Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 24

Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 24
Þó að sólargeislarnir séu vissulega kærkomin tilbreyting hér á landi geta þeir jafnframt valdið skemmdum á húsgögnum, parketti og sjónvarps- skjám ef ekki er vel að gætt. Verslunin Sólargluggatjöld hefur til sölu svokölluð screen-gluggatjöld sem eru með 95 prósent hitavörn, sem þýðir að aðeins fimm prósent af geisl- un sólarinnar nær inn fyrir gluggann, í raun og veru aðeins sem birta. Þessi gluggatjöld vernda því húsgögn og parkett og eru með sérstaka glampa- vörn sem verndar bæði sjónvarpsskjái og tölvuskjái. Hægt er að velja úr annað hvort dökk- um litum eða ljósum og veita ljósu efnin betri hitavörn, en hægt er að sjá meira út um dökku efnin. Þessi gluggatjöld eru til í svörtu, dökkgráu, ljósgráu, drapplituðu og hvítu og eru tvímælalaust vinsælustu gluggatjöldin í Sólargluggatjöldum um þessar mundir. Bæði er hægt að fá glugga- tjöldin sem rúllugardínur og fleka. Screen-gluggatjöldin eru úr svoköll- uðu glertrefjaefni sem veitir hitavörn og að sögn starfsmanna Sólarglugga- tjalda eru gluggatjöld úr glertrefjaefni betri en gluggatjöld úr polyester þar sem þau síðarnefndu veita frekar litla hitavörn. Verslunin Sólargluggatjöld er í Skeif- unni 11 í Reykjavík. Kartöflupressa er einfalt áhald sem gott er að grípa til við matreiðsluna því með stöppuðum kartöflum með smá smjöri má gera hvunndagsmatinn að sannkallaðri sælkeramáltíð. Þessi fæst hjá Einari Farestveit og er einkar stílfalleg. - B e t r a v e r ð b e t r i g æ ð i - - B e t r a v e r ð b e t r i g æ ð i - Iðnbúð 1 · 210 Garðabæ s: 565-8060 · fax:565-8033 Gardínustangir Sérsmíði Gjafavara Smíðajárn Sumarið er tíminn til að gifta sig. Sólin sest aldrei, allir eru glaðir og léttir í lund. Júní, júlí og ágúst eru vinsæl- ustu mánuðir ársins til giftinga svo nú er mikil blómatíð framundan fyrir alla þá sem koma nálægt undirbúningi og framkvæmd fallegs brúðkaups. Gifting heimafyrir verður vin- sælli með hverju árinu. Misjafnt er hvaða háttur er hafður á, sum- ir halda athöfnina hátíðlega í kirkju og bjóða svo heim til veis- lu eftirá, aðrir fara alla leið, fá prestinn heim og sverja hjúskap- areiðinn á pallinum út í garði. Það er að mörgu að huga þeg- ar góða veislu gjöra skal og sér- staklega vill maður vanda sig þegar heimilið er veislusalurinn. Sé heimabrúðkaup á döfinni er viðeigandi að kíkja við í verslun- ina Unika í Fákafeni 9 því hún býður uppá ótrúlega marga fallega heimilisskraut- muni sem henta frábærlega sem skreyting í brúð- kaupsveislu. Silkiblóm eru til í mörgum út- færslum, í krönsum, lengj- um og vöndum og ekki má gleyma brúðarblóma- sveignum sem Unika leigir út og myndi sóma sér vel í hvaða garð- brúðkaupi sem er. Úrvalið af borðskrauti, kert- um og kertastjökum er fjölbreytt, og þó að brúðkaup sé ekki í nánd fer þetta skraut vel við hvers kyns sumarveislur. Fyrir utan skreytiefni og gjafavöru býður Unika líka uppá húsgögn, vefnaðarvörur, ljós og ýmsan annan heimilisvarning. ■ Guðrún Helgadóttir rithöfundur býr svo vel að eiga ekki bara eitt sófamálverk heldur tvö: „Yfir sófanum í stofunni minni hangir afskaplega falleg mynd frá Hafnarfirði eftir hann Magnús frænda minn Tómasson. Það eru yfir 40 ár síðan hann Magnús gaf mér þessa mynd sem er ein af hans fyrstu myndum og máluð með olíukrít en Magnús var nýbúinn að haldið sína fyrstu sýningu þegar hann gaf mér myndina, þá kornungur maður og ef ég man rétt enn í menntaskóla. Við hliðina á henni er mynd eftir Sigurborgu Stefánsdóttur, svokölluð „collage-mynd“ sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir á íslensku. Þá mynd eignaðist ég á mjög sér- kennilegan hátt; ég keypti happdrættismiða af nem- endum Myndlista- og handíðaskólans til að styrkja þá góðu stofnun og vann myndina. Og ég hafði sér- staklega gaman af því að það skyldi einmitt vera Sig- urborg sem hafði gert myndina því hún er mikil vin- kona sonar míns og tengdadóttur. Þessar myndir eru mér báðar mjög kærar og miklar eftirlætismyndir og hafa alltaf verið yfir sófanum, sama hver sófinn er og í hvaða húsi. Yfir sófanum er heiðurssess í hverri stofu. Eina mynd í viðbót er svo að finna í stofu minni sem ég hef miklar mætur á og það er leirmynd eftir Rúnu og Gest. Þetta er mynd af rauð- um höndum með rauða fána og þau hjónin sendu mér hana þegar borgarstjórnin í Reykjavík féll árið 1978 Mér þykir afskaplega vænt um allar þessar myndir og ég get verið nokkuð viss um að þær eru ekki falsaðar því þær koma allar beint frá listamönn- unum sjálfum,“ segir Guðrún að lokum. ■ Heimabrúðkaup: Góða veislu gjöra skal Blómaskraut á dúk 590 krónur. Glös 1.480 krónur, undirdiskar 1.280, kertastjaki 8.600, servíettuhringir 290 krónur, fiðrildi 280, 580 og 1480 krónur. Skál 3.980 krónur og jarðarber 150 krónur. Flotglös 250 krónur og vatnaliljur 380 krónur. [ GLUGGATJÖLD MEÐ HITAVÖRN ] Vernda húsgögn og sjónvarpsskjái Guðrún Helgadóttir með sófamálverkin sín. Sófamálverkið: Tvö málverk og leirmynd að auki Myndin frá því að borgarstjórnin féll 1978.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.