Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.06.2004, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 11.06.2004, Qupperneq 10
11. júní 2004 FÖSTUDAGUR Ákærður fyrir þrjár líkamsárásir Stefán Logi Sívarsson hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir þrjár líkamsárásir á tveimur dögum, þar af eina sérstaklega hættulega. Stefán var á reynslulausn þegar hann framdi árásirnar. DÓMSMÁL Stefán Logi Sívarsson hefur verið ákærður af ríkissak- sóknara fyrir þrjár líkamsárásir sem hann framdi á tveimur dög- um í apríl síðastliðnum. Ein lík- amsárásin er sögð hafa verið sérstaklega hættuleg. Hinar tvær líkamsárásirnar framdi Stefán Logi í félagi við mann á þrítugsaldri sem einnig er ákærður. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Stefán Logi var á ný kominn úr fangelsi og var á reynslulausn þegar hann réðst á sextán ára dreng á heimili sínu. Hann sló drenginn með krepptum hnefa í andlit og maga svo drengurinn féll í gólfið. Síðan sparkaði hann í kvið drengsins þar sem hann lá á gólfinu með þeim afleiðingum að milta drengsins rifnaði. Drengurinn hlaut við árásina lífshættuleg innvortis meiðsl. Rétt rúmum sólarhring síðar réðst Stefán Logi ásamt félaga sínum á mann sem lá í sófa. Þeir slógu manninn mörg högg í höf- uð og líkama. Þá sveigði Stefán Logi aftur einn fingur mannsins og beit hann í eyrað. Maðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut bit- sár, mar, bólgur og fleiri áverka. Seinna sama dag slógu þeir og spörkuðu í stúlku sem var með þeim í bíl. Stúlkan tognaði á öxl og hlaut yfirborðsáverka víða um líkamann. Þá er Stefán Logi ákærður fyrir umferðarlagabrot eftir að hafa ekið bíl réttinda- laus. Bílnum ók hann á kyrr- stæðan bíl sem kastaðist á annan bíl. Stefán er sakaður um að hafa keyrt viðstöðulaust á bílana. Eftir að Stefán Logi réðst á og stórslasaði sextán ára drenginn fór lögreglan í Reykjavík fram á gæsluvarðhald yfir honum en dómari taldi ekki málsástæður til þess og var honum því sleppt lausum. Rétt um sólarhring síð- ar framdi hann tvær líkams- árasir í félagi við annan mann. Stefán hlaut tveggja ára fang- elsisdóm fyrir líkamsárás árið 2002, svokallaða Skeljagranda- árás, auk annarrar líkamsárásar sem hann framdi sama dag. Hann ásamt bróður sínum sló margsinnis fórnarlambið í andlit og líkama með krepptum hnef- um og bareflum, stakk hann og skar með eggvopnum og mis- þyrmdi honum með öðrum hætti. hrs@frettabladid.is Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Opið laugardag 10-14.30 Opið laugardag 10-14.30 GRILL TILBOÐ HUMAR STÓR OG FLOTTUR TÚNFISKSTEIKUR 2.350 GRILLPINNAR 1.690 LAXASTEIK, BEINLAUS 1.290 – hefur þú séð DV í dag? Skeljagrandabróðir ákærður: Barði konu og beit af eyra VIÐSKIPTI Eimskipafélag Íslands hefur gert samninga um smíði tveggja frystiskipa og er kaup- verð þeirra samtals um tveir milljarðar króna. Skipin verða smíðuð í Noregi og afhent haustið 2005 og í júní 2006, en stefnt er að því að þau verði í vikulegum áætl- anasiglingum milli Noregs, Bret- lands og Íslands. Forstöðumaður kæli- og frystiskipaþjónustu Eim- skips mun í kjölfarið flytja til Noregs en viðskiptavinir á Íslandi geta enn sótt þjónustu sína til Eimskips á Íslandi. ■ Eimskipafélag Íslands: Kaupir tvö frystiskip NÝJU FRYSTISKIPIN Skipin verða 80 metra löng og 16 metra breið. STEFÁN LOGI ÁSAMT BRÓÐUR SÍNUM Í RÉTTARSAL Myndin var tekin af bræðrunum þegar réttað var yfir þeim vegna stórfelldrar líkamsárásar sem kölluð var Skeljagrandaárásin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Skaðabótamáli Austurbakka gegn eigendum Nanoq: Vísað frá fyrir Hæstarétti DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur vísað frá skaðabótarmáli því er Austur- bakki hf. höfðaði gegn fyrrverandi eigendum útivistarverslunarinnar Nanoq í Kringlunni en áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt mennina til greiðslu skaðabóta að upphæð 9,2 milljónir króna. Forsendur skaðabótahöfðunar Austurbakka voru að eigendur Nanoq, þeir Jóhannes Rúnar Jó- hannesson og Þorbjörn Stefánsson, hefðu keypt talsvert af vörum af Austurbakka rétt áður en gjald- þrotabeiðni kom fram og þannig vitað allan tímann að ekki kæmi til greiðslu viðkomandi vara. Hæstiréttur mat það svo í dómi sínum að ekki lægju fyrir næg gögn í málinu til að unnt væri að meta hvort eigendunum hefði verið skylt að krefjast skipta á búi Nanoq fyrr en raun bar vitni eins og lögmenn Austurbakka vildu meina. Þótti óhjákvæmilegt að vísa málinu því sjálfkrafa frá Hæstarétti. ■ VERSLUNIN NANOQ Skaðabótakröfu Austurbakka á hendur eigendum þess var vísað frá Hæstarétti.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.