Fréttablaðið - 11.06.2004, Side 4
4 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
Rúmlega fertugur maður dæmdur fyrir kynferðisbrot:
Hæstiréttur mildaði
Ökuníðingur á ofsahraða:
Eltur á 200 km hraða
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi
rúmlega fertugan mann í tíu
mánaða fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn dóttur sinni og
stjúpdóttur. Maðurinn hafði
áður verið dæmdur í fimmtán
mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Vestfjarða í október á síðasta
ári.
Fram kemur í dómi Hæsta-
réttar að sakfelling hafi verið
takmarkaðri en í héraði vegna
ónákvæms orðalags í tilteknum
ákæruliðum og vegna ein-
dreginnar neitunar mannsins.
Hann var sakfelldur fyrir að
hafa káfað margoft á stúlkunni.
Brotin framdi hann frá árinu
1995 til ársins 2000. Stúlkurnar
eru fæddar árið 1987 og 1988.
Í dómnum segir að brotin
sem hann er sakfelldur fyrir séu
alvarleg. Hann hafi með þeim
rofið fjölskyldutengsl og brotið
gegn trúnaðartrausti stúlkn-
anna sem hann hafði uppeldis-
og umsjárskyldur við. Þá er
hann ekki talinn hafa neinar
málsbætur. Maðurinn hefur
ekki áður sætt refsingu en ekki
þótti koma til álita að skilorðs-
binda dóminn vegna eðlis brot-
anna. Þá var hann var einnig
dæmdur til að greiða stúlkunum
samtals eina milljón króna í
bætur. ■
Mikill meirihluti
á móti lögunum
Um 71 prósent af þeim sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins ætla að greiða atkvæði á móti fjölmiðlalögunum. Búist er við
að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið verði í byrjun ágúst.
KÖNNUN Meirihluti þjóðarinnar
hyggst greiða atkvæði gegn fjöl-
miðlalögum ríkisstjórnarinnar í
þjóðaratkvæðagreiðslu sem ráð-
gert er að verði í fyrri hluta
ágústmánaðar. Þetta kemur fram
í skoðanakönnun sem Frétta-
blaðið gerði um síðustu helgi.
Fjölmiðlalögin voru samþykkt
á Alþingi 24. maí en í síðustu
viku synjaði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, þeim
staðfestingar. Lögin eru samt
sem áður í gildi og verða í gildi
þar til þjóðartkvæðagreiðslan
fer fram. Hafni þjóðin þeim í
ágúst munu þau falla úr gildi en
verði þau samþykkt munu þau
gilda áfram.
Samkvæmt könnuninni ætla
um 71 prósent þeirra sem tóku
afstöðu að greiða atkvæði gegn
lögunum en 29 prósent með
þeim. Alls tóku 73 prósent fólks
afstöðu í könnuninni. Af þeim
sem ekki tóku afstöðu segjast 23
prósent vera óákveðin eða neita
að svara og um fjögur prósent
segjast ekki ætla að kjósa. Fleiri
konur en karlar segjast ætla að
greiða atkvæði gegn fjölmiðla-
lögunum en ekki er marktækur
munur á afstöðu fólks eftir
búsetu.
Fréttablaðið hefur þrisvar
áður spurt fólk um málið. Í lok
apríl voru ríflega 77 prósent
þeirra sem tóku afstöðu andvíg
fjölmiðlafrumvarpinu. Eftir þá
könnun gerði ríkisstjórnin
tvisvar breytingar á frumvarp-
inu. Eftir fyrstu breytinguna
sýndi skoðanakönnun blaðsins að
tæplega 83 prósent væru á móti
frumvarpinu. Samkvæmt skoð-
anakönnun blaðsins, sem gerð
var fáeinum dögum áður en
Alþingi samþykkti lögin, var
tæplega 81 prósent á móti frum-
varpinu.
Könnunin var gerð síðastliðna
helgi. Hringt var í 800 manns og
var skiptingin jöfn milli kynja og
hlutfallslega milli kjördæma.
Spurt var: Ef þjóðaratkvæða-
greiðsla um fjölmiðlalögin færi
fram nú; myndir þú greiða
atkvæði með lögunum eða á móti
þeim?
trausti@frettabladid.is
LÖGREGLA Lögreglan í Kópavogi og
Hafnarfirði veitti manni á fimm-
tugsaldri eftirför suður eftir
Reykjanesbraut í fyrrinótt. Maður-
inn sinnti engum stöðvunarmerkj-
um og ók á allt að 200 kílómetra
hraða. Til að stöðva ferðir mannsins
þurfti að aka einum lögreglubílnum
utan í bíl mannsins á Strandarheiði.
Að sögn lögregluvarðstjóra í
Kópavogi varð lögreglan fyrst vör
við ferðir mannsins á Reykjanes-
braut á móts við Nýbýlaveg í Kópa-
vogi. Hann sinnti ekki stöðvunar-
merkjum lögreglu og hófst þá eftir-
förin. Afturhjólbarði á bíl mannsins
sprakk án þess að það hefði áhrif á
ofsaaksturinn. Bíll hans var fram-
drifinn og virtist hann geta haldið
áfram þrátt fyrir sprungið aftur-
dekk. Maðurinn lagði marga í hættu
með ofsaakstri sínum. Meðal annars
tók maðurinn fram úr farþegarútu
og þeyttist hlutur úr hjólabúnaði
bílsins í framrúðu rútunnar.
Skammt frá Strandarheiði tókst
að stöðva manninn með því að lög-
reglubíl var ekið utan í bifreið
hans. Á endanum hafnaði bíll
mannsins utan vegar. Að sögn lög-
reglu var maðurinn hvorki undir
áhrifum áfengis né lyfja en að lok-
inni eftirför var hann færður í
fangageymslur lögreglunnar í
Kópavogi. Manninum var sleppt að
loknum yfirheyrslum í gær. ■
Réttarhöldum yfir
barnaníðingi að ljúka:
Neitar
ásökunum
BELGÍA, AP Belgíski barnaníðingur-
inn Marc Dutroux neitaði morð-
ákærum er hann kom í síðasta sinn
fyrir rétt í gær. Dutroux neitaði því
alvarlegustu at-
riðunum sem hon-
um eru gefin að
sök en hann er
meðal annars
ákærður fyrir
barnanauðganir,
mannrán og morð.
„Ég er ekki
morðingi,“ sagði
Dutroux, sem gef-
ið er að sök að
hafa rænt sex
stúlkum og vera
valdur að dauða
fjögurra þeirra.
Sagðist Dutroux
sjá mikið eftir gerðum sínum og
viðurkenndi að bera ábyrgð á láti
fjögurra fórnarlamba sinna.
Dutroux játaði þó að hafa rænt
og misnotað kynferðislega tvær
stúlkur sem bjargað var lifandi úr
kjallara Dutroux skömmu áður en
hann var handtekinn í ágúst 1996. ■
Notar þú tóbak reglulega?
Spurning dagsins í dag:
Óttastu aukna verðbólgu?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
72%
28%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
MINNINGABÓK UM REAGAN
Bókin lá frammi í sendiráði Bandaríkjanna
á Laufásvegi. Forsætisráðherra og frú verða
viðstödd útför Ronalds Reagan,
fyrrum forseta Bandaríkjanna, í dag.
Ronald Reagan jarðsettur:
Davíð við
útförina
JARÐAFÖR Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Ástríður Thorarensen,
eiginkona hans, verða við útför
Ronalds Reagans sem var fertug-
asti forseti Bandaríkjanna. Hann
verður jarðsettur í Washington í
dag. Forsætisráðherra hefur þegar
sent frú Reagan samúðarkveðju.
Fjölmargir lögðu leið sína í
sendiráð Bandaríkjanna og vottuðu
Ronald Reagan, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, virðingu sína.
Hann lést á laugardaginn 93 ára að
aldri. Minningabók lá frammi í
sendiráðinu þriðjudag og miðviku-
dag og sagði Linda Hartley, menn-
ingarmálafulltrúi sendiráðsins, að
margir hafi skrifað nafn sitt í bók-
ina og þónokkrir hafi skrifað hjart-
næm orð og klausur með til minn-
ingar um hann. ■
edda.is
Allir út að leika
Þessi fallega bók geymir
skemmtilega söngvaleiki
sem börn á öllum aldri
hafa um árabil leikið jafnt
úti sem inni. Sumir
leikirnir hafa gengið
kynslóð fram af kynslóð
en aðrir eru nýrri.
Bókin er ómissandi í
skólum, leikskólum og
heimahúsum.
Andstaðan við fjölmiðlalögin hefur minnkað:
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur beitt sér meira
KÖNNUN Andstaðan við fjölmiðla-
lögin hefur minnkað samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins,
sem gerð var um síðustu helgi.
Samkvæmt henni segjast um 71
prósent þeirra sem tóku afstöðu
ætla að greiða atkvæði gegn
fjölmiðlalögunum í þjóðar-
atkvæðagreiðslu en í fyrri könn-
unum blaðsins hefur andstaðan
við málið mælst á bilinu 77–83
prósent.
Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði,
segist telja að ýmsar ástæður
séu fyrir minnkandi andstöðu
við lögin.
„Eftir að forsetinn synjaði
lögunum staðfestingar er um-
ræðan orðin öðruvísi en áður –
hún er flóknari,“ segir Gunnar
Helgi. „Sjálfstæðisflokkurinn
hefur líka beitt sér meira í mál-
inu undanfarið. Forsætisráð-
herrann hefur átt nokkuð góða
viku og kom til dæmis nokkuð
vel út í nýlegu viðtali í Kastljósi
og það má gera ráð fyrir því að
þetta hafi þjappað sjálfstæðis-
mönnum meira saman í málinu.“
Gunnar Helgi segir að eflaust
séu til dæmi um fólk sem sé
móti lögunum en líka á þeirri
skoðun að forsetinn hafi ekki
heimild eða eigi ekki að synja
lögum staðfestingar, því vilji
það ekki greiða atkvæði gegn
lögunum. ■
GUNNAR HELGI KRISTINSSON
Gunnar Helgi segir að ýmsar ástæður séu
fyrir minnkandi andstöðu við fjölmiðla-
lögin. Umræðan um málið sé orðin flókn-
ari.
TILKYNNT UM SYNJUN
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti í síðustu viku að hann hygðist
synja fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar staðfestingar.
HVERNIG ÆTLAR FÓLKIÐ AÐ KJÓSA?
Mikill meirihluti er andvígur lögunum.
Með lögunum
29%
Á móti lögunum
71%
■ EVRÓPA
TRÚA KÚTSJMA EKKI Úkraínskir
stjórnarandstæðingar hafa vísað á
bug sem blekkingum staðhæfing-
um Leoníds Kútsjma forseta um
að hann ætli sér ekki að gefa kost
á sér í þriðja sinn í haust. Stjórn-
lagadómstóll hefur úrskurðað að
honum sé það heimilt þrátt fyrir
bann við að forseti gegni embætt-
inu lengur en tvö kjörtímabil.
EFLA LÍFRÆNA RÆKTUN Bændur í
aðildarríkjum Evrópusambandsins
mega eiga von á auknum styrkjum
til lífrænnar ræktunar. Franz
Fischler sem fer með landbúnað-
armál í framkvæmdastjórn ESB
segir vilja fyrir því að auka styrki
til framleiðslunnar og kynna hana
betur fyrir neytendum.
■ EVRÓPA
GLÆPAMENN
GRUNAÐIR
Austur-evrópsk-
ir glæpamenn
eru grunaðir um
að hafa skotið
tvo spænska
lögreglumenn til
bana á hraðbraut í norðurhluta
landsins á miðvikudag. Í fyrstu
var talið að baskneskir aðskilnað-
arsinnar hefðu myrt lögreglu-
mennina en það þykir nú ólíklegt.
DUTROUX
Belginn játaði að
hafa rænt og
misnotað kyn-
ferðislega tvær
unglingsstúlkur.