Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 43

Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 43
23FÖSTUDAGUR 11. júní 2004 Hver? Björn Davíðsson, þróunarstjóri hjá Snerpu á Ísafirði og stjórnarmaður í Int- er sem er samtök netþjónustufyrirtækja. Hvar? Ég er á Ísafirði í vinnunni. Hvaðan? Ég er frá Þingeyri. Þar er ég fæddur og uppalinn. Hvað? Ég hef gagnrýnt Símann. Ég vil meina að Síminn misnoti markaðsráðandi stöðu sína. Hvernig? Með því að fylgja ekki ákvörðunum Samkeppnisstofnunar og hann notfærir sér að Samkeppnisstofnun þarf langan tíma til málsmeðferðar. Hvers vegna? Það skiptir máli fyrir fjarskiptaiðnaðinn að það verði ekki frekari samþjöppun en orðin er á markaðnum en stærri aðil- ar eru að éta upp smærri aðila. Ég tel hins vegar nauðsynlegt að viðhalda þessari flóru. Hvenær? Ávallt. PERSÓNAN ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Borgarstjóri Reykjavíkur var í sólskinsskapi í góða veðrinu á þriðjudaginn þegar hann mætti með blóm á Skólavörðustíginn. Tilefnið var að Reykjavíkurborg hefur ákveðið að gera Skóla- vörðustíg að blómagötu og því færðu fulltrúar borgarinnar íbúum og fyrirtækjum við þenn- an lista-, menningar- og ferðamannastíg blóm og mold í potta sem þeir höfðu meðferðis. ■ ÞETTA GERÐIST 1509 Hinrik VIII Englandskonungur kvænist Katrínu af Aragon. 1798 Napóleon Bónaparte hertekur Möltu. 1903 Alexander og Draga, konungs- hjón Belgrad, eru myrt af liðs- mönnum serbneska hersins. 1930 William Beebe setur met í djúp- sjávarköfun við strendur Bermúda. 1963 Dr. Martin Luther King jr. er tek- inn til fanga fyrir tilraun til að komast inn á veitingastaði í Flórida. 1967 Ísrael og Sýrland samþykkja skil- yrði Sameinuðu þjóðanna fyrir vopnahléi. 1991 Eldgos hefst í Pinatubo-fjalli á Filippseyjum. 1993 Risaeðlustórmynd Steven Spiel- berg, Júragarðurinn, er frumsýnd í Bandaríkjunum. 1999 Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, með Mike Myers í aðalhluverki, er frumsýnd í Bandaríkjunum. 2001 Timothy McVeigh, sem dæmdur var fyrir sprenginguna í Okla- homa-borg, er líflátinn í ríkis- fangelsinu í Terre Haute í Indiana.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.