Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 38
Léttöl
Stokkandarsteggur á hröðum flótta frá Þjóðarbókhlöðunni.
SJÓNARHORN
VISSIR ÞÚ ...
...að valentínusardagur er fjórða
stærsta hátíðin í Bandaríkjunum þar
sem fólk kaupir hvað mest af
nammi? Hrekkjavaka er í fyrsta sæti,
síðan koma jólin og loks páskar.
...að á fjórum árum gæti ein læða
fætt 20.736 kettlinga?
...að í Englandi á miðöldum var
morgunmatur borinn fram með
bjór?
...að hjá fimmtíu þjóðum í heimin-
um keyrir fólk á vinstri helmingi
vegarins?
...að það er til borg sem heitir Róm í
hverri einustu heimsálfu?
...að flær geta hoppað meira en 200
sinnum sína líkamshæð?
Í Skotlandi að
spila golf allan
daginn
„Draumahelgin mín hefst fyrir birt-
ingu á föstudagsmorgni þegar ég fer
um borð í flugvél og flýg til
Skotlands. Ég myndi fara niður í Ayr-
skíri á vesturströnd Skotlands þar
sem eru nokkrir skemmtilegustu
golfvellir Skotlands, t.d. Royal Troon
þar sem Royal Open verður í sumar.
Vellirnir liggja við ströndina og þarna
er mjög fallegt. Ég hef víða farið til
að spila golf en þetta er uppáhalds-
golfsvæðið mitt og þar myndi ég
spila til föstudagskvölds.
Í bítið morguninn eftir myndi ég svo
fljúga til Isle of Ilay sem liggur út frá
vesturströnd Skotlands og skrá mig
inn á Machrie-hótelið. Hótelið er við
golfvöllinn og ekkert annað í kring til
að draga hugann frá golfinu. Eyjan er
ansi stór og landslagið fallegt og í
góðu veðri sér maður bæði til
Skotlands og Írlands. Ég myndi spila
golf allan daginn og fara svo inn á
hótelið þegar verður of dimmt til að
spila. Eldhúsið á hótelinu er ákaflega
gott, kokkurinn franskur og sérdeildis
gott að slaka þar á. Ef ekki viðrar til
golfiðkunar myndi ég hugsanlega
kíkja inn í eina eða tvær viskíverk-
smiðjur en þær eru átta á eynni. Ég
myndi vilja vera í góðra vina hópi en
vona að stórstjörnur golfsins verði
ekkert að þvælast fyrir okkur og láta
okkur fá minnimáttarkennd.“
Raunveruleikinn: „Klukkan 07:20 á
föstudagsmorgun sest ég reyndar
upp í flugvél en fer til Vestmannaeyja
til að taka út golfvöllinn þar fyrir
Toyota-mótaröðina sem verður þar
um helgina og dæmi svo mótið.
Þannig að ég fæ að fara út í eyju þó
það sé ekki rétta eyjan, en lítið að
spila. Þó fæ ég að fara einn hring á
föstudaginn,“ segir Hinrik Hilmarsson
golfari.
Hinrik Hilmarsson þjónustu-
stjóri Golfsambandsins er ekki
í vafa um draumahelgina:
DRAUMA
HELGIN
11. júní 2004 FÖSTUDAGUR12
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N