Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 21
FÖSTUDAGUR 11. júní 2004
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR HANDA
MINNST FJÓRUM FYRIR 1000 KR. EÐA MINNA.
Fléttubrauð með grilluðu grænmeti
Nú til dags er hægt að kaupa allskyns ljúffeng brauð sem fyllt eru og
krydduð með hverskonar góðgæti. Við getum gert brauð sem er enn-
þá betra. Grillað grænmeti er frábært með brauði. Ef gott salat er
haft með þessu brauði verður úr hin ágætasta máltíð.
Skerið grænmetið og setjið í skál og marínerið það í um 10 mínút-
ur í tvær msk. af ólífuolíu og eina msk. af sojasósu. Grillið grænmetið
því næst (hægt að gera í ofni en útigrill er langbest). Ágætt er að
þræða grænmetið á grillteina til þess að auðvelda grillunina. Setjið
grillað grænmetið til hliðar og útbúið brauðið.
Leysið gerið upp í vel volgu vatni, blandið hveiti og salti saman við
vatnið í stórri skál. Látið hefast í 20–30 mínútur. Hnoðið deigið í skál-
inni og bætið hveiti við þar til deigið er orðið eins og deig á að vera.
Takið þá um helminginn af deiginu, fletjið það út og setjið í botninn á
stóru hringlaga kökuformi. Skiptið afganginum af deiginu í þrennt og
búið til úr því þrjár lengjur sem fléttaðar eru saman og fléttan er svo
lögð eftir jaðri brauðsins.
Penslið botn og jaðar brauðsins með ólífuolíu. Raðið grænmetinu á
botninn og dreifið rifnum osti og muldum geitaosti yfir. Bakið í 200
gráðu heitum ofni í 20 mínútur.
Kostnaður um 600 kr.
Kynn ingar verð á vö ldum v ínum í jún í .
með gr i l lmatnum
Vínið
Njót ið góðra v ína með gr i l lmatnum í sumar.
Nýr bæk l ingur kominn í V ínbúð i rnar.
Spænsk vín eiga almennt vel við grillmat enda Spánverjar mikið
fyrir að grilla. Vinsælustu vín Spánar koma frá héraðinu Rioja og
eru jafnan úr þrúgunni tempranillo, höfuðþrúgu Spánar. Vínhúsið
Lagunilla framleiðir ýmsar tegundir vína og fer flokkun þeirra eftir
því hversu lengi þau hafa fengið að þroskast í eikartunnum og
verið geymd á flöskum. Lagunilla Reserva er fallega rautt með
brúnum blæ og angan af expressokaffi. Vínið er látið vera á stór-
um ámum í 12 mánuði til að ná stöðugleika og í eikartunnum í
36 mánuði. Það er mestan part úr tempranillo-þrúgunni en þó
blandað aðeins með öðrum staðbundnum þrúgum. Á vel við
með grilluðu kjöti þar sem eikin og kryddið vinna með grill-
bragðinu og ávöxturinn í víninu kallar kjötbragðið fram.
Kynningarverð á grilldögum í Vínbúðum 1.290 kr.
Lagunilla Reserva:
Spænskt grillvín
Vín með grillmatnum
Bach Vino de Mesa er besta kassavínið í Vínbúðum
hérlendis að mati Þorra Hringssonar vínrýnis, sem gerði
úttekt á kassavínum í nýjasta hefti Gestgjafans. Þorri
segir Bach henta vel með rauðu kjöti og með grilluðum
mat. Bach Vino de Mesa er frá Penedès-héraðinu á
Spáni. Það er blanda af hinni spænsku tempranillo í
bland við merlot og cabernet sauvignon. Vínið er fal-
lega tært með örlitlum bláma. Ilmurinn er ávaxtaríkur
og opinn með smá sætu. Bragðið er frekar sætt og
með þægilegum ávexti. Það á ekki síður við með ljósu
kjöti en rauðu og eins og hæfir suðrænu víni virkar það
vel eitt og sér og með smáréttum. Gott vín í sumarbú-
staðinn.
Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 3.390 kr.
Bach:
Besta kassavínið
Kassavín
Woodbridge-vínin frá víngerðarmeistaranum Robert Mondavi
eru mýkri en algengt er um vín frá Kaliforníu og prýðileg matar-
vín. Woodbridge Cabernet Sauvignon er djúpkryddað með keim
af súkkulaði og anís sem gefur víninu lakkrískenndan þokka.
Vínið er þroskað í litlum eikartunnum sem gefa víninu mjúkan
eikarkeim og langt lifandi eftirbragð. Vínið hentar vel með
steikum og vel krydduðum kjúklingi. Yndislegt með súkkulaði
og eftirréttum. Sérstaklega gott með ostum.
Kynningarverð á grilldögum í Vínbúðum 1.090 kr.
Woodbridge Cabernet Sauvignon:
Mjúkt frá Mondavi
Vín með grillmatnum
Brauðdeigið:
4 bollar hveiti
1 pk. þurrger
11/2 bolli vatn
1 tsk salt [ samtals um 60 kr. ]
Fylling t.d.:
1 rauður laukur (skorin í fleyga)
1/2 rauð paprika (skorin í strimla)
1/2 gul paprika
1/2 eggaldin (skorið eftir endilöngu)
4-5 msk. ólífuolía (Má vera krydduð
með t.d. hvítlauk eða basil.)
1 msk. sojasósa
100 g rifinn ostur
20 g franskur geitaostur (má sleppa)
[ samtals um 500 kr. ]