Fréttablaðið - 02.05.2004, Qupperneq 16
5,7%* – Peningabréf Landsbankans
www.li.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun 01.03.2004–31.03.2004 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er
vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
42
39
4
/2
00
4
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
42
39
4
/2
00
4
Banki allra landsmanna
á
su
nn
ud
eg
i
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
Smærri smásalar í Bretlandihafa verið að breyta eignar-
haldi sínu frá því að vera skráð al-
menningshlutafélög yfir í að vera
óskráð og í einkaeigu. Baugur hef-
ur tekið fullan þátt í þessari þróun
og keypt fyrirtæki með stjórnend-
um þeirra. Tveir stjórnendur
slíkra fyrirtækja héldu stutt er-
indi í Háskólanum í Reykjavík á
vegum Baugs. John Watkinson,
forstjóri leikfangakeðjunnar
Hamleys, og Derek Lovelock, for-
stjóri tískukeðjunnar Oasis, reka
ólík fyrirtæki með ólíka stefnu.
Þeir eiga það sameiginlegt að hafa
fengið Baug í lið með sér til að
kaupa fyrirtækin og skrá þau af
markaði.
Um borð í lest
Þeir lýstu sjónarhorni sínu og
reynslu af því sem stjórnendur
fyrirtækis að skrá það af markaði.
„Það er eins og að stíga um borð í
lest,“ sagði Watkinson. „Hún fer
hægt af stað en áður en maður
veit af er maður kominn á fleygi-
ferð niður í móti. Maður horfir á
skelfda samferðamenn sína og
veit að hlutverk manns er að sann-
færa þá um að allt fari vel um leið
og maður efast um að lestin muni
stansa á réttum stað.“ Hann bætti
því við að í þessari ferð hefði
hann og hans fólk komist á leiðar-
enda heilu og höldnu.
Það er liðið á þriðju öld frá því
að Hamleys var stofnað árið 1760.
Oasis er ungt fyrirtæki byggt upp
af frumkvöðlum og fór síðan á
markað. Niðurstaða stjórnenda
beggja fyrirtækja var sú sama.
Að stefnu þeirra og framtíð væri
betur borgið utan markaðar.
Watkinson og Lovelock voru á
einu máli um það að litlum fyrir-
tækjum sem ætluðu að gera rót-
tækar breytingar á stefnu sinni
hentaði betur að vera utan mark-
aðar. „Fagfjárfestar og sjóðstjór-
ar vilja sjá jafnan vöxt og hagn-
að,“ sagði Watkinson. Hann sagði
það samræmast illa miklum
breytingum sem óhjákvæmilega
fælu í sér áföll.
Góð laun fyrir árangur
„Fjárfestir sem sjálfur er í
smásölu og þekkir greinina veit
að sumir hlutir ganga ekki upp.
Slíkur fjárfestir kippir sér ekki
upp þótt eitthvað fari úrskeiðis á
einu sölutímabili ef stefnan og
heildarmyndin er í lagi,“ sagði
Lovelock. Watkinson nefndi þann
kost við að fyrirtækið væri ekki á
markaði að stjórnendur gætu ein-
beitt sér að rekstrinum án þess að
þurfa að upplýsa markaðinn um
allar stærri ákvarðanir. Einnig
væru boðleiðirnar styttri. Einn
kostur kaupa stjórnenda með kjöl-
festufjárfesti fylgi líka. „Ef við
náum þeim markmiðum sem við
setjum okkur til framtíðar þá
högnumst við vel á því. Ég vona
að þið teljið það ásættanlega
ástæðu fyrir kaupum stjórnenda,“
sagði Watkinson og bætti því við
að skilyrði þess að menn legðu út
í slíka ferð væri að menn hefðu
mikla trú á því sem þeir væru að
fást við. „Slíkt ferli reynir á stað-
festuna og hafi menn ekki fulla
trú á því sem þeir eru að gera
mun það koma í ljós í ferlinu.
Óvissuferð í hraðlest
Forstjórar leikfangakeðjunnar Hamleys og Oasis stjórna ólíkum fyrirtækjum. Þeir eiga það sam-
eiginlegt að hafa leitað sér bakhjarla og keypt fyrirtækin og skráð þau af markaði. Bakhjarlinn er
sá sami, Baugur Group sem leitar slíkra tækifæra á breskum markaði.
KLEMMDIR Á MILLI
Í erindum sínum lýstu forstjórar Hamleys og Oasis þeirri sérkennilegu stöðu stjórnenda sem taka þátt í kaupum og afskráningu fyrirtækisins að vera í senn fulltrúar kaupenda og selj-
enda. Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, bauð þá félaga velkomna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
JOHN WATKINSON
„Þetta voru samhliða mínar bestu og
verstu stundir.“
DEREK LOVELOCK
„Ég vil ekki stjórna of stóru fyrirtæki, það
er bara ekki minn stíll.“