Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 27.04.2004, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2004 Fyrst komu tveir kiðlingar íFjölskyldu- og húsdýragarð- inn en nýr vorboði bættist í hóp- inn í gærmorgun þegar tvö myndarleg lömb Glettu komu í heiminn. Fyrst kom lamba- drottning í heiminn en svo kall- ast fyrsta gimbrin sem fæðist þegar sauðburður hefst og skömmu síðar kom lambakóng- urinn. Gimbrin er svarthnöttótt, líkt og Höttur, faðirinn. Hrútur- inn er aftur á móti svartbíldótt- ur og hornóttur líkt og Gletta. Ær og lömbum heilsast vel en beðið er um að gestir sýnir þeim sérstaka nærgætni fyrst um sinn, enda ær mjög passasamar þegar afkvæmi þeirra eiga í hlut. ■ Sauðburður í Reykjavík Við hönnuðum sjálfbæran sólar-lampa sem er færanlegur borð- og vegglampi,“ segir Hrafn- kell Birgisson, hönnuður í hönnun- arhópnum Hanna, sem hann skipar ásamt Sesselíu Guðmunds- dóttur og Aðalsteini Stefánssyni. Lampinn Sólskin sem þau hönnuðu hlaut í síðustu viku fyrstu verð- laun í hönnunarsamkeppninni Lights of the future sem Evrópu- ráðið stendur að í þeim tilgangi að minnka rafmagnsnotkun í Evrópu. „Lampinn sem stendur í glugga- kistu yfir daginn og safnar í sig ljósi sem nýtist í dimmuni á kvöld- in. Lampinn er sjálfbær, er einung- is knúinn af orkunni sem sólarsell- urnar umbreyta í rafmagn á dag- inn. Lampinn tekur lítinn straum en er með sterka lýsingu og getur lýst heila kvöldstund. Hann þarf svo að hlaða daginn eftir í dags- birtu. Þannig stuðlar hann að minni rafmagnsnotkun og aukinni umhverfisvernd. Nýjustu framfar- ir í sólarrafhlöðutækni, hleðslu- tækni og ljósabúnaði gera okkur kleift að hanna lampa í dag með þessa óvenjulegu eiginleika en við erum í samstarfi við þýska sér- fræðinga á þessu sviði.“ Sólskin er fyrsta frumgerðar- stigið, sem hönnuðirnir unnu í Klink og Bank, en Hrafnkell segir að þau eigi eftir að klára ýmis smá- atriði og lampinn gæti orðið að söluvöru eftir 6–10 mánuði. „Það er spurning hvort væri hægt að framleiða hann á Íslandi, þar sem Íslendingar eru uppteknir við að vera til fyrirmyndar í orkunotkun. Það er eitthvað sem við þurfum bara að kanna.“ ■ LÖMBIM LITLU NÝFÆDD Sauðburður er hafinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. SÓLSKIN Borð- og vegglampi sem safnar í sig ljósi á daginn til að lýsa upp dimmar kvöldstundir. Sólskinið sigraði Verðlaun LIGHTS OF THE FUTURE ■ Íslenski lampinn Sólskin hlaut fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppninni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.