Fréttablaðið - 10.06.2004, Page 25
FIMMTUDAGUR 10. júní 2004
Ánægðustu viðskiptavinirnir!
Viðskiptavinir Sparisjóðsins eru
þeir ánægðustu í bankakerfinu
samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni
Útlán eru háð lánareglum SPH
Viltu gera draumaferð þína að veruleika?
• Hagstæðari kjör en á raðgreiðslu-
samningum
• Lán til allt að 4 ára
• 50% afsláttur af lántökugjaldi til 1.9.2004
Þú getur fengið allar nánari upplýsingar
á www.spk.is eða hjá þjónustufulltrúum okkar
FERÐALÁN SPK
Sími 515 1950 • www.spk.is
Úrval-Útsýn hefur hafið samstarf
við ferðaþjónustufyrirtæki sem
heitir Octopustravel og er með
skrifstofur í London, New York,
Osaka og Hong Kong. Með þessu
fyrirtæki er hægt að bóka gisti-
staði og skoðunarferðir um allan
heim á netinu.
Octopustravel býður vandaða
gistingu á góðu verði um allan
heim og hefur gert samninga við
19.000 hótel í 3.300 borgum og
bæjum í 112 löndum. Einnig er
hægt að bóka 1.700 skoðunarferðir
í öllum verðflokkum og hefur Oct-
opustravel látið skrifa ferðahand-
bækur um 200 vinsælustu áfanga-
staði heims til að auðvelda við-
skiptavininum valið.
Vefsíðan octopustravel.com
hefur það markmið að auðvelda
viðskiptavininum að bóka ferðir
og er mjög þægilegt að fikra sig
áfram á síðunni og bóka gistingu
og ferðir sem hentar. Vefsíðan er
öll á ensku og eru mjög ítarlegar
lýsingar á öllum gististöðunum
sem í boði eru og fylgja myndir yf-
irleitt með. Einnig er hægt að sjá
staðsetningu á vinsælustu gisti-
stöðunum á þar til gerðu korti.
Allar leiðbeiningar er að finna
á vefsíðunni en einnig er hægt að
hafa samband við Úrval-Útsýn á
urvalutsyn.is ■
Tilvalið er að skella sér í bíltúr upp í
Borgarfjörð um helgina því Borgfirð-
ingahátíð hefst þar í dag og stendur
fram til sunnudags. Allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi því margt verður
til skemmtunar.
Á föstudeginum les Þórarinn Eldjárn
upp úr bók sinni um Hvítárvallabarón-
inn í Safnahúsi Borgarfjarðar. Þar verð-
ur einnig sýning á munum Hvítárvalla-
barónsins.
Um kvöldið sama dag verður hið sívin-
sæla baðstofukvöld á Bifröst. Á laugar-
dagsmorgninum verður morgunganga
á Hafnarfjall og um daginn verður
markaðstorg með tilheyrandi stemn-
ingu á Rauða torginu sem er gamla KB
planið.
Um kvöldið verður svo slegið upp borg-
firskum sveitaböllum sem verða í Búð-
arkletti í Borgarnesi og Hreðavatnsskála
í Borgarfirði. Á sunnudeginum verður
Sparisjóðshlaupið, útreiðartúr verður frá
Bjarnastöðum og vatnasport á Skorra-
dalsvatni ásamt mörgu fleiru. Þeim
sem vilja kynna sér dagskrána betur er
bent á heimasíðuna borgarbyggd.is
[ BORGARFJARÐARHÁTÍÐ ]
Fjallganga
og sveitaböll
Baula í Borgarfirði.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn:
Í samstarf við alþjóðlegt
ferðaþjónustufyrirtæki
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is