Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 38
30 27. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR Rocky eftir Frode Øverli RAFSTÖÐVAR ALL-KEEP m/DIESLMÓTOR og rafstarti 2,7 kvA kr. 62.000 3,75 kvA kr. 92.000 5,0 kvA kr. 110.000 5 kvA kr.165.000 8 kvA kr.235.000 m/HONDA MÓTOR Glæpir geta borgað sig, efmenn láta duga að skrifa um þá smásögu og senda í glæpasmá- sagnakeppni Grand Rokks,“ segir í fréttatilkynningu frá Hinu ís- lenska glæpafélagi sem stendur fyrir keppninni ásamt veitinga- staðnum GrandRokk. „Þetta er félag þeirra sem hafa skrifað glæpasögur eða lagt eitt- hvað af mörkum fyrir þessa bók- menntagrein,“ segir Kristinn Kristjánsson kennari, sem er einn þeirra sem standa fyrir keppninni. „Tilgangurinn er að viðhalda gerð glæpasagna hér á landi. Okkar hlutverk er líka að tilnefna bók til að keppa um glerlykilinn sem Arn- aldur hefur verið að fá. Sá lykill verður afhendur á Íslandi í maí. Síðan erum við að halda utan um þessa smásagnakeppni.“ Áhugasamir sem liggja á dul- arfullu máli og lausn þess í kollin- um á sér verða að skila inn hand- ritum sínum til starfsmanna Grand Rokks fyrir laugardaginn næsta, 1. maí. „Það var maður á Spáni sem vildi þýða íslenskar glæpasögur til þess að gefa út. Þá kom í ljós að það er lítið til af smásögum í þess- um geira. Þess vegna hafði ég samband við Grand Rokk. Það er oft þannig að þegar menn eru með góðar hugmyndir vilja þeir eyða þeim í langar sögur, með þessu erum við að reyna að fjölga smá- sögunum.“ Vegleg verðlaun eru í boði, en fyrstu verðlaun hljóða upp á 300 þúsund krónur. Óvíst er hvort sögurnar verði gefnar út en stefnt er að því að svo verði. Einnig áskilur Grand Rokk sér kvikmyndaréttinn á sögunum. „Höfundar þurfa ekkert að semja um það ef þeir vilja ekki. Þarna er bara verið að tala um for- kaupsréttinn á sögunum. Þá á Grand Rokk dreymir um að ein- hvern tímann verði gerðar stutt- myndir eftir sögunum, ekki heil- ar bíómyndir. Þeir höfundar sem ég hef talað við líst bara vel á þetta,“ segir Kristinn að lokum. ■ Ég stofnaði þetta um áramótin,“segir Jón Kári Hilmarsson um fyrirtækið sitt, Your Reykjavik Nightlife Friend. „Eins og er er ég einn með þetta en fyrirtækið er hægt og rólega í þróun. Það er reyndar búið að vera nóg að gera síðan ég byrjaði.“ Jón Kári segist ekki vera ný- græðingur í þessari þjónustu því hann hafi stundað þetta í mörg ár. „Ég hef mest verið hjá Flugleið- um og síðan séð um þessi mál hjá öðrum fyrirtækjum sem ég hef starfað fyrir en ákvað núna að fara að taka pening fyrir þetta.“ Kvöldið með Jóni er ekki ókeypis og rukkar hann 25.000 fyrir kvöld- ið um helgar, en aðeins minna í miðri viku. „Í því er innifalin þjónusta eins leiðsögumanns. Ég reyni að vera bara með fjóra eða fimm kúnna í einu en ef fleiri eru í hópnum fæ ég aðstoðarfólk með mér. Við aðstoðum fólk við að finna heitustu staðina. Fyrir okk- ur er yfirleitt frítt inn og við þurf- um heldur ekki að bíða í biðröð- um. Síðan gengur þetta starf bara út á mannleg samskipti. Ég er að kynna fólk fyrir hvoru öðru, brjóta ísinn fyrir þá sem ég er að starfa fyrir því fólk er misfeim- ið.“ Hann ítrekar þó að hann sé ekki að reka fylgdarþjónustu. „Við erum bara að fá fólk til að heilsast, kynna fólk og fá það til að tala saman. Bæði ég og fólkið sem er að vinna fyrir mig þekkir mikið af fólki hér í bænum, þetta er bara eins og að bjóða kúnnun- um með í vinahópinn.“ Jón segir að flestir kúnnarnir komi í gegnum netið, fólk sem vill skipuleggja sig vel, en hann hafi einnig verið að fá kúnna í gegnum íslensk fyrirtæki. „Það eru engir ákveðnir staðir sem ég fer á, heldur reyni ég að fylgja tískunni og svo fer þetta svolítið eftir aldri og áhuga kúnnanna. Sumir hafa sérstakan áhuga á tónlist og þá reyni ég að fara með þá á einhverja tónleika, aðrir hafa áhuga á að dansa og þá fer ég með þá á slíka staði. Þó svo að ég þekki langflesta eigendur af þessum stöðum passa ég að það sé ekkert fyrirframdæmi í gangi og er ekki að velja hvert ég fer út frá því.“ ■ KRISTINN KRISTJÁNSSON Nokkrum sögum hefur þegar verið skilað inn og býst Kristinn við nokkrum smásögum til viðbótar í vikunni. Samkeppni GLÆPASAGNAHÖFUNDAR ■ Keppa á Grand Rokk. Skemmtanalíf JÓN KÁRI HILMARSSON ■ Hjálpar erlendum ferðamönnum að finna réttu skemmtistaðina. JÓN KÁRI HILMARSSON Fer á pöbbarölt með útlendingum í vinnunni. Um fyrirtækið má finna upplýsingar á nightlifefriend.is. Glæpir borga sig á Grand Rokk Frítt inn og engar biðraðir Hvers konar eintómir aumingjar eru þetta sem maður þekkir?? Ég get hvergi einu sinni fengið lánaðan fimmtíukall! En ég ætla að taka þessa gellu þótt ég þurfi að ræna banka til að eiga fyrir því! Taktu valíum, drengur! Kjaftæði! Ég þarf bara haglabyssu og nælonsokka- buxur og þá geri ég það! Slakaðu á! Það er engin gella þess virði að tapa sér svona yfir! Farðu heim í kalda sturtu og hættu að pæla í þessu! Þú hefur rétt fyrir þér eins og venjulega! Ég veit ekki hvar ég væri án þín! Ekkert mál! Og komdu þér svo út! HVAR ER SJÓNVARPIÐ MITT?? Hrósið ... fær Siv Friðleifsdóttir fyrir að gleyma ekki gildi endurnýt- ingarinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.