Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 10
FJÖLMIÐLAKÖNNUN Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins. Að meðaltali lesa 66,3 prósent lands- manna blaðið á hverjum degi samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups. 90,8 prósent lands- manna lásu Fréttablaðið ein- hvern tímann í vikunni sem könn- unin stóð yfir. 53,4 prósent lands- manna lesa Morgunblaðið að meðaltali hvern dag en 74,2 pró- sent sögðust hafa lesið Morgun- blaðið einhvern tímann í vikunni. Meðallestur DV mælist nú 20,5 prósent en 44,6 prósent lands- manna lásu blaðið vikuna sem könnunin var gerð. Lítil breyting er á lestri dag- blaðanna þriggja frá síðustu stóru könnun frá október í fyrra. Meðal- lestur Fréttablaðsins hækkar um 1,5 prósentustig, Morgunblaðsins um 1,1 prósentustig og DV um 0,7 prósentustig. Blöðin bæta einnig öll við sig þegar horft er til þess hversu margir lásu þau einhvern tímann í könnunarvikunni: Frétta- blaðið hækkar úr 87,8 prósentum í 90,8, Morgunblaðið úr 72,7 pró- sentum í 74,2 og DV úr 40,5 pró- sentum í 44,6 prósent. Sem fyrr er Fréttablaðið meira lesið en hin blöðin alla daga vikunn- ar, af báðum kynjum, öllum aldurs- hópum og í öllum landshlutum. Þegar horft er til lesturs á höfuð- borgarsvæðinu er Fréttablaðið lesið af 74 prósentum íbúanna, Morgun- blaðið af 59 prósentum og DV af 23 prósentum íbúa. 95 prósent höfuð- borgarbúa lásu Fréttablaðið ein- hverju sinni í vikunni, 79 prósent Morgunblaðið og 49 prósent DV. Ef lesendum á höfuðborgar- svæðinu er skipt í aldurshópa lesa 56 prósent fólks á aldrinum 12 til 24 ára Fréttablaðið að meðaltali hvern dag, 42 prósent Morgun- blaðið og 18 prósent DV. Í aldurs- hópnum 25 til 49 ára lesa 76 pró- sent Fréttablaðið, 53 prósent Morgunblaðið og 26 prósent DV. Meðal 50 ára og eldri lesa 86 pró- sent Fréttablaðið, 80 prósent Morgunblaðið og 21 prósent DV. Yfirburðir Fréttablaðsins eru því mestir meðal fólks á aldrinum 25 til 49 ára, þar sem lesendur Frétta- blaðsins eru 43 prósent fleiri en lesendur Morgunblaðsins. ■ 10 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Lögreglufréttir FÉLAGI GRÁTINN Ísraelskir landamæraverðir grétu félaga sinn sem féll í árás palestínskra víga- manna í fyrradag og var jarðsettur í gær, daginn sem Ísraelar minntust þeirra her- manna sem hafa fallið í baráttu fyrir tilveru Ísraels. Fréttablaðið með yfirburði Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins og sá fjölmiðill sem flestir nota á hverjum degi. Tveir af hverjum þremur landsmanna les Fréttablaðið á hverjum degi og þrír af hverjum fjórum íbúum höfuðborgarsvæðsins. STERKUSTU MIÐLARNIR Fréttablaðið er sá miðill sem flestir lands- manna nota á hverjum degi. Fréttablaðið og Ríkissjónvarpið eru í nokkrum sérflokki en á eftir þeim koma Morgunblaðið og Stöð. Þar á eftir koma Rás 2, Bylgjan og Skjár einn og loks Rás 1 og DV. Sterkustu miðlarnir: Fréttablaðið öflugast FJÖLMIÐLAKÖNNUN Fréttablaðið er sá fjölmiðill sem flestir lands- manna nota á hverjum degi – 66 prósent landsmanna. Næst kemur Ríkissjónvarpið en 65 prósent landsmanna opna fyrir þá stöð að meðaltali á dag. Nokkuð langt er í næstu miðla. Morgunblaðið er með 53 prósenta meðallestur og Stöð 2 45 prósenta meðaláhorf. Rás 1 kemur næst með 40 prósenta meðalhlustun, Bylgjan með 37 prósent og Skjár einn með 35 prósenta meðaláhorf. Þá kemur Rás 1 með 28 prósenta meðalhlustun og DV með 21 pró- senta meðallestur. ■ FÓLKSBÍLL GEREYÐILAGÐIST Lítill fólksbíll fór út af veginum og valt rétt sunnan við Brú, á leið- inni upp Holtavörðuheiði, síðdeg- is á sunnudag. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann ómeiddur. Bíllinn reyndist stór- skemmdur og var hann dreginn af vettvangi með kranabíl. Sautján ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Holta- vörðuheiði á sunnudag. – hefur þú séð DV í dag? Fjórtán ára í opinberri sendiför til Kína Tímarit: Birta mest lesin FJÖLMIÐLAKÖNNUN Birta, sem fylgir Fréttablaðinu á föstudögum, er mest lesna tímarit landsins sam- kvæmt fjölmiðlakönnun Gallups. Að meðaltali lesa um 105 þúsund manns Birtu í hverri viku. Um 20 prósent fleiri lesa Birtu en það tímarit sem kemur næst, Tímarit Morgunblaðsins á sunnudögum. Lesendur þess eru um 88 þúsund talsins. Lesendur Myndbanda mánaðarins eru um 80 þúsund. Nokkuð langt er í næsta tíma- rit, Séð & heyrt. Lesendur þess eru um 68 þúsund. Síðan kemur Viðskiptablað Morgunblaðsins, Hús & híbýli, Nýtt líf, Gestgjafinn og Mannlíf. Þarnæst á listanum eru Lifun – fylgirit Morgunblaðs- ins, Vikan, M – annað fylgirit Morgunblaðsins, Bleikt & blátt og loks rekur tímaritið Orðlaus lest- ina. ■ TÍU MEST LESNU TÍMARITIN Lesendur Dagblöð: Meðallestur á tbl. Sjónvarp: Uppsafnað áhorf (maðaltal dagsins) Útvarp: Eitthvað hlustað yfir daginn Fréttablaðið: Vaxandi traust FJÖLMIÐLAKÖNNUN Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups segjast 68 prósent landsmanna treysta Fréttaflutningi Fréttablaðsins en 9 prósent ekki treysta blaðinu. Í sambærilegri könnun fyrir ári sögðust 57 prósent treysta fréttaflutningi blaðsins en 13 prósent ekki gera það. Þeim sem treysta fréttaflutningi blaðsins hefur því fjölgað um ellefu prósentustig á þessu tímabili og þeim sem vantreysta blaðinu fækkað um fjögur prósentustig. „Þetta er ánægjuleg niður- staða og ekki síst í ljósi þess að sumir stjórnmálamenn hafa ver- ið óþreytandi við tilraunir til að draga úr trausti til Fréttablaðs- ins,“ segir Gunnar Smári Egils- son, ritstjóri Fréttablaðsins. „Það tekur langan tíma að vinna traust og við höfum ekki gert ráð fyrir að ná elstu miðlunum í þessum mælingum fyrr en eftir fimm ár eða svo. Þessi góði vöxtur milli ára við nokkurn andróður sýnir að við ættum að ná þessu mark- miði jafnvel fyrr.“ Til samanburðar segjast 87 prósent landsmanna treysta fréttaflutningi Morgunblaðsins og 24 prósent fréttaflutningi DV. ■ MEÐALLESTUR Meðallestur Fréttablaðsins jókst hratt en er nú stöðugur og mikill. Að sama skapi hefur dregið úr samdrætti í lestri hinna blaðana. Öll blöðin auka við lestur frá síðustu stóru könnun í október í fyrra. EITTHVAÐ LESIÐ Í VIKUNNI Yfir 90 prósent landsmanna lásu Fréttablaðið einhvern tímann í könnunarvikuni. Fjöldi þeirra sem lásu Morgunblaðið einhvern tímann vikunnar stendur í stað en fjölgar hjá DV. FRÉTTAHÚSIÐ Í SKAFTAHLÍÐ Tveir af hverjum þremur landsmönnum lesa Fréttablaðið dag hvern samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Gallups. Sé litið til þeirra sem lásu blaðið einhvern tíma í vikunni fór hlutfallið yfir 90%. Ljósvakamiðlar: RÚV með yfirburði FJÖLMIÐLAR Ríkissjónvarpið hefur mikla yfirburðastöðu á íslenskum sjónvarpsmarkaði samkvæmt fjöl- miðlakönnun Gallups sem birt var í gær. Uppsafnað áhorf á RÚV í könn- unarvikunni var 93,9%. Sambæri- leg tala fyrir Skjá einn var 71,4% en 70,4% fyrir Stöð 2. Áhorf á Popptívi er 24,7% en 21,1% á Sýn. Af tíu vinsælustu sjónvarpsþátt- unum eru átta á RÚV. Þar trónir Spaugstofan efst með 57,8% áhorf. Efsti þátturinn hjá einkareknu sjón- varpsstöðvunum er þátturinn Inn- lit/útlit á Skjá einum og er hann í ní- unda sæti með 22,7% en Sjálfstætt fólk á Stöð 2 hafði 22,6% áhorf í könnunarvikunni. Stöðvar Ríkisútvarpsins eru einnig stærstar á útvarpsmarkaði. Uppsöfnuð hlustun á Rás 2 var 63,4% í könnunarvikunni. Næst- mest er hlustað á Bylgjuna og hlust- uðu 61,6% þátttakenda eitthvað á þá stöð. Rás 1 hafði 47,7% hlustun og FM 957 var með 32,0%. ■ RÍKISÚVARPIÐ Uppsafnað áhorf á RÚV í könnunarvikunni var 93,9%.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.