Fréttablaðið - 11.06.2004, Qupperneq 2
2 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
VÍSITALA NEYSLUVERÐS „Það munar
aðallega um hvað húsnæðisverð
hefur verið að hækka mikið,“ segir
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
banka Íslands. Neysluvöruverðs-
vísitalan hækkaði um 0,77 prósent
milli mánaða og hefur hækkað um
3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði.
„Það eru almennar hækkanir á
mörgum liðum en þessi hækkun á
húsnæðisverði er út úr kortinu,“
segir Edda Rós. Að sögn Eddu
Rósar hefur verð á fasteignum
hafa tekið mikinn kipp síðustu
þrjá mánuði. Hækkunin nemur
tæpum sex prósentum sem er 25
prósent hækkun á ársgrundvelli.
Edda Rós segist þó gera ráð
fyrir því að vísitalan sé búin að ná
hámarki sínu í bili. „Í næsta mán-
uði kemur væntanlega inn ein-
hver bensínlækkun og því ætti að
draga úr hækkun vísitölunnar.
Þrátt fyrir það eigum við von á að
vísitalan verði jafnvel svona há
næsta hálfa árið.“
Lækkun á heimsmarkaðsverði á
olíu á síðustu dögum kemur þó ekki
inn í þessa nýjustu mælingu Hag-
stofunnar á neysluvöruverðsvísitöl-
unni, samkvæmt upplýsingum frá
fjármálaráðuneytinu. Haldi lækkun-
in áfram getur það dregið úr verð-
lagshækkun ársins að því er fram
kemur í vefriti ráðuneytisins. ■
RÍKISÚTVARPIÐ Eftirlitsstofnun evr-
ópska efnahagssvæðisins, ESA,
hefur til skoðunar kæru vegna
reksturs Ríkisútvarpsins á ruv.is.
Þetta er önnur kæran á hendur
RÚV sem ESA hefur til skoðunar.
Fyrri kæran barst frá Norðurljós-
um þar sem óskað var eftir því að
kannað yrði hvort RÚV hafi rétt á
að innheimta skylduáskriftar-
gjöld auk þess að fá rekstrarfé af
auglýsingatekjum. Samkvæmt
upplýsingum frá ESA er verið að
skoða starfsemi RÚV í ljósi kær-
anna tveggja og einnig út frá ný-
legum tilmælum stofnunarinnar
um rekstur almenningsútvarps.
Þá sendi Umboðsmaður Al-
þingis frá sér álit í gær vegna
kvörtunar varðandi fjármögnun
RÚV á vef sínum. Þar kemur fram
að RÚV hafi ekki lagaheimild til
að selja auglýsingar á heimasíðu
sinni. Taldi umboðsmaður einnig
verulegan vafa leika á því að gerð
og birting efnis á heimasíðu RÚV
sem sérstaklega væri framleitt
fyrir vefinn gæti talist til „út-
varpsstarfsemi“ eins og það hug-
tak yrði skýrt með hliðsjón af út-
varpslögum.
Samkeppnisstofnun hefur ein-
nig málefni RÚV til skoðunar.
Fékkst það staðfest hjá stofnun-
inni að kæra hefði borist vegna
starfsemi RÚV á auglýsinga-
markaði fyrir ári síðan. RÚV
hafði frest til 23. apríl til að skila
athugasemdum vegna kærunnar.
Samkeppnisstofnun vildi ekki tjá
sig um málið að öðru leyti en því
að úrskurður lægi ekki fyrir fyrr
en með haustinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Markús Örn Antons-
son útvarpsstjóra í gær. Þá feng-
ust þau svör frá menntamálaráðu-
neytingu að Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra væri úti á landi og hefði
ekki kynnt sér innihald álits um-
boðsmanns.
sda@frettabladid.is
Forsetakosningar:
Kerry með
51 prósent
BANDARÍKIN, AP John Kerry, forseta-
frambjóðandi demókrata, fengi 51
prósent atkvæða en George W. Bush
Bandaríkjaforseti 44 prósent ef for-
setakosningarnar í Bandaríkjunum
færu fram nú samkvæmt skoðana-
könnun Los Angeles Times.
Þegar Ralph Nader, sem hyggst
bjóða sig fram sem óháður, er með í
könnuninni minnkar fylgi bæði
Kerry (í 48 prósent) og Bush (í 42
prósent). Óvíst er hvort Nader tak-
ist að fá nafn sitt skráð á kjör-
seðilinn. Takist það ekki þurfa kjós-
endur að skrifa nafn hans sjálfir á
seðilinn sem er líklegt til að fækka
atkvæðum sem hann fær. ■
MÆTT Á KJÖRSTAÐ
Innan við fjórðungur Breta kaus í Evrópu-
kosningunum fyrir fimm árum.
Evrópukosningar:
Dregur úr
kjörsókn
BRUSSEL, AP Bretar og Hollending-
ar urðu fyrstir til að greiða at-
kvæði um hverjir sitja á þingi
Evrópusambandsins næstu fimm
árin þegar Evrópukosningar fóru
fram í löndunum tveimur í gær.
Fram á sunnudag ganga svo íbúar
hinna 23 aðildar-
ríkja Evrópu-
sambandsins að
kjörborðinu.
Kjörsókn hef-
ur farið minnk-
andi í hverjum
kosningum frá
því að þær voru
fyrst haldnar árið 1979. Þá
greiddu tæplega tveir af hverjum
þremur kjósendum í þeim níu
ríkjum sem þá voru aðilar að því
sem nefndist Evrópubandalagið.
Fyrir fimm árum fór kjörsóknin í
fyrsta skipti undir 50 prósent. ■
KOSNINGA-
ÞÁTTTAKA
FRÁ UPPHAFI
1979 63,0%
1984 61,0%
1989 58,5%
1994 56,8%
1999 49,4%
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
„Þetta var afgangurinn úr flöskunni
sem ég notaði síðast þegar átti að
stinga mér í fangelsi í sextán ár.“
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi færði Mark-
úsi Erni Antonssyni forláta tómatsósuflösku að gjöf í
fyrradag. Athygli vakti að lítið var eftir í flöskunni.
SPURNING DAGSINS
Ástþór, af hverju var tómatsósuflask-
an næstum tóm?
Maður á þrítugsaldri:
Dæmdur í
fangelsi fyrir
vopnað rán
DÓMSMÁL Tuttugu og fimm ára
maður var dæmdur í átján mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær, fyrir vopnað rán og önnur
þjófnaðarbrot. Fjórar ákærur á
hendur manninum voru sameinað-
ar.
Maðurinn réðst inn í verslun 10-
11 við Arnarbakka og hótaði
starfsmanni með hníf. Hann sagð-
ist ætla að stinga starfsmanninn
með hnífnum opnaði hann ekki
sjóðsvélina og afhenti honum pen-
inga. Hann komst á brott með 28
þúsund krónur. Þá var hann einnig
ákærður fyrir nokkra þjófnaði úr
verslunum og nokkur innbrot í
bíla. Maðurinn játaði flestöll brot-
in en þau sem hann gekkst ekki við
var hann fundinn sekur um.
Maðurinn á nokkurn sakaferil
að baki og hefur hlotið fimm refsi-
dóma frá árinu 1997, fyrir stór-
fellda líkamsárs, hótun, þjófnað,
fjársvik, gripdeild, skjalafals og
fíkniefnabrot. ■
BANDARÍKIN, AP Mál Miðausturlanda
voru í brennidepli á leiðtogafundi
átta stærstu iðnríkja heims.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lagði áherslu á að vinna stefnu
sinni í Írak og hugmyndum um lýð-
ræðisvæðingu Miðausturlanda
fylgis en varð lítið ágengt, sérstak-
lega í Íraksmálum. Frakkar og Þjóð-
verjar neita sem fyrr að senda her-
lið til Íraks. Bæði Jacques Chirac
Frakklandsforseti og Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
kváðust þó reiðubúnir að ræða hlut-
verk Atlantshafsbandalagsins í Írak
nánar en Bush vill auka hlutverk
þess.
Tillögur Bush um að ýta undir
lýðræðisþróun í Miðausturlöndum
voru samþykktar en þó ekki fyrr en
þær voru tengdar tilraunum til að
koma á friði milli Ísraela og Palest-
ínumanna. Einarður stuðningur
Bush við Ísraela var gagnrýndur og
efasemdum var lýst um að hægt
væri að yfirfæra vestrænt lýðræði á
arabalöndin.
Einnig hvöttu þjóðaleiðtogarnir til
þess að hjálpargögn yrðu send til
hrjáðra íbúa Darfur-héraðs í Súdan. ■
Uppköst og niðurgangur:
Bráðsmitandi
veirusýking
HEILBRIGÐISMÁL Greining sýna frá
sjúklingum sem veikst höfðu á
Húsafelli leiddi í ljós að þeir
höfðu smitast af svonefndri Noro-
veiru. Veiran er bráðsmitandi og
berst milli manna með saurmeng-
uðum neysluvörum og vatni, að
því er fram kemur í sameiginlegri
tilkynningu sóttvarnarlæknis og
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
Einkenni eru kviðverkir, uppköst,
niðurgangur og hiti. Fullfrískt
fólk nær sér alla jafna á einum til
tveimur sólarhringum. Ekki er
vitað um upptök sýkingarinnar
sem varð í Húsafelli. ■
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR
Forstöðumaður greiningardeildar Lands-
bankans segir hækkun húsnæðisverðs
aðalástæðu þess að neysluvöruverðs-
vísitalan hækkaði mikið milli mánaða.
Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans um aukna verðbólgu:
Vísitalan búin að ná hámarki
NETSÍÐAN RUV.IS
Samkvæmt upplýsingum frá ESA er verið að skoða starfsemi RÚV í ljósi tveggja kæra og
einnig út frá nýlegum tilmælum stofnunarinnar um rekstur almenningsútvarps.
Rætt um málefni Miðausturlanda á fundi átta stærstu iðnríkja heims:
Bush gagnrýndur
ÁST OG MÓTMÆLI
Stjórnleysingjar efndu til mótmæla meðan á fundinum stóð. Ástin virtist þó ekki verða útundan.
Ríkisútvarpið kært
til ESA vegna ruv.is
Eftirlitsstofnun evrópska efnahagssvæðisins hefur borist kæra á hendur
Ríkisútvarpinu vegna reksturs ruv.is. Samkeppnisstofnun er einnig
að skoða Ríkisútvarpið.
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Þriggja
bíla árekstur varð á gatnamótum
Hlíðarbrautar og Austursíðu á
Akureyri í hádeginu í gær. Engin
meiðsl urðu á fólki en nokkurt
eignartjón varð.
EKIÐ Á SAUÐFÉ Ekið var á
fimmtán lömb í umdæmi lögregl-
unnar í Búðardal í síðustu viku.
Ekið var á þrjú þeirra í fyrradag.
Að sögn lögreglunnar hafa aðeins
þrír ökumannanna gefið sig
fram. Annars hafa lömbin fundist
dauð eða limlest út í vegarkanti.