Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 12
11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
Hjónaböndum
fækkar á landinu
Félagsfræðingur segir menntun helstu ástæður þess að fólk sé eldra en
áður þegar það giftist. Streita geti þó valdið því að fólk skilji. Þriðjungur
fólks sem skildi á síðasta ári hafði aðeins verið gift í sex ár eða skemur.
HJÓNABÖND Þriðjungur þeirra sem
skildi að lögum árið 2003 höfðu
verið í hjónabandi skemur en í
sex ár. Tíðni lögskilnaða hefur lít-
ið sem ekkert breyst í þrjátíu ár
en hjónaböndum fækkar. Guð-
björg Linda Rafnsdóttir, félags-
færðingur og kennari við Háskóla
Íslands, segir hjónaskilnaði ekki
alltaf neikvæða. Að geta skilið og
tekist á við lífið sé mikið frelsi.
Guðbjörg segir ekkert eitt
einfalt svar við því af hverju
fólk skilur. „Fólk er ekki eins
háð því peningalega að búa sam-
an eins og fyrir 1970.“ Guðbjörg
segir að þá hafi orðið algengara
en ekki að konur væru á vinnu-
markaði. „Það gerði konum og
körlum auðveldara um vik að
ákveða að skilja.“ Guðbjörg seg-
ir þó neikvætt þegar lífsstíls-
streita valdi skilnaði. „Að vinna
mikið og eiga mikið af efnahags-
legum gæðum, stunda líkams-
rækt og gera hluti fyrir sjálfan
sig hlýtur að kalla fram streitu.
Ég held að stór hluti fólks sé að
kikna undan álagi.“
Á vef Hagstofunnar kemur
fram að 1.473 pör gengu í hjóna-
band í fyrra sem er 173 pörum
færra en árinu áður. Guðbjörg
veltir því fyrir sér hvort auglýs-
ingar og sjónvarpsþættir hafi
áhrif á fólk. „Maður heyrir ungt
fólk tala um að það hafi ekki efni
á að halda þá tegund af veislu sem
að þjóðfélagið bendir á að sé
venjan í dag.“
Fyrir þrjátíu árum gengu 8,8 á
hverja þúsund íbúa landsins í
hjónagand en í fyrra aðeins 5,1
hverra þúsunda landsmanna. Guð-
björg segir marga hafa bent á það
á undanförnum árum að það geti
verið óhagstætt fyrir ákveðinn
hóp fólks að vera í hjónabandi.
„Ef fólk sér að það tapi efnahags-
lega á því að vera í hjónabandi þá
getur það verið dálítið langsótt að
gifta sig.“ Guðbjörg segir einnig
að hérlendis hafi það ekki þótt
tiltökumál að mæður væru einar
með börn.
Árið 1973 giftust 378 stúlkur á
aldrinum 15–19 ára sig og 87
piltar kvæntust en aðeins ellefu
stúlkur á sama aldri í fyrra og
þrír piltar. Guðbjörg segir kröfu
um menntun mikla. „Menntunar-
stig þjóðarinnar, sér í lagi kvenna,
hefur hækkað sem gerir það að
verkum að fólk fer ekki eins
snemma í brauðstrit.“
gag@frettabladid.is
ÚTSÖLUSTAÐIR
Hárgreiðslust. Passion - Akureyri
Stúdíó 1 - Snyrtivöruv. - Kópavogur
Lyf og Heilsa - Keflavík
Lyf og Heilsa - Dalvík
Lyf og Heilsa - Hveragerði
Lyf og Heilsa - Mjódd
Lyf og Heilsa - Glerártorgi - Akureyri
Lyf og Heilsa Apótekarinn - Akureyri
HÁRLITUR Í FÁNALITUNUM
FYRIR 17 JÚNÍ
hárskol - hárvax
GUÐBJÖRG LINDA RAFNSDÓTTIR
Margir sækjast eftir efnahagslegum gæðum sem getur valdið lífsstílsstreitu, segir
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur. Efnahagslegt sjálfstæði sé þó oft grundvöllur
skilnaða. Ungt fólk bíði hugsanlega með giftingu vegna kostnaðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
EU
TE
R
S
TÖLVUR OG TÆKNI Í sumarlok er von á
íslenskumælandi talgervli í farsíma
sem gagnast getur blindum og sjón-
skertum. Með hjálp búnaðarins geta
blindir og sjónskertir þá nýtt sér til
fulls þá kosti sem farsímatæknin
hefur í för með sér, svo sem SMS
eða MMS smáskilaboð sem síminn
les þá upphátt fyrir notandann.
Hartmann Kr. Guðmundsson, for-
stöðumaður Örtækni, segir að geng-
ið hafi verið frá samningi við spæn-
ska fyrirtækið Code Factory sl.
þriðjudag og að til standi að taka í
notkun Mobilespeak-talhugbúnað
fyrirtækisins. Að baki Örtækni við
samningagerðina standa svo Ör-
yrkjabandalag Íslands og Blindra-
félagið. „Við höfum skipt við annað
fyrirtæki, en hættum við að taka
inn íslenskan búnað frá þeim vegna
ákveðinna samskiptaörðugleika,“
sagði hann, en bætti við að ensku-
mælandi útgáfa þess búnaðar hafi
áður verið sett í tvo farsíma, hjá
Helga Hjörvar alþingismanni og
Arnþóri Helgasyni, framkvæmda-
stjóra Öryrkjabandalags Íslands.
Mobilespeak-búnaðinn er hægt að
nota í flesta farsíma með Symbian-
stýrikerfi, en sérstaklega er mælt
með Nokia 6600 farsímanum. Ekki
skiptir máli við hvaða fjarskipta-
fyrirtæki notandinn skiptir. ■
Íslenskumælandi talgervill í farsíma:
Gagnast blindum
og sjónskertum
MEÐ BÚNAÐ FYRIR FATLAÐA
Hartmann Kr. Guðmundsson, forstöðumaður
Örtækni, segir að hjá fyrirtækinu sé að finna
margvíslegan búnað sem hjálpi fötluðum.