Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 156 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 49 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 16 stk.
Húsnæði 32 stk.
Atvinna 25 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Seiðandi sumarilmur
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 11. júní,
163. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.01 13.27 23.55
Akureyri 1.54 13.12 24.34
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég á mjög fallega íbúð sem mér líður
afskaplega vel í. Hún er reyndar frekar
lítil en þröngt sitja sáttir,“ segir Bryndís
Ásmundsdóttir leik- og söngkona sem
fjárfesti í lítilli íbúð í miðbænum fyrir
sex árum. Þar býr hún með unnusta
sínum og barni og unir sér vel. „Við erum
búin að gera mikið fyrir þessa íbúð og
hún er orðin mjög krúttleg. Við tókum til
dæmis eldhúsið allt í gegn og ég hand-
málaði flísarnar sjálf í innréttingunni.“
Bryndís er ekki í vanda þegar hún er
spurð um uppáhaldshúsgagnið. „Maður-
inn minn er uppáhaldshúsgagnið mitt.
Hann fellur svo afskaplega vel inn í um-
hverfið,“ segir Bryndís og hlær en segir
svo að númer tvö á listanum sé sófinn
hennar. „Ég á alveg frábæran, eldgamlan
sófa sem er cappuccino-brúnn á litinn og
úr gervileðri. Mér brá alveg svakalega
þegar faðir unnusta míns gaf okkur þetta
ferlíki því mér fannst hann svo voðalega
ljótur,“ segir Bryndís, en bætir svo við að
hún hafi dubbað aðeins upp á sófann og
tekið hann í smá andlitslyftingu. „Ég ætl-
aði mér fyrst að klæða sófann sem hefði
náttúrlega kostað mig morðfjár og því
hætti ég snarlega við þá hugmynd. Í stað-
inn skellti ég mér í IKEA, keypti tvö
teppi og nokkra púða og nú er sófinn voða
fínn og mér dettur ekki í hug að losa mig
við hann.“ ■
Dittað að gömlum húsgögnum:
Tók sófann
í andlitslyftingu
Bryndís og maðurinn hennar tóku sófann sinn í andlitslyftingu
og eru nú mjög ánægð með hann.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TÍSKU
M. Benz SLK 200 K model ‘05. Nýr bíll
til afhendingar strax. Bið er eftir þess-
um bílum í Evrópu. Bíllinn er til sýnis að
Skúlagötu 17. Verð með þessum
búnaði 6,9 milljónir.
Snorrabraut 56
Til leigu 135 fm gott verslunarhúsnæði.
Laust strax. Upplýsingar veitir Jón Bjarni
í síma 861 5601.
Hjólhýsi 1990. Enskt lúxus með öllu.
Uppl. í s. 892 0066.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Tónlistarmaðurinn Sean
Combs, eða P. Diddy eins og
flestir þekkja hann,
hlaut á dögunum
verðlaun frá ráði
bandarískra fata-
hönnuða. Hönnuð-
irnir kusu Combs
besta karlhönnuð á þessu ári
fyrir Sean John fatalínuna hans.
Combs hefur verið tilnefndur
fjórum sinnum áður en þetta
er í fyrsta sinn sem hann vinn-
ur til verðlaunanna.
Hinnni fimmtán
ára Ester Keate
hefur nú verið skellt
í módelbransann og
halda fróðir menn í
tískubransanum því
fram að hún sé næsta Kate
Moss. Ester er Lundúnabúi og
rak fatahönnuður augun í hana
þegar hún tók þátt í mót-
mælum gegn stríði í borginni.
Nú þegar hefur Ester setið fyrir
fyrir tímaritið Vogue en því
miður verður tískubransinn að-
eins að sitja á hakanum þar
sem Ester er upptekin í skólan-
um eins og stendur – enda
bara fimmtán ára.
Noa Fleur ilm-
vatn og body
lotion eru vörur
sem hafa bæst við
Cacharel-línuna frá
Lancóme. Þetta er
sannkallaður
blómailmur enda er ilmvatnið í
bleikum umbúðum með blóm-
um á og opnast umbúðirnar
eins og blómkróna. Body lotion
umbúðirnar eru líka bleikar og
ekki skemmir fyrir að glimmer
er í body lotioninu. Noa Fleur
tilheyrir sömu ilmfjölskyldu og
Noa Topp ilmurinn og er freist-
andi og tælandi blómailmur
með flauelskenndan tón.
Biotherm Biopur Instant
Touch Pore Refiner er það
nýjasta í Biopur-línunni frá
Lancôme. Varan dregur saman
opnar svitaholur og gerir yfir-
bragð húðarinnar fínna. Hægt
er að nota vöruna af og til eða
sem tveggja
vikna með-
ferð. Efninu
er dúppað
á nef, enni og höku fyrir raka-
krem og undir farða.Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is tiska@frettabladid.is