Fréttablaðið - 11.06.2004, Qupperneq 26
2 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
Blátt áfram er forvarnar- og
fræðsluverkefni sem tekur á kyn-
ferðislegu ofbeldi gagnvart börn-
um. Með verkefninu er ætlunin að
fræða fólk um afleiðingar kyn-
ferðislegs ofbeldis gagnvart börn-
um og hvernig grípa má inn í ef
grunur er um að slíkt atferli sé til
staðar.
Svava Björnsdóttir, sem stýrir
verkefninu, segir að áhersla verði
lögð á að upp-
fræða alla þá
sem vinna
með börnum
og þar á meðal
aðstandendur
og kennara
barna. Mark-
miðið er þan-
nig að setja
ábyrgðina yfir
á þá fullorðnu
með því að
auðvelda þeim
að leita svara
við spurning-
um sem gætu
komið upp
eins og til að
mynda hvert
eigi að leita,
hver séu
merkin og
hvað eigi að
gera þegar grunur leikur á kyn-
ferðislegri misnotkun barns. Mik-
ið af því upplýsinga- og fræðslu-
efni sem til er í dag í tengslum við
kynferðislegt ofbeldi gagnvart
börnum er að miklu leyti fyrir
börnin og hvernig þau geta geta
passað sig sjálf. Hinsvegar tekur
hún fram að allt efni sem verkefn-
ið Blátt áfram mun gefa út muni
einnig nýtast börnum allt niður að
níu ára aldri.
„Með forvarnavinnu eins og
þessari er markmiðið að koma í
veg fyrir vandamál á fullorðinsár-
um hjá þeim börnum sem verða
fyrir þessari ógæfu á barnsaldri.
Vandamál eins og þunglyndi,
drykkja, eiturlyfjaneysla, vændi,
ofbeldi og fleira. Við teljum þetta
verkefni vera
skref í rétta
átt,“ segir
Svava.
Hún segir
meginmark-
miðið vera að
kenna full-
orðnum að
verja börnin
með þekkingu.
Auk þess að
opna umræðu
um málefnið í
samfélaginu á
jákvæðan hátt
og breyta lög-
gjöf hegning-
arlaga á Ís-
landi.
„Á Krakka-
fjöri erum við
að kynna okk-
ur og minna á
að ræða þarf þessi mál við börnin
áður en þau eru send á sumarnám-
skeiðin,“ segir Svava.
Á sýningunni verða til sölu
hálsbönd fyrir lykla og farsíma og
á þau er prentað hjálparnúmer
neyðarlínunnar og hjálparsími
Rauða krossins svo börnin viti
hvert þau geta leitað í neyð. ■
„Hugmyndin með þessari sýningu er að taka saman
það sem markaðurinn er með í boði fyrir börn og gera
úr því skemmtilega upplifun fyrir alla fjölskylduna,“
segir Baldvin Baldvinsson, sýningarstjóri Krakka-
fjörs í Perlunni, sem haldin er nú helgina 12. og 13.
júní. Baldvin rekur jafnframt ásamt konu sinni Betri
stofuna auglýsingastofu og innflutningsfyrirtækið
Propaganda-sýningarkerfi en hjá þeim kviknaði hug-
myndin að Krakkafjöri upphaflega.
Baldvin segir þessa sýningu frábrugðna þeim
sem fólk á að venjast fyrst og fremst vegna þess að
aðgangur er ókeypis og auk þess sem margir kynn-
ingaraðilar selja vöru sína á staðnum. Hefðin er að
fólk borgi sig inn á sýningar sem þessar en ákveðið
var að standa þannig að málum að ekki þyrfti að
krefjast aðgangseyris.
„Þetta er því ekki þannig að fólk komi og borgi inn
fyrir alla fjölskylduna og fari svo bara heim með
bæklinga í poka. Hér fær fólk að kynnast vörunum,
upplifa skemmtun og getur svo keypt vöruna á
staðnum en þarf ekki að leita hennar annars staðar,“
segir Baldvin.
Í grunninn er þetta hefðbundin kynningarsýning,
en með öðrum áherslum. Meðal þess sem verður að
finna á sýningunni eru bækur, hljóðfæri, fatnaður,
sælgæti og leikföng, auk þess sem starfsemi barna-
kirkju, leikjanámskeiða, söngskóla og ungmenna-
samtaka er kynnt. Jafnframt mun sýningin ekki að-
eins fara fram innandyra heldur verður heilmargt í
boði úti við Perluna þar sem sem áherslan er lögð á
leik í hoppköstulum, grill og ýmsa útiskemmtun.
Vefsíðan krakkafjor.com hefur verið sett upp í
tengslum við Krakkafjör þar sem finna má meðal
annars dagskrá sýningarinnar. ■
Söngskóli Maríu og Siggu:
Sjálfstraust
í fyrirrúmi
„Við leggjum mikið upp úr að efla og styrkja
sjálfstraust hjá nemendum okkar,“ segir
María Björk Sverrisdóttir hjá Söngskóla Mar-
íu og Siggu, sem hefur starfað í ein 12 ár.
Hún segir framkomu og öryggi skipta máli
og er þess vegna ekki bara verið að kenna
söng og söngtækni í skólanum. „Ég hef séð
stórkostlegar breytingar hjá mörgum börn-
um. Sum þeirra mæta grátandi í fyrsta tíma
en enda svo veturinn syngjandi upp á sviði
fyrir framan fullt af fólki eins og ekkert sé.
Við viljum gera allt til að styrkja sjálfstraust
barnanna því það nýtist þeim vel á öðrum
sviðum og hjálpar þeim að tjá sig ófeimin,“
segir María.
„Áherslan er á popp- og dægurlagasöng og
á námskeiðunum geta nemendur sungið og
valið úr yfir 1000 lögum sem skólinn hefur
innan handar. Þarna eru öll nýjustu inn-
lendu og erlendu lögin ásamt eldri og
þekktari lögum. Þannig að allir finna ætíð
lög við sitt hæfi. Auk þess sem við höfum
hjá okkur þjóðþekkta söngvara,“ segir Mar-
ía. Skólinn starfar aðeins á veturna og á
hverri önn fær hann til sín þekkta gesta-
kennara. Þar má meðal annara nefna
Birgittu Haukdal og Jónsa.
Á krakkafjöri mun söngskóli Maríu og Siggu
verða með kynningu á starfsemi skólans
ásamt því að nemendur frá skólanum
munu koma og syngja. Einnig geta gestir
sýningarinnar sem hafa mikinn áhuga á því
að syngja fengið að prófa sig á sviðinu í
Perlunni. „Fólki er velkomið að stíga á svið
hjá okkur og láta reyna á hæfileika sína,“
segir María. ■
Íþróttamiðstöðin Björk í Hafnar-
firði er einna þekktust fyrir fim-
leikafélag sitt og státar af
stærstu og fullkomnustu fim-
leikahöll sem finnst á Norður-
löndum. Hins vegar er margt
annað í boði í íþróttamiðstöðinni
og er þar stór og mikill klifur-
veggur.
Hallgunnur Skaptason hjá
Björk segir vegginn vera stolt
miðstöðvarinnar, enda sé hann
gríðarlega stór og alveg frábær
fyrir alla sem vilja stunda klifur,
sama á hvaða aldri og getustigi
þeir eru. Hann nýtist bæði börn-
um og fullorðnum og þeim sem
taka klifuríþróttina alvarlega.
Hún segir forsvarsmenn Bjarkar
að sjálfsögðu vera einnig mjög
stolta af fimleikafólki sínu og
þeirri aðstöðu sem því býðst en
vill taka fram að hjá Björk sé
margt annað í boði en bara fim-
leikar.
Hallgunnur segir félagið skipt-
ast í fjórar deildir sem eru fim-
leikar, tae kwon do, íþróttaskóli og
klifur. Fimleikadeildin er einna
fjölmennust en þar eru um 1.100
iðkendur samanlagt í öllum deild-
um á aldrinum þriggja til 40 ára.
Í sumar verða íþróttanám-
skeið fyrir krakka á aldrinum 6
til 12 ára og verða þau mjög fjöl-
breytt. Þau munu samanstanda af
fimleikum, gönguferðum, leikj-
um og fleiru en einnig verður
boðið upp á trampólín og klifur-
námskeið. ■
Svava og Sigríður Björnsdætur vilja vekja
forráðamenn barna til umhugsunar varðandi
kynferðislegt ofbeldi á börnum.
Ungmennafélag Íslands:
Blátt áfram
Krakkafjör í Perlunni:
Upplifun og skemmtun
fyrir alla fjölskylduna
Íþróttamiðstöðin Björk:
Ekki bara fimleikar
María Björk og Sigga Beinteins.