Fréttablaðið - 02.05.2004, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 79 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 28 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 16 stk.
Tómstundir & ferðir 11 stk.
Húsnæði 25 stk.
Atvinna 21 stk.
Tilkynningar 4 stk.
til London og Kaupmannahafnar
Tvisvar á dag
Tölvufræðingar eru bjartsýnir
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 2. maí,
123. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.41 13.31 20.23
Reykjavík 6.41 13.31 20.23
Reykjavík 6.41 13.31 20.23
Reykjavík 6.41 13.31 20.23
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Störf skrúðgarðyrkjumeistara eru afar árs-
tíðarbundin, en öfugt við það sem ætla
mætti, hefst undirbúningur að öllu jöfnu í
ársbyrjun. Jón Júlíus Elíasson er skrúð-
garðyrkjumeistari og hefur starfað við
garðyrkju í tæpa tvo áratugi. „Starfið er
afar fjölbreytt en óskaplega árstíðabundið.
Við hefjum venjulega vinnu í janúar og þá
með yfirferð véla, tækja og bifreiða á verk-
stæði. Þó hefur veturinn í ár verið óvenju-
lega hlýr og þannig var nánast frostlaust
seinni part vetrar,“ segir Jón Júlíus, en
fyrirtæki hans sérhæfir sig í garðavinnu og
lóðavinnu af fjölbreyttum toga. „Vegna
þessa óvenjulega veðurfars höfum við ver-
ið í lóðaframkvæmdum í nánast allan vetur.
Í augnablikinu erum við að byggja bíla-
stæði og setja upp leiktæki, en bráðum taka
við tyrfingar og malbikun. Þetta er ákaf-
lega fjölbreytt og skemmtilegt starf.“
Jón Júlíus starfar talsvert fyrir Reykja-
víkurborg og ákveðna byggingarverktaka,
en fyrirtæki hans tekur þó einnig að sér
verkefni á vegum einstaklinga. „Við erum á
síðustu metrunum í klippingu núna, en það
er allt að springa út. Sumarið er fyrr á ferð-
inni í ár og því erum við farnir að huga að
þrifum í görðum. Nú er kominn tími til að
raka saman gömlum laufblöðum, týna upp
plast og fleiri aðskotahluti í görðum. Þó er
hlýjan snemmbær í ár og því full ástæða
fyrir garðaeigendur að vera á varðbergi
gagnvart frosti og muna að skýla viðkvæm-
um plöntum ef veðrið svíkur okkur.“ ■
Jón Júlíus er skrúðgarðyrkjumeistari:
Snemmbær
garðaumhirða í ár
atvinna@frettabladid.is
Atvinnuleysi minnkaði
á fyrsta ársfjórðungi í ár miðað
við á sama tíma í fyrra að því er
fram kemur í hagvísum Hagstofu
Íslands. Samkvæmt vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofunnar
var atvinnuleysi 3,1 á fyrsta árs-
fjórðungi en var 3,9% í fyrra. At-
vinnuleysi var 3,4% meðal karla
en 2,7 % á meðal kvenna. At-
vinnuþátttaka karla var hins vegar
meiri eða 82,8% en 75,6% hjá
konum. Atvinnuþátttaka á fyrsta
ársfjórðungi 2003 var 80,1%.
Alltof mikið atvinnuleysi
er hér á landi að mati Sigurðar
Bessasonar, formanns Eflingar.
Þetta kemur fram í nýjasta Frétta-
blaði Eflingar. Sigurður nefnir að í
byrjun apríl hafi 3.662 einstak-
lingar verið án atvinnu á höfuð-
borgarsvæðinu og á landinu öllu
5.526. „Langvarandi atvinnuleysi
brýtur fólk niður fjárhagslega og
afleiðingar þess er oftar en ekki
bæði andleg- og líkamlega veik-
indi. Miklu skiptir að leitað verði
allra úrræða til að efla atvinnulífið
og útrýma atvinnuleysinu,“ segir
Sigurður og að engu líkara sé en
að þjóðin hafi sætt sig við
atvinnuleysi.
Atvinnumiðstöð stúdenta
er starfrækt í félagsmiðstöð stúd-
enta. Hægt er að skoða störf sem
þar standa til boða á síðunni
am.is. Ýmissa grasa kennir á
þeim vef, sumarstörf, framtíðar-
störf og hlutastörf.
Jón Júlíus Elíasson skrúðgarðyrkjumeistari: „Vetur var óvenjulega hlýr og störf hófust því snemma“.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNUMÁLUM
Húsbíll til sölu. M Benz árg. ‘91 James
Cook týpa ekin 130 þús. Mjög góður
ryðlaus. Ath. skipti. Verð 2,2 millj. Uppl.
861 0052.
Bull Terrier hvolpur til sölu. Sá eini á
landinu. 10 mán. geltur, blíður og
mannelskur. Verð 100.000. S. 894
9050.
Ódýrustu veiðileyfin?
Lax og silungur, Hafralónsá, Kverká,
Hjaltadalsá og Stóru Ármót. Öll svæðin
með húsi. Gæsaveiðileyfi á haustin.
Uppl. 868 4043, 464 1319 og 892
1450
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
LE
M