Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 24
Í hverju felst starfið? Aðallega í því að setja upp sýning- ar í safninu og jafnvel sýningar sem við sendum frá okkur. Ég er oft úti í bæ að grennslast fyrir um listaverk fyrir sýningar þannig að þetta er heimildarvinna öðrum þræði. Hverri sýningu fylgja svo mikil umsvif. Það er margt sem þarf að gera fyrir einhverja ákveðna dagsetningu þannig að verkefni dagsins geta verið afar fjölbreytt. Ég sé líka um útlán en safnið lán- ar til dæmis í sendiráð erlendis, til opinberra embætta og ráðu- neyta. Í þriðja lagi kem ég að ýmsu sem tengist prentmáli. Þetta er ótrúlega fjölbreytt og rosalega skemmtilegt. Það er í raun enginn dagur eins, en ég er oft í miklu kappi við tím- ann. Stundum finnst mér vinnan hér ekki ósvipuð þeirri sem fram fer í leikhúsi. Við miðum við ákveðinn opnunardag og þurfum þá að hafa allt tilbúið. Hvenær vaknarðu á morgnana? Ég gef mér góðan tíma í að vakna frá því klukkuna vantar tíu mínút- ur í sjö og til hálfátta. Ég mæti síðan í vinnuna milli átta og hálf- níu. Hvað vinnurðu lengi? Það fer svolítið eftir því hvort ein- hver sýning er á næstu dögunum, þá vilja vinnudagarnir lengjast. En annars vinn ég bara eins og op- inberir starfsmenn, til svona hálf- fimm. Hvað er skemmtilegast við vinn- una? Þessi mikla fjölbreytni. Svo kynnist ég íslenskri myndlist nokkuð vel og það er mjög gaman að fá að vera innan um þessa dýr- gripi sem safnið hefur að geyma. Það er líka skemmtilegt þegar sýning er að verða til og byrjuð að taka á sig mynd. En erfiðast? Það koma oft upp ýmis vandamál en þau eru sjaldan stórvægileg. Helst er erfitt að vera alltaf í kappi við tímann. Hvað gerirðu eftir vinnu? Þá sæki ég dóttur mína á leik- skólann, fer í búðina og svo heim. Yfirleitt þarf ég að safna kröftum fyrir morgundaginn. Hvað gerirðu um kvöldið? Kvöldin farar yfirleitt í að vera heima, spjalla við makann og sinna barninu. Svo er gott að lesa bækur eða horfa á sjónvarpið. Ég er ósköp venjuleg hvað þetta varðar. Hvenær ferðu að sofa? Ég er yfirleitt sofnuð um ellefu. Eftir að ég átti stelpuna höfum við hjónin breyst aðeins og orðið kvöldsvæfari. 27. apríl 2004 Þriðjudagur8 VISSIR ÞÚ ... ...að Svíar nota mest af tómatssósu. Ástralir fylgja á eftir en Bandaríkin og Kanada eru í þriðja sæti þegar kemur að tómatssósunotkun. ...að 10% karla eru örvhentir en 8% kvenna. ...að rúmlega helmingur þeirra dýra- tegunda sem lifa á jörðinni eru sjávardýr. ...að Bandaríkjamenn borða að meðaltali 35 þúsund smákökur á ævinni. ...að meðalmanneskja tekur um átta til tíu þúsund skref á hverjum degi. ...að meðalmanneskjan drekkur um 2,2 lítra af vatni á dag. 1,4 lítra í vökvaformi en restin kemur úr fæð- unni. ...að það eru helmingi fleiri kjúklingar hér á jörð en manneskj- ur. ...að það búa fleiri Írar í New York en í Dublin, fleiri Ítalir en í Róm og fleiri gyðingar en í Tel Aviv. ...að til eru rúmlega 200 gerðir af Barbie-dúkkum. ...að með kossi sem stendur í eina mínútu brennirðu 26 kaloríum. ...að um 18% dýraeigenda segjast deila rúmi með gæludýrinu sínu. Harpa Þórsdóttir, deildarstjóri sýningardeildar Listasafns Íslands: Skemmtilegt þegar sýning verður til FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.