRIRLESTUR Ég hef verið dálítið upptekinn afþví upp á síðkastið að pota í listastofnunina,“ segir Guðmundur Björgvinsson listamaður, sem í dag opnar sýningu á verkum sínum. „Mér finnst þessi listasöfn vera dálítið í því að búa til miðstýrðan smekk á list, sem mér finnst alger- lega andstætt því sem listin á að vera. Hún á að vera frjáls og óháð og sjálfstæð og það á að ýta undir að listamenn hafi sjálfstæðar skoðanir en ekki miðstýrðar skoðanir.“ Guðmundur er þeirrar skoðunar að því minna sem talað er um mynd- list því betra. „Myndirnar eiga að tala fyrir sig. Og sama gildir um tónlistina. Það er miklu viturlegra að hlusta á tónlist og horfa á mynd- list heldur en að kjafta og kjafta.“ Sjálfur getur Guðmundur þó ekki stillt sig um að tala smávegis um verkin sín, enda verður vart hjá því komist að segja eitthvað. „En allt tal um myndlist á samt að vera til þess að vekja forvitni og áhuga, frekar en að sundurgreina og kryfja. Ef listin er lifandi þá er ekki hægt að kryfja hana, því það er ekki hægt að kryfja neitt fyrr en það er dautt.“ Guðmundur sýnir nokkur nýleg akrýlmálverk í Seli Gallerís Reykjavíkur að Skólavörðustíg 16. Opnunin verður klukkan fimm í dag. Sýningin stendur stutt, því henni lýkur á laugardaginn kem- ur. ■ GRÓA OG ALEXANDRA Þær Alexandra Chernyshova sópransöngkona og Gróa Hreinsdóttir píanóleikari verða með tónleika í Salnum í Kópavogi klukkan átta í kvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA EITT MÁLVERKA GUÐMUNDAR „Leiðsögn um listasafnið“ nefnist þetta málverk Guðmundar Björgvinssonar, sem opnar sýningu í Seli Gallerís Reykjavíkur í dag klukkan fimm. Alltof mikið kjaftæði VALGERÐUR BJARNADÓTTIR Talar um fornar birtingarmyndir gyðj- unnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.