Fréttablaðið - 02.05.2004, Page 17
17SUNNUDAGUR 2. maí 2004
Bestu og verstu stundirnar
Watkinson lagði mikla áherslu
á að stjórnendur sem legðu upp í
þessa för yrðu að vera heiðarlegir
við sjálfa sig og aðra. Mat og áætl-
anir yrðu að vera raunsannar.
„Það gerir að verkum að ferlið og
áreiðanleikakönnun verður til-
tölulega léttbær.“
Enginn þjónar tveimur herr-
um, stendur einhvers staðar.
Staða stjórnenda sem kaupa fyrir-
tæki er nú samt sem áður sú. Þeir
þurfa að sitja beggja vegna borðs
og sýna trúfestu fyrri herrum sín-
um og sjálfum sér og nýjum við-
skiptafélögum. Watkinson sagði
erfitt að lýsa tilfinningunum sem
fylgdu slíkri stöðu. „Þetta voru
samhliða mínar bestu og verstu
stundir.“ Watkinson segir ferlið
hafa verið eins og réttarfars-
drama þar sem hann var allt í
senn sækjandi, kviðdómur og höf-
uðvitni verjandans. „Verðið
breyttist og ég varð að koma fram
ánægður með tilboð okkar fyrir
hönd beggja. Síðan kom hærra til-
boð frá keppinaut og ég birtist aft-
ur ánægður með tilboðið fyrir
hönd seljendanna.“
Fagfjárfestar á bremsunni
Lýsing Watkinson og Lovelock á
kostum stjórnendakaupa með
stuðningi fjárfesta eins og Baugs
var samhljóma. Forstjóri Hamleys
var myndrænni í lýsingum sínum
á ferlinu. Kannski að nálægðin við
margbreytileg leikföng örvi notk-
un myndmálsins og frá-
sagnarhæfileika. Lovelock sagði
að Oasis hefði byggt upp nýtt vöru-
merki sem hefði skilað árangri.
„Við töldum okkur vera búin að
byggja upp innviði til þess að halda
áfram.“ Hann segir eigendurna
hafa viljað fara sér hægar en
stjórnendurna. Sama hafi verið
uppi á teningnum þegar stjórnend-
ur fyrirtækisins vildu fara í sam-
starf í Kína. „Fyrir fjárfestana
sem áttu fyrirtækið var slíkt talið
flækja málin. Þeir vildu skýran
einfaldan vöxt í núverandi starf-
semi.“ Lovelock segir þetta rótina
að því að stjórnendur fóru að leita
leiða til þess að kaupa fyrirtækið.
Hann segir markmiðið að auka við
vörumerki fyrirtækisins. „Ekki
umfram það sem núverandi inn-
viðir ráða við. Ég vil ekki stjórna
of stóru fyrirtæki, það er bara
ekki minn stíll.“
Ekki einstefnugata
Lovelock segir stjórnendur
Oasis ánægða með samstarfið við
Baug. Watkinson tekur undir það.
Þeir segast upplifa eigendur fyr-
irtækjanna sem hóp sem er ein-
huga um markmiðin. Íslendingar
hafa átt láni að fagna í viðskiptum
sínum við Breta en skortur á
formlegheitum hefur stundum
þvælst fyrir í viðskiptum við
Norðurlandaþjóðir. Þeir vildu
ekki gera mikið úr þætti þjóðern-
isins og menningarinnar í við-
skiptunum við Baug. „Við höfum
lært af þeim og þeir af okkur,“
segja þeir.
Afskráning og kaup fyrirtækja
er ekki einstefnugata. Watkinson
og Lovelock útiloka ekki að síðar
meir verði Hamleys og Oasis aft-
ur skráð á markað. Meðan unnið
sé að róttækum breytingum á fyr-
irtækjunum og óvíst um hvernig
til tekst með einstaka þætti sé
vænlegra að vera utan markaðar,
þar sem boðleiðir eru styttri og
þolinmæðin meiri.