Fréttablaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 33
SUNNUDAGUR 2. maí 2004 Göngu-Hrólfsferðir í „léttari takti og meiri menningu“ eru sniðnir að þörfum þeirra sem vilja reyna „passlega mikið á sig“. • Nýtt- Mallorca 20. maí í „spænskum takti“ með Margréti Jónsdóttur, spænskukennara. Laus sæti. • Nýtt- Toscana 12. júní í „takti sælkerans“. Fáein sæti laus. • Toscana 19. júní í „hægum takti“. Uppselt. • Nýtt Thuringen í Þýskalandi 18. júlí í „hægum takti“. Laus sæti. • Krít 20. sept. í „hægum takti“. Uppselt „Þetta er kjörin ferð fyrir fólk eins og mig“ sagði himinlifandi þátttakandi í fyrra um Göngu-Hrólfs fer í „léttari takti“. Allar upplýsingar hjá Úrval-'Utsýn Smáranum, s. 585 4100, www.urvalutsyn.is (sérferðir, gönguferðir). Gönguferðir erlendis í Smáranum, sími 585 4100 Salsa eins og Salsa á að vera Brautiholti 4 Sími 551-3129 47. starfsár Kennari: Lea - sigurvegarinn í fyrsta alþjóða Salsakeppninni semhaldin var í Havana í nóvember 2003. Námskeið hefst 10. maí Innritun í síma 551 3129 frá kl. 20-22 Það sem mér finnst erfiðast af öllu sem ég hef gert er að vera fjallkonan. Ég var svo nervus að ég hélt ég myndi bara deyja. Mér þótti voðalega mikill heið- ur að því og það var svo mikill heiður að mér fannst það eigin- lega það versta sem ég hef gert. Ég var svo nervus við það, en eftir á var það eintóm sælutilfinning. Þá stóð maður á svölum Alþingishússins 1960 og það var ábyggilega mikið verra en eins og það er núna úti í garðinum. Það var gott veður og mikill mannfjöldi fyrir framan. Þetta gekk allt mjög vel og ég var alveg ákveðin í því að þó þetta yrði það síðasta sem ég gerði myndi ég láta þetta ganga. En þetta var voða- legt að ganga í gegnum. Þetta er samt viss heiður og klassískt mál. Þú verður aldrei sú sama eftir að hafa gert þetta, eftir að þú ert búin að vera Ísland í heilan dag.“ ■ Ég var að vinna á veitingastað sem heitir Roofgardens sumarið 2002 í London. Það var mjög hrikalegt. Þetta stóð í einhverja tíu daga og það fór allt úrskeiðis. Launin sem ég samdi um voru alls ekki launin sem ég fékk og svo var hitabylgja í gangi. Ég þurfti að ganga í ein- hverjum þvílíkum ullarklæðnaði og svitinn lak af manni. Þetta var hálfgert klúður og það endaði með því að ég gekk út. Þetta var rosalega fínn veitingastaður, rán- dýr á fjórðu eða fimmtu hæð. Þarna var stór, flottur garður með alls konar fuglum í og ám og lækjum. Ég var titluð sem móttökustjóri og sat á rassinum allan daginn og brosti og tók á móti fólki. Þetta var mjög óheillandi og lítið krefjandi starf. Ég var í símanum allan daginn að tala við vinkonur mínar hálfgrenjandi að kafna í hitabylgju. Ég ákvað eftir þessa reynslu að sleppa því bara að vinna og njóta mín.“ ■ Elva Björk Bjarkardóttir, fyrrum umsjónarmaður Landsins snjallasti: Allt úrskeiðis í London Þóra Friðriksdóttir leikkona: Hélt ég myndi deyja LONDON Allt fór úrskeiðis í London hjá Elvu Björk Bjarkardóttur. FJALLKONA Að vera fjallkona árið 1960 var það erfiðasta sem Þóra Friðriks- dóttir hefur nokkurn tíma gert. Myndin er af fjallkonunni árið 1962.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.