Fréttablaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 45
SUNNUDAGUR 2. maí 2004 33
AÐDÁENDUR
Aðdáendur bresku rokkhljómsveitarinnar
The Cure smella myndum af handarförum
meðlima hljómsveitarinnar eftir að þeir
greyptu þau í stein fyrir Rockwalk-gang-
stéttina í Hollywood á föstudaginn. Robert
Smith stofnaði The Cure árið 1976 og hún
hefur selt yfir 28 milljónir platna út um all-
an heim.
Pondus eftir Frode Øverli
Fréttiraf fólki
Mál Michaels Jackson
Dramatíkin á milli leikaransTom Sizemore og fyrrverandi
kærustu hans Heidi Fleiss heldur
áfram. Í fyrra var leikarinn
dæmdur í sex mánaða fangelsi
fyrir að
berja
hana á
heimili
þeirra.
Dómarinn
frestaði
fangelsis-
vistinni
með því
skilyrði
að
Sizemore
færi í
meðferð
og ynni að
því að hafa stjórn á skapi sínu.
Nú hefur Heidi kært Sizemore
fyrir skemmdir á heimili sínu,
fyrir að stela munum í hennar
eigu og aftur fyrir heimilis-
ofbeldi.
PINK
Vakti mikla hrifningu fyrir frammistöðu
sína í myndinni „The Gospel According to
Janis.“
Pink vekur
Janis til lífsins
TÓNLIST Penelope Spheeris, leik-
stjóri kvikmyndarinnar „The
Gospel According to Janis“ segir
að söngkonan Pink, sem heldur
tónleika hér á landi í ágúst, hafi
staðið sig með miklum sóma í að-
alhlutverkinu.
„Að sjá þessa stúlku vekja
Janis aftur til lífsins var stórkost-
legt,“ sagði Spheeris í nýlegu við-
tali. „Þetta var mest gefandi
stundin á öllum mínum ferli,“
bætti hún við. Myndin, sem er
frumraun Pink á hvíta tjaldinu,
kemur í kvikmyndahús á næsta
ári. Auk þess að fara með aðal-
hlutverkið í myndinni syngur
Pink öll lögin sjálf.
Þess má geta að önnur mynd
um goðsögnina Joplin er í undir-
búningi þar sem Óskarsverð-
launaleikkonan Renee Zellweger
verður í aðalhlutverkinu. ■
FÓLK Popparinn Michael Jackson
lýsti yfir sakleysi sínu er hann
mætti fyrir dómara í Kaliforníu á
föstudag. Hann er ákærður fyrir
kynferðislega áreitni á 14 ára
dreng. Ákæran er lögð fram í tíu
hlutum. Í gær kom einnig fram að
Jackson er ákærður fyrir að hafa
reynt að ræna barni. Yfirvöld í
Kaliforníu hafa ákveðið að nægi-
legar sannanir séu gegn Jackson
svo hægt sé að höfða mál og var
honum formlega stefnt fyrr í
þessum mánuði.
Fyrir utan dómhúsið þakkaði
Jackson aðdáendum sínum og
fjölskyldu sérstaklega fyrir
stuðninginn. „Ég vil þakka öllum
aðdáendum mínum um allan heim
fyrir þá ást og stuðning sem ég
hef fengið frá öllum heimshorn-
um,“ sagði hann. „Fjölskyldu
minni, bróður mínum Randy sem
hefur verið ótrúlegur, og sam-
félaginu í Santa Maria.“
Nýr lögfræðingur Jacksons fór
fögrum orðum um skjólstæðing
sinn eftir áheyrnina. „Þetta mál
fjallar bara um eitt atriði, reisn,
heiðarleika, velsæmi, heiður,
mannkærleik, sakleysi og full-
komna réttlætingu yndislegrar
manneskju að nafni Michael
Jackson,“ sagði hann.
Jackson þarf að mæta næst
fyrir dómara 28. maí. Þá verða
gefin upp frekari upplýsingar um
mannránskæruna nýju. ■
Lýsti formlega
yfir sakleysi sínu
MICHAEL JACKSON
Var brosmildur þegar hann mætti í réttarsalinn.
Brúðar
búðin
Mm... nei!
Of rómantískt!
Of harmonikku-
legt!
Of
þröngt!
BINGÓ! Þetta er
málið!
Fylgist
með!