Fréttablaðið - 11.06.2004, Side 46
11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ ROCKY
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Martin Kellerman
Eftir Frode Överli
STUÐ MILLI STRÍÐA
BIRGIR ÖRN STEINARSSON VELTIR ÞVÍ FYRIR SÉR HVORT TÓNLIST HAFI ÁHRIF Á HEGÐUN HANS.
■ Falinn boðskapur í tónlist?
Ég er ekki alveg í jafnvægi þessa
dagana. Ég varð fyrir því óhappi á
dögunum að setja gamlar plötur
N.W.A. á fóninn. „Fuck the Police“
ómaði í eyrunum á mér og allt í einu
fann ég fyrir sterkum hvötum til
þess að kaupa nælonsokkabuxur,
saga hlaupið af haglabyssunni
minni og ræna næsta KB banka.
Auðvitað reyndi ég öll ráð til
þess að bæla þessar hvatir niður í
mér. Prófaði til dæmis að setja
Rammstein og Marilyn Manson á
fóninn, en áttaði mig ekki fyrr en ég
var kominn hálfa leið upp í Smára-
lind með haglarann!
Fannst þá kominn tími til þess að
róa mig aðeins niður. Setti Sigur-
Rós og The Cure á fóninn. Vann
þann stóra í Lottó rétt áður en ég
lagði á þetta ráð og var því alveg í
skýjunum. Þegar tónarnir svifu á
mig fylltist hjarta mitt þó þvílíkri
sorg. Í dag þakka ég almættinu fyr-
ir það að hafa ekki enn verið búinn
að kaupa skot í byssuna.
Auðvitað var eina ráðið við þessu
að stilla bara á FM957 og komast í
djammgírinn! Þar var svo mikið
sungið um bólfarir og flottheit að
leiðin lá beinustu leið í ljósabekk-
inn, svo í ræktina að pumpa. Ég rétt
náði svo að stoppa mig áður en ég
fór með eina 16 ára heim af Felix.
Þessu fylgdi auðvitað þvílíkt
svartnætti og því var lítið annað að
gera en að sökkva sér djúpt í
dauðarokkið. Féll fyrir black-
metalsveit frá Noregi og áttaði mig
ekki á áhrifum þess fyrr en löggan
stoppaði mig með bensínbrúsa
fyrir framan Hallgrímskirkju sem
ég var staðráðinn í að brenna til
grunna.
Lítið annað að gera núna en að
reyna finna sálarró í plötum
Richard Clayderman eða slökunar-
tónlist Frikka Karls. Ef það virkar
ekki, hef ég ákveðið að hætta að
hlusta á tónlist og snúa mér alfarið
að tölvuleikjum. ■
Vá!
Ó,
þetta
ert...
þú.
Við hverju
bjóstu?
Ég var að
vonast til að
þetta væri
selur.
Pabbi! Pabbi!
Ég kenndi
Hanna
mannasiði!
Í alvöru?
Sjáðu!
Rooooooop! Afsakið!
Taa-
Daaa!
*Andvarp*
Gelt
Gelt
Hífopp æpti
karlinn… ÚPPS!
Þetta er víst frændi
Lassíar, en því miður
hættu þessir þættir
fljótlega!
Þeir segja að
hann hafi leiðst
út í harðari efni
en hundamat!
Heldurðu að það sé góð hugmynd
að við byrjum að umgangast
hvort annað aftur, eftir að þú
ert komin með gæja?
Þú þarft kvenkyns fyrir-
myndir, Rocky! Getum við
alls ekki verið vinir?
Þú meinar eins og Jerry Sein-
feld og Elaine?
Meira kannski eins og
Charlie Babbitt og Rainman…
Ef þú umgengst bara aðra
karla breytistu í svona gaur
sem skrifar til Bleikt og
Blátt og spyrð af hverju
konur séu svona tregar til að
fara í rúmið með þér þó þú
splæsir á barnum!
Þú vilt sem sagt að ég
splæsi ekki á þig?
Mér sýnist þetta vera
vonlaust tilfelli...